Palace of White Marble/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
 
Line 2: Line 2:
'''Hvíta marmarahöllin''' er helg viðtöku- og sendistöð (beinir) [[Special:MyLanguage/Great White Brotherhood|Stóra hvíta bræðralagsins]] í hjarta Himalajafjalla.  

Það hefur miðlæga gullhvelfingu og fjórar sívalar turnspírur í hverju horni hinnar ferningslöguðu byggingar. Aðalráðstefnusalurinn er í miðjunni undir hvelfingunni, á hægri og vinstri hönd í salnum eru hugleiðsluherbergi sem hafa að geyma einhverjar af hinum öflugustu viðtökustöðum bræðralagsins sem við höfum séð í athvörfum þeirra á þessari plánetu.
Það hefur miðlæga gullhvelfingu og fjórar sívalar turnspírur í hverju horni hinnar ferningslöguðu byggingar. Aðalráðstefnusalurinn er í miðjunni undir hvelfingunni, á hægri og vinstri hönd í salnum eru hugleiðsluherbergi sem hafa að geyma einhverjar af hinum öflugustu beinum bræðralagsins sem við höfum séð í athvörfum þeirra á þessari plánetu.

Í herberginu hægra megin við ráðhúsið er stórt miðaltari yst á veggnum með sætum umhverfis það í hálfhring sem rúmar nokkur hundruð manns. Þrír logar prýða altarið sem rís í þremur stöllum. Á bak við hvern loga, sem blaka út frá veggnum, er hvítur steinn í formi logans en mun stærri. Á hvern þessara þriggja steina fyrir aftan eldana þrjá eru grafnar kosmískar táknmyndir sem eru í brennidepli fyrir svo öflugan Guðs-kraft að ekkert dauðlegt auga getur blínt á þá og haldið dauðleika sínum.

Latest revision as of 20:34, 30 June 2024

Other languages:

Hvíta marmarahöllin er helg viðtöku- og sendistöð (beinir) Stóra hvíta bræðralagsins í hjarta Himalajafjalla.

Það hefur miðlæga gullhvelfingu og fjórar sívalar turnspírur í hverju horni hinnar ferningslöguðu byggingar. Aðalráðstefnusalurinn er í miðjunni undir hvelfingunni, á hægri og vinstri hönd í salnum eru hugleiðsluherbergi sem hafa að geyma einhverjar af hinum öflugustu beinum bræðralagsins sem við höfum séð í athvörfum þeirra á þessari plánetu.

Í herberginu hægra megin við ráðhúsið er stórt miðaltari yst á veggnum með sætum umhverfis það í hálfhring sem rúmar nokkur hundruð manns. Þrír logar prýða altarið sem rís í þremur stöllum. Á bak við hvern loga, sem blaka út frá veggnum, er hvítur steinn í formi logans en mun stærri. Á hvern þessara þriggja steina fyrir aftan eldana þrjá eru grafnar kosmískar táknmyndir sem eru í brennidepli fyrir svo öflugan Guðs-kraft að ekkert dauðlegt auga getur blínt á þá og haldið dauðleika sínum.

Þess vegna fá aðeins uppstignir meistarar aðgang að þessu hugleiðsluherbergi. Þessi tákn eru afrakstur hugleiðslu þeirra, þess að þeir fara djúpt inn í og íhuga tilvist sjálfs kjarna tilverunnar. Það er þarna sem þessi tákn eru letruð, í innsta kjarna veru hvers manns, og þau eru aðeins dregin fram þegar einstaklingurinn nær vitund Guðs sem uppstigin vera. Allir geta hlakkað til að tilbiðja hjarta sannrar verundar í þessu herbergi eftir uppstigningu sína.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “The Palace of White Marble”.