Cave of Symbols/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
(Created page with "Táknhellirinn")
 
No edit summary
Tags: Mobile edit Mobile web edit
 
(47 intermediate revisions by the same user not shown)
Line 1: Line 1:
<languages />
<languages />
The '''Cave of Symbols''' is the retreat of [[Saint Germain]] in Table Mountain in North America’s Rocky Mountains. This is an important focus, and many inventions are to be released from this retreat. Saint Germain uses this retreat along with the [[Rakoczy Mansion]] in Transylvania, the [[Cave of Light]] and the [[Royal Teton Retreat]].
'''Táknhellirinn''' er athvarf [[Special:MyLanguage/Saint Germain|Saint Germains]] í Borðfjallinu í Klettafjöllum Norður-Ameríku. Þetta er mikilvæg viðtöku- og sendistöð og margar uppfinningar eiga eftir að verða gangsettar úr þessu athvarfi. Saint Germain notar þetta athvarf ásamt [[Special:MyLanguage/Rakoczy Mansion|Rakoczy óðalsetrinu]] í Transylvaníu, [[Special:MyLanguage/Cave of Light|Ljóshellinum]] og [[Special:MyLanguage/Royal Teton Retreat|Royal Teton athvarfinu]].


== Description ==
<span id="Description"></span>
== Lýsing ==


One enters through a cavern in the mountain lined with pink and white crystal and then moves on into a vaulted chamber two hundred feet wide covered with stalactites of rainbow hue in the formation of occult symbols. As focuses of the rainbow rays of God and geometric keys to the release of [[fohat]], the energy that blazes through these symbols extends throughout the United States and has a most significant influence upon her people, keying into their consciousness the matrix of the golden age and the remembrance of their lost inheritance. The cave derives its name from these symbols.
Gengið er inn í athvarfið um stóran helli sem er lagður bleikum og hvítum kristöllum. Síðan liggur leiðin í hvelfingu sem er um 70 metrar á breidd. Hún er þakin dropsteinssúlum í öllum litbrigðum regnbogans og mynda þær dulspekileg tákn. Þessir kristallar, sem eru í brennidepli fyrir regnbogageisla Guðs, leysa ásamt rúmfræðilegu lyklunum úr læðingi [[Special:MyLanguage/fohat|fohat]], orkustrauma sem blossa í gegnum þessar táknmyndir út um gjörvalla Ameríku. Geislarnir valda mögnuðum hughrifum sem gera íbúana móttækilega fyrir áhrifum komandi blómaskeiðs og vekja upp endurminningar um týnda arfleifð.


On the opposite wall, at the far side of the chamber, there are three arches, spaced twenty feet apart: the first a deep rose, the second a penetrating white and the third a cobalt blue. These are the focuses of great cosmic beings for the victory of the Christ consciousness in America.
Á gagnstæðum vegg, í fjarlægari enda hvelfingarinnar, eru þrír bogar með sjö metra millibili. Hinn fyrsti er í djúprósrauðum lit, annar er grípandi hvítur að lit og sá þriðji er kóbaltblár. Þetta eru brennideplar sem stórfenglegar andlegar verur nota til að örva krists-vitundina í Ameríku til sigurs.


Accompanied by the master Saint Germain, who raises his hand toward the center archway, we gain entrance to a tunnel that opens at his command. After several hundred feet, he shows us through a door on which there are more ancient symbols into a twelve-sided, domed room sixty feet in diameter. Immediately we notice that four of the twelve sides are a brilliant white (focusing the purity of the Christ consciousness in the four elements and the four lower bodies of the planet). The remainder are the pastel hues of the rays.
Við sláumst nú í för með Saint Germain sem beinir hendi sinni að miðlægu bogagöngunum. Við enda þeirra er hellismunni sem opnast að boði meistarans. Eftir um hundrað metra göngu vísar hann okkur inn um dyr þar sem fleiri fornar táknmyndir er að finna í tólfhliða íhvolfum sal sem er tíu metrar að þvermáli. Samstundis verðum við þess vör að fjórar hliðar eru hvítljómandi (þær safna í brennidepil sinn tærleika Krists-vitundarinnar í höfuðskepnunum fjórum (náttúruöflunum) og fjórum lægri efnisgerðum plánetunnar). Hinar sem eftir standa eru í pastellitblæ geislanna.


In this room we are shown the fantastic radio invented by the ascended lady master [[Leonora]], by which one can communicate with other planets in this solar system, with the center of the earth, or with any point on the surface of the earth. There are chemical and electrical laboratories where scientists are perfecting formulas and inventions they have been permitted to take from the hermetically sealed cities at the bottom of the Atlantic Ocean that have been protected since the sinking of [[Atlantis]]. These discoveries will be brought forth for mankind’s use in the [[golden age]], just as soon as man has learned to harness greed, selfishness and the desire to control others through war and dishonest financial policies.
Í þessum sal er okkur sýnt stórkostlegt viðtæki sem uppstigni kvenmeistarinn [[Special:MyLanguage/Leonora|Leonóra]] fann upp. Með því er hægt að hafa samband á innri sviðum við aðra hnetti í sólkerfinu, við miðju jarðar og hvert sem er á yfirborði jarðar. Þarna eru rannsóknarstofur í efna- og rafeindafræði þar sem vísindamenn vinna við að fullkomna formúlur og uppfinningar sem þeim hefur verið heimilað að hafa með sér frá loftþéttum og innsigluðum borgum á botni Atlantshafs. Þessar borgir hafa verið verndaðar frá því að [[Special:MyLanguage/Atlantis|Atlantis]] sökk í sæ. Uppgötvanirnar verða færðar mannkyninu til afnota á komandi [[Special:MyLanguage/golden age|blómaskeiði]], jafnskjótt og maðurinn hefur lært að hafa taumhald á græðgi sinni, sjálfselsku og tilhneigingu til að kúga aðra með stríðsátökum og óheiðarlegu fjármálakerfi.


When the Sons of God are once again in control of the great nations of the world, the ascended masters will step forth with a tremendous wealth of information that has been guarded in their retreats for ages. Here, unascended scientists come forth in their finer bodies while asleep or between embodiments. Students of the light can also ask to be taken there. Saint Germain is training a large cadre of souls devoted to the Christ and to the science of the Christ, who at the proper time will have lowered into the outer consciousness all that they have learned in this and other retreats of the Brotherhood.  
Þegar synir Guðs ná á ný stjórn á stórþjóðum þessa heims munu uppstignu meistararnir stíga fram með gífurlegan þekkingarauð sem þeir hafa varðveitt í athvörfum sínum um aldir. Óuppstignir vísindamenn koma hingað í fíngerðari líkama sínum í svefni eða á milli jarðvistarskeiða. Andlegir nemar geta einnig beðið um að verða færðir hingað (í svefni). Saint Germain vinnur að því að þjálfa liðskjarna sálna sem hafa helgað sig Kristi og Krists-fræðum. Þekkingin sem þessar sálir hafa tileinkað sér í þessu athvarfi og öðrum athvörfum bræðralagsins verður í fyllingu tímans færð niður á vökuvitundarsvið mannsins.  


=== The atomic accellerator ===
<span id="The_atomic_accellerator"></span>
=== Frumeindahraðallinn ===


{{main|Ascension chair}}
{{main-is|Ascension chair|Uppstigningarstóll}}


There is even what is called an “atomic accelerator”—a golden chair through which are passed electronic currents that quicken the vibratory pattern of the atoms and electrons within the [[four lower bodies]]. Initiates of the [[Brotherhood]] who have proven their merit by service and devotion to the light and who have already balanced a considerable amount of their karma are allowed to sit in this chair for a length of time prescribed by the master Saint Germain and the [[Lords of Karma]]. By accelerating the light frequency in the four lower bodies, a portion of one’s karma is balanced and a portion of one’s misqualified substance is thrown off by the centrifugal action produced by the revolving electrons and transmuted by the sacred fire.
Í einu herbergi athvarfsins í Táknahellinum er að finna svonefndan „frumeindahraðal“ – stól úr gulli sem rafstraumar eru leiddir í gegnum. Straumarnir hækka orkutíðni frumeinda og rafeinda í fjórum lægri líkömum mannsins (efnis-, tilfinninga-, hugar- og ljósvakaslíðrum sem hjúpa sálina). Þeim innvígðu nemum bræðralagsins sem þegar hafa sýnt og sannað verðleika sína í verki með þjónustu og hollustu við ljósið, og hafa þegar jafnað umtalsverðan hluta karma síns, er leyft að sitja í þessum stól tiltekinn tíma, sem Saint Germain og karmadrottnarnir tilgreina. Með því að örva ljósorkutíðnina í fjórum lægri líkömunum jafnast hluti af karma þess sem í stólnum situr, og ákveðnir hlutar af efnisgerðum misfellum hans þeytast burt vegna miðflóttaaflsins sem myndast við snúning rafeindanna og umbreytingarkraft hins helga elds.


Thus, the individual’s four lower bodies can be accelerated in ascension currents and the soul raised into the ascension. Under the sponsorship of Saint Germain, many lifestreams have ascended from this very room.
Þannig er hægt að hækka orkutíðni fjögurra líkama mannsins í uppstigningarstreymi og hefja sálina að uppstigningunni. Með Saint Germain sem bakhjarl hafa margir lífstraumar (sálir) risið upp einmitt í þessu herbergi.


Entering an elevator, we descend a hundred feet into the heart of the mountain, emerging in a circular room having a diameter of twenty feet. We are led through a door into a huge hall equipped with furnaces and machines for the production of materials used in the experimental work carried on in the chemical and electrical laboratories in the upper level of the retreat.
Við tökum lyftu 30 metra niður í hjarta fjallsins þar til í ljós kemur hringlaga herbergi, sjö metrar í þvermál. Við erum leidd um dyr inn í risastóran sal. Þar eru ofnar og vélar til að framleiða efnivið sem notaður er í tilraunum í rannsóknarstofunum í efna- og rafeindafræði á efri hæðum athvarfsins.


Returning to the upper level, we are shown a reception hall with a domed ceiling, adjoining sleeping quarters, and an audience hall also with a domed ceiling of sky blue with painted clouds, giving the impression of being in the open air. Here there is a magnificent organ and piano that is used by the masters to focus the harmonizing currents of the music of the spheres on behalf of the freedom of sons and daughters of God on earth.
Þegar við snúum aftur upp á efri hæðirnar er okkur vísað inn í móttökusal með kúptu þaki sem liggur að svefnskálum og inn í áheyrendasal sem einnig hefur kúpt himinblátt þak sem á eru máluð ský sem líta út eins og ský undir berum himni. Þarna er stórkostlegt orgel og píanó sem meistararnir nota til að beina samhljómi hljómkviða himnanna til frelsunar sonum og dætrum Guðs á jörðu.


=== The Cosmic Mirror ===
<span id="The_Cosmic_Mirror"></span>
=== Alvíddarspegillinn ===


{{main|Cosmic Mirror}}
{{main-is|Cosmic Mirror|Alvíddarspegillinn}}


The Cosmic Mirror is on the east wall of the Crystal Chamber. When the disciple has reached a certain degree of attainment, he is taken by the master before the Cosmic Mirror, which keys into his [[etheric body]] and reflects his past lives, including the cause and effect upon his world of every thought, feeling, word and deed he has ever manifested. The Cosmic Mirror also reflects the original blueprint of his [[divine plan]] that is placed upon the etheric body when the soul is born in the heart of God. In viewing his past lives, the disciple then may learn what portion of the divine plan he has outpictured. He may see what conditions in his world must be corrected and what good momentums he has developed that he can now use to overcome the difficulties of the past and the present and thus fulfill his divine plan in the very near future.   
Alvíddarspegillinn er á eystri vegg Kristalsalarins. Þegar lærisveinninn hefur náð vissum árangri lætur meistarinn hann standa frammi fyrir kristalspeglinum, sem er stilltur inn á [[Special:MyLanguage/etheric body|ljósvakalíkama]] hans. Spegillinn endurspeglar fyrri æviskeið lærisveinsins, og greinir þar á meðal orsakir og afleiðingar í lífi hans sem hver hugsun og kennd, hvert orð og athöfn, hafa hrundið af stað frá fyrstu tíð. Alvíddarspegillinn endurspeglar einnig upprunalegan [[Special:MyLanguage/divine plan|guðlega ráðagerð]] lærisveinsins, sem er greyptur í ljósvakalíkamann þegar sálin fæðist í hjarta Guðs. Athugun fyrri æviskeiða gerir lærisveininum kleift að meta hversu vel hann hefur uppfyllt guðlegan tilgang sinn. Hann getur séð hvað hann verður að bæta. Hann sér einnig hvaða mannkosti hann hefur ræktað með sér, og hvernig hann getur nýtt þá til að sigrast á erfiðleikum fyrr og síðar, og þar með uppfyllt guðlegan tilgang sinn í næstu framtíð.   


=== The Sphere of Light ===
<span id="The_Sphere_of_Light"></span>
=== Ljóskúlan ===


At the far end of the audience hall, through a concealed door, one enters the Sphere of Light, a spherical-shaped room where the focus of the sacred fire is used to intensify the expansion of the light within those who are permitted to enter there. The function of this room correlates with the action of the light in the Cave of Light in the charge of the [[Great Divine Director]] in India. Together with the Atomic Accelerator, these focuses serve to bring the disciples of the masters closer to their ascension and to provide them with the assistance to accelerate the process that could not be achieved in the outer world.
Í fjarlægari enda áheyrendasalarins er gengið um innsiglaðar dyr inn í ljóskúlu, kúlulaga rými þar sem eldinum helga er beint að því að örva ljósmagnið innra með þeim sem veittur er aðgangur. Hlutverk þessa herbergis er í samræmi við virkni ljóssins í Ljóshellinum sem er í umsjón hins [[Special:MyLanguage/Great Divine Director|Guðdómlega mikla stjórnanda]] á Indlandi. Ásamt frumeindahraðlinum þjónar þessi safngeisli þeim tilgangi að færa lærisveina meistarans nær uppstigningunni og flýta fyrir henni sem ekki væri unnt í ytri veruleikanum.


== Attending the retreat ==
<span id="Attending_the_retreat"></span>
== Þátttaka í athvarfi ==


It is a very real and enlivening experience to stand before the Cosmic Mirror in this retreat. The disciple needs to be ready to look through the illusions, the fantasies and the synthetic self. He must be able to own up to the deceits that the ego continually practices against itself. It is not possible to hide anything from God. The sincere student who would like to get rid of these illusions may call to Saint Germain to be taken to stand before the Cosmic Mirror.  
Það er áhrifamikil og fjörgandi reynsla að standa fyrir framan alvíddarspegilinn í þessu athvarfi. Lærisveinninn þarf að vera reiðubúinn að horfast í augu við blekkingar sínar, hugaróra og gervisjálf. Hann verður að vera viðbúinn því að gangast við sífelldri sviksemi mennska sjálfsins gegn betri vitund. Ekki er unnt að fela neitt fyrir Guði. Einlægur nemi sem óskar sér að vera laus við tálsýnirnar getur beðið til Saint Germains um að fá að standa frammi fyrir alvíddarspeglinum.  


== Sources ==
<span id="Sources"></span>
== Heimildir ==


{{MTR}}, s.v. “Cave of Symbols.
Elizabeth Clare Prophet. Saint Germain. Alemíumeistarinn, Bræðralagsútgáfan, Reykjavík, 2015 (https://www.penninn.is/is/book/saint-germain).


[[Category:Etheric retreats]]
{{MTR}}, sjá “Cave of Symbols”.
 
[[Category:Ljósvakaathvörf]]

Latest revision as of 10:58, 27 October 2024

Táknhellirinn er athvarf Saint Germains í Borðfjallinu í Klettafjöllum Norður-Ameríku. Þetta er mikilvæg viðtöku- og sendistöð og margar uppfinningar eiga eftir að verða gangsettar úr þessu athvarfi. Saint Germain notar þetta athvarf ásamt Rakoczy óðalsetrinu í Transylvaníu, Ljóshellinum og Royal Teton athvarfinu.

Lýsing

Gengið er inn í athvarfið um stóran helli sem er lagður bleikum og hvítum kristöllum. Síðan liggur leiðin í hvelfingu sem er um 70 metrar á breidd. Hún er þakin dropsteinssúlum í öllum litbrigðum regnbogans og mynda þær dulspekileg tákn. Þessir kristallar, sem eru í brennidepli fyrir regnbogageisla Guðs, leysa ásamt rúmfræðilegu lyklunum úr læðingi fohat, orkustrauma sem blossa í gegnum þessar táknmyndir út um gjörvalla Ameríku. Geislarnir valda mögnuðum hughrifum sem gera íbúana móttækilega fyrir áhrifum komandi blómaskeiðs og vekja upp endurminningar um týnda arfleifð.

Á gagnstæðum vegg, í fjarlægari enda hvelfingarinnar, eru þrír bogar með sjö metra millibili. Hinn fyrsti er í djúprósrauðum lit, annar er grípandi hvítur að lit og sá þriðji er kóbaltblár. Þetta eru brennideplar sem stórfenglegar andlegar verur nota til að örva krists-vitundina í Ameríku til sigurs.

Við sláumst nú í för með Saint Germain sem beinir hendi sinni að miðlægu bogagöngunum. Við enda þeirra er hellismunni sem opnast að boði meistarans. Eftir um hundrað metra göngu vísar hann okkur inn um dyr þar sem fleiri fornar táknmyndir er að finna í tólfhliða íhvolfum sal sem er tíu metrar að þvermáli. Samstundis verðum við þess vör að fjórar hliðar eru hvítljómandi (þær safna í brennidepil sinn tærleika Krists-vitundarinnar í höfuðskepnunum fjórum (náttúruöflunum) og fjórum lægri efnisgerðum plánetunnar). Hinar sem eftir standa eru í pastellitblæ geislanna.

Í þessum sal er okkur sýnt stórkostlegt viðtæki sem uppstigni kvenmeistarinn Leonóra fann upp. Með því er hægt að hafa samband á innri sviðum við aðra hnetti í sólkerfinu, við miðju jarðar og hvert sem er á yfirborði jarðar. Þarna eru rannsóknarstofur í efna- og rafeindafræði þar sem vísindamenn vinna við að fullkomna formúlur og uppfinningar sem þeim hefur verið heimilað að hafa með sér frá loftþéttum og innsigluðum borgum á botni Atlantshafs. Þessar borgir hafa verið verndaðar frá því að Atlantis sökk í sæ. Uppgötvanirnar verða færðar mannkyninu til afnota á komandi blómaskeiði, jafnskjótt og maðurinn hefur lært að hafa taumhald á græðgi sinni, sjálfselsku og tilhneigingu til að kúga aðra með stríðsátökum og óheiðarlegu fjármálakerfi.

Þegar synir Guðs ná á ný stjórn á stórþjóðum þessa heims munu uppstignu meistararnir stíga fram með gífurlegan þekkingarauð sem þeir hafa varðveitt í athvörfum sínum um aldir. Óuppstignir vísindamenn koma hingað í fíngerðari líkama sínum í svefni eða á milli jarðvistarskeiða. Andlegir nemar geta einnig beðið um að verða færðir hingað (í svefni). Saint Germain vinnur að því að þjálfa liðskjarna sálna sem hafa helgað sig Kristi og Krists-fræðum. Þekkingin sem þessar sálir hafa tileinkað sér í þessu athvarfi og öðrum athvörfum bræðralagsins verður í fyllingu tímans færð niður á vökuvitundarsvið mannsins.

Frumeindahraðallinn

Aðalgrein: Uppstigningarstóll

Í einu herbergi athvarfsins í Táknahellinum er að finna svonefndan „frumeindahraðal“ – stól úr gulli sem rafstraumar eru leiddir í gegnum. Straumarnir hækka orkutíðni frumeinda og rafeinda í fjórum lægri líkömum mannsins (efnis-, tilfinninga-, hugar- og ljósvakaslíðrum sem hjúpa sálina). Þeim innvígðu nemum bræðralagsins sem þegar hafa sýnt og sannað verðleika sína í verki með þjónustu og hollustu við ljósið, og hafa þegar jafnað umtalsverðan hluta karma síns, er leyft að sitja í þessum stól tiltekinn tíma, sem Saint Germain og karmadrottnarnir tilgreina. Með því að örva ljósorkutíðnina í fjórum lægri líkömunum jafnast hluti af karma þess sem í stólnum situr, og ákveðnir hlutar af efnisgerðum misfellum hans þeytast burt vegna miðflóttaaflsins sem myndast við snúning rafeindanna og umbreytingarkraft hins helga elds.

Þannig er hægt að hækka orkutíðni fjögurra líkama mannsins í uppstigningarstreymi og hefja sálina að uppstigningunni. Með Saint Germain sem bakhjarl hafa margir lífstraumar (sálir) risið upp einmitt í þessu herbergi.

Við tökum lyftu 30 metra niður í hjarta fjallsins þar til í ljós kemur hringlaga herbergi, sjö metrar í þvermál. Við erum leidd um dyr inn í risastóran sal. Þar eru ofnar og vélar til að framleiða efnivið sem notaður er í tilraunum í rannsóknarstofunum í efna- og rafeindafræði á efri hæðum athvarfsins.

Þegar við snúum aftur upp á efri hæðirnar er okkur vísað inn í móttökusal með kúptu þaki sem liggur að svefnskálum og inn í áheyrendasal sem einnig hefur kúpt himinblátt þak sem á eru máluð ský sem líta út eins og ský undir berum himni. Þarna er stórkostlegt orgel og píanó sem meistararnir nota til að beina samhljómi hljómkviða himnanna til frelsunar sonum og dætrum Guðs á jörðu.

Alvíddarspegillinn

Aðalgrein: Alvíddarspegillinn

Alvíddarspegillinn er á eystri vegg Kristalsalarins. Þegar lærisveinninn hefur náð vissum árangri lætur meistarinn hann standa frammi fyrir kristalspeglinum, sem er stilltur inn á ljósvakalíkama hans. Spegillinn endurspeglar fyrri æviskeið lærisveinsins, og greinir þar á meðal orsakir og afleiðingar í lífi hans sem hver hugsun og kennd, hvert orð og athöfn, hafa hrundið af stað frá fyrstu tíð. Alvíddarspegillinn endurspeglar einnig upprunalegan guðlega ráðagerð lærisveinsins, sem er greyptur í ljósvakalíkamann þegar sálin fæðist í hjarta Guðs. Athugun fyrri æviskeiða gerir lærisveininum kleift að meta hversu vel hann hefur uppfyllt guðlegan tilgang sinn. Hann getur séð hvað hann verður að bæta. Hann sér einnig hvaða mannkosti hann hefur ræktað með sér, og hvernig hann getur nýtt þá til að sigrast á erfiðleikum fyrr og síðar, og þar með uppfyllt guðlegan tilgang sinn í næstu framtíð.

Ljóskúlan

Í fjarlægari enda áheyrendasalarins er gengið um innsiglaðar dyr inn í ljóskúlu, kúlulaga rými þar sem eldinum helga er beint að því að örva ljósmagnið innra með þeim sem veittur er aðgangur. Hlutverk þessa herbergis er í samræmi við virkni ljóssins í Ljóshellinum sem er í umsjón hins Guðdómlega mikla stjórnanda á Indlandi. Ásamt frumeindahraðlinum þjónar þessi safngeisli þeim tilgangi að færa lærisveina meistarans nær uppstigningunni og flýta fyrir henni sem ekki væri unnt í ytri veruleikanum.

Þátttaka í athvarfi

Það er áhrifamikil og fjörgandi reynsla að standa fyrir framan alvíddarspegilinn í þessu athvarfi. Lærisveinninn þarf að vera reiðubúinn að horfast í augu við blekkingar sínar, hugaróra og gervisjálf. Hann verður að vera viðbúinn því að gangast við sífelldri sviksemi mennska sjálfsins gegn betri vitund. Ekki er unnt að fela neitt fyrir Guði. Einlægur nemi sem óskar sér að vera laus við tálsýnirnar getur beðið til Saint Germains um að fá að standa frammi fyrir alvíddarspeglinum.

Heimildir

Elizabeth Clare Prophet. Saint Germain. Alemíumeistarinn, Bræðralagsútgáfan, Reykjavík, 2015 (https://www.penninn.is/is/book/saint-germain).

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Cave of Symbols”.