Twelve solar hierarchies/is: Difference between revisions
No edit summary |
No edit summary |
||
Line 35: | Line 35: | ||
| 9 || Vogin || style="text-align:left;" | [[Special:MyLanguage/Mighty Victory|Hinn Voldugi sigurvegari]] og [[Special:MyLanguage/Lords of Individuality|Drottnar einstakleikans]] | | 9 || Vogin || style="text-align:left;" | [[Special:MyLanguage/Mighty Victory|Hinn Voldugi sigurvegari]] og [[Special:MyLanguage/Lords of Individuality|Drottnar einstakleikans]] | ||
|- | |- | ||
| 10 || Sporðdrekinn || style="text-align:left;" | [[Kyklópea]] and the [[Drottnar efnisformsins]] | | 10 || Sporðdrekinn || style="text-align:left;" | [[Special:MyLanguage/Cyclopea|Kyklópea]] and the [[Special:MyLanguage/Lords of Form|Drottnar efnisformsins]] | ||
|- | |- | ||
| 11 || Bogmaðurinn || style="text-align:left;" | [[Drottinn Maitreya]] og [[Drottinn yfir huganum]] | | 11 || Bogmaðurinn || style="text-align:left;" | [[Drottinn Maitreya]] og [[Drottinn yfir huganum]] |
Revision as of 00:30, 20 June 2024
Stigveldi sólarinnar eru tólf mandölur kosmískra vera sem veita tólf hliðum Guðs-vitundarinnar sálarfyllingu; þeir halda tíðnisviðum þessa mynsturs fyrir allan alheiminn. Þeir eru auðkenndir með nöfnum stjörnumerkja þar sem þeir beina orku sinni að jörðinni í gegnum þessi stjörnumerki.
Þessi tólf stigveldi sólarinnar eru oft sýnd á tólf línum hinnar kosmísku sólskífu. Hvert þessara stigvelda hefur hundrað fjörutíu og fjögur þúsund kosmískar verur í þjónustu sinni og hver þessara "geimvera" hefur aftur hundrað fjörutíu og fjögur þúsund engla undir stjórn sinni.
Þessi tólf stigveldi eiga sér fulltrúa tuttugu og fjögurra öldunga við dómstól hins helga elds á Síríusi sem samanstanda af tólf tvenndum tvíburaloga. Hvert par hefur vald á og yfirráð yfir einni af tólf línunum á hinni táknrænu birtingarmynd sólskífunnar. Öldungarnir tuttugu og fjórir hafa skipað fulltrúa til að aðstoða mannkynið við að ná tökum á hverri línu (hinnar kosmísku sólskífu sem standa fyrir bæði góða og slæma skapandi mennska eiginleika). Þessir fulltrúar starfa beint undir öldungunum tuttugu og fjórum sem aftur á móta útdeila blessunum hina tólf sólarstigvelda (til jarðarinnar).
Það er einmitt vegna þess að þessir fulltrúar eru tólf uppstignir meistarar og tvíburalogar þeirra (ef þeir eru stignir upp) hafa sigrast á veikleikum sínum á þessum tilteknu línun klukkuskífunnar og hafa þar af leiðandi verið útnefndir af hinum tuttugu og fjórum öldungum til að þjóna og aðstoða alla á jörðinni við að ná sama þroska og færni sem uppstignu meistararnir hafa öðlast á þessum sviðum (Ath! Þetta er lausleg þýðing á flóknu máli).
Hinir uppstignu meistarar sem þjóna á hverri línu klukkuskífunnar og hinar himnesku hersveitir sem þjóna með þessum útnefndu guðlegu fulltrúum eru sem hér segir:
Tólf stigveldi sólarinnar | ||
---|---|---|
Línurnar á sólskífunni | Stigveldi | Fulltrúar stigveldanna gagnvart jörðinni |
12 | Steingeitin | Hinn mikli guðlegi stjórandi og erkienglarnir sjö |
1 | Vatnsberinn | Saint Germain og englasveitir ljóssins |
2 | Fiskarnir | Jesús og stórsveit uppstignu meistaranna |
3 | Hrúturinn | Helíos og segulkraftur stóru Meginsólarinnar |
4 | Nautið | Guð Hlýðni og hinir sjö voldugu Elóhímar |
5 | Tvíburarnir | El Morya og liðsveitir Merkúrs |
6 | krabbinn | Serapis Bey og hinir voldugu serafar og kerúbar |
7 | Ljónið | Frelsisgyðjan og Karma-drottnarnir |
8 | Meyjan | Drottinn Lantó og Drottnar viskunnar |
9 | Vogin | Hinn Voldugi sigurvegari og Drottnar einstakleikans |
10 | Sporðdrekinn | Kyklópea and the Drottnar efnisformsins |
11 | Bogmaðurinn | Drottinn Maitreya og Drottinn yfir huganum |
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Twelve Solar Hierarchies”.