Ódauðleiki

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Immortality and the translation is 100% complete.
Other languages:

„Ódauðleiki“ er ekki bara umbun fyrir vel unnin verk — þótt það geti vel verið umbun — heldur náttúrulegur ásetningur Guðs manninum til handa sem var augljós frá grundvöllun heims og frá sköpunarstundu hvers einstakling.

Eins og Kúthúmi hefur sagt:

Það verður að skilja að ódauðleiki er gjöf sem er samheiti lífsins og samhliða því — fæðingarréttur, ekki eignarnám. Yfirlag rangra hugsana og tilfinninga hefur of lengi verið hjúpað orkuhulu (hjúpi af afmyndaðri mannsorku ), í stað ljóssins sem er lífgefandi kjarni frelsis fyrir birtingarmynd hverrar frumeindar.[1]

Serapis Bey kennir að „ódauðleiki er dýrmætur og krefjist alls af manninum af smæð mannsins ... Menn geta ekki byggt ódauðlega líkama úr dauðlegum efnum. Þeir geta ekki byggt ódauðlegar hugmyndir úr dauðlegum hugsunum. Þeir geta ekki byggt guðlegar tilfinningar úr dauðlegum tilfinningum sem umlykja heiminn og skapa hina miklu lífspýramída.“[2]

Lyklar að ódauðleika

Sérhver sonur og dóttir Guðs var ekki aðeins gæddur meistaralegri ráðagerð, forsnið að forlögum hans, heldur einnig áhöldum til að hrinda þeirri áætlun í framkvæmd samkvæmt meginreglum lífsins. Þessar meginreglur eru lyklarnir að ódauðleika; þær ljúka upp uppskrift sem gerir manninum kleift að finna og uppfylla hlutskipti sitt og sigra frumþætti dauðans. Það er rétt að menn haldi fast við lífið, en látum þá haldfestu vera til að uppfylla guðdómlegan tilgang og til að birta sanna uppljómun.

Maha Chohan útskýrir gjöf ódauðleikans fyrir okkur:

Talaðu við sál þína og segðu: Þetta er nýr dagur og ný fæðing! Í dag ert þú getinn af Guði! Í dag skaltu hefja klifrið að ódauðleika þínum og varpa af þér ótta og efasemdum um dauðleika þinn. Dauðinn hefur ekkert vald yfir þér nema þú gefir honum vald, né heldur helvíti né fallnir englar. Leyfðu því hinum mikla eldi heilags anda að koma inn í hjarta þitt og efla gönguna með Guði þar sem þú klæðist daglega þessum saumlausa kyrtli ódauðleika þíns.

Ódauðleiki verður að vinnast! Hann er ekki veittur eingöngu í trúarskyni né vegna hins viðtekna gamla viðkvæðis að hjálpræði frelsisins næst fyrir milligöngu eins einstaklings, þ.e. Jesú Krists. Ódauðleiki vinnst þegar þú meðtekur – eins og eldurinn sem umlykur sig – dýrð frjálsborinnar guðlegrar veru, hönd í hönd með hinu heilaga Krists-sjálfi þínu (sem er auðvitað eitt með Jesú)! Þannig tekur það marga tima og marga daga og, fyrir suma, margar aldir að flétta skúfa þrígreinda logans inn í þessa gjöf, þetta brúðarklæði ódauðleikans. Láttu markmið ódauðleika þíns því vera aðalmarkmiðið sem þú munt hafa náð við lok lífs þíns.[3]

Til frekari upplýsinga

Ítarlegar kenningar um ódauðleika má finna í Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Immortality, 3. kafla, „Ódauðleiki“.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Immortality.

  1. Kuthumi, „Alchemy,“ í Jesus and Kuthumi, Corona Class Lessons: For Those Who Would Teach Men the Way, bls. 354–55.
  2. Serapis Bey, 3. júlí 1967.
  3. Pearls of Wisdom, 37. bindi, nr. 28.