Athvarf Porsju

From TSL Encyclopedia
Revision as of 20:42, 30 June 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:
Frelsis- og réttlætisboginn, Akra, Ghana

Porsja, réttlætisgyðjan og tvíburalogi Saint Germains hefur athvarf uppi yfir Ghana. Þetta er mikilvæg viðtöku- og sendistöð fyrir réttlætislogann sem Porsja beinir um allan heim.

Einnig má finna athvarf Arktúrusar og Viktoríu á meginlandi Afríku, suður af Ghana í Lúanda í Angólu. Þetta athvarf er beinir fyrir loga frelsisins.

Í Akra, höfuðborg Ghana, er minnismerki þekkt sem Frelsis- og réttlætisboginn — táknmynd fyrir logana sem beinast að þessum tveimur athvörfum. Þessi bogi er ytri viðtökustöð fyrir frelsislogann frá hinu innra ljósvakaathvarfi Porsju.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Portia’s Retreat”.