Cave of Symbols/is: Difference between revisions
No edit summary |
No edit summary Tags: Mobile edit Mobile web edit |

(17 intermediate revisions by the same user not shown) | |||
Line 1: | Line 1: | ||
<languages /> | <languages /> | ||
'''Táknhellirinn''' er athvarf [[Saint Germains]] í Borðfjallinu í Klettafjöllum Norður-Ameríku. Þetta er mikilvæg viðtöku- og sendistöð og margar uppfinningar eiga eftir að verða gangsettar úr þessu athvarfi. Saint Germain notar þetta athvarf ásamt [[Rakoczy óðalsetrinu]] í Transylvaníu, [[Ljóshellinum]] og [[Royal Teton athvarfinu]]. | '''Táknhellirinn''' er athvarf [[Special:MyLanguage/Saint Germain|Saint Germains]] í Borðfjallinu í Klettafjöllum Norður-Ameríku. Þetta er mikilvæg viðtöku- og sendistöð og margar uppfinningar eiga eftir að verða gangsettar úr þessu athvarfi. Saint Germain notar þetta athvarf ásamt [[Special:MyLanguage/Rakoczy Mansion|Rakoczy óðalsetrinu]] í Transylvaníu, [[Special:MyLanguage/Cave of Light|Ljóshellinum]] og [[Special:MyLanguage/Royal Teton Retreat|Royal Teton athvarfinu]]. | ||

== Lýsing == | == Lýsing == | ||
Gengið er inn í athvarfið um stóran helli sem er lagður bleikum og hvítum kristöllum. Síðan liggur leiðin í hvelfingu sem er um 70 metrar á breidd. Hún er þakin dropsteinssúlum í öllum litbrigðum regnbogans og mynda þær dulspekileg tákn. | Gengið er inn í athvarfið um stóran helli sem er lagður bleikum og hvítum kristöllum. Síðan liggur leiðin í hvelfingu sem er um 70 metrar á breidd. Hún er þakin dropsteinssúlum í öllum litbrigðum regnbogans og mynda þær dulspekileg tákn. Þessir kristallar, sem eru í brennidepli fyrir regnbogageisla Guðs, leysa ásamt rúmfræðilegu lyklunum úr læðingi [[Special:MyLanguage/fohat|fohat]], orkustrauma sem blossa í gegnum þessar táknmyndir út um gjörvalla Ameríku. Geislarnir valda mögnuðum hughrifum sem gera íbúana móttækilega fyrir áhrifum komandi blómaskeiðs og vekja upp endurminningar um týnda arfleifð. | ||
Þessir kristallar, sem eru í brennidepli fyrir regnbogageisla Guðs, leysa ásamt rúmfræðilegu lyklunum úr læðingi fohat, orkustrauma sem blossa í gegnum þessar táknmyndir út um gjörvalla Ameríku. Geislarnir valda mögnuðum hughrifum sem gera íbúana móttækilega fyrir áhrifum komandi blómaskeiðs og vekja upp endurminningar um týnda arfleifð. | |||
Á gagnstæðum vegg, í fjarlægari enda hvelfingarinnar, eru þrír bogar með sjö metra millibili. Hinn fyrsti er í djúprósrauðum lit, annar er grípandi hvítur að lit og sá þriðji er kóbaltblár. Þetta eru brennideplar sem stórfenglegar andlegar verur nota til að örva krists-vitundina í Ameríku til sigurs. | Á gagnstæðum vegg, í fjarlægari enda hvelfingarinnar, eru þrír bogar með sjö metra millibili. Hinn fyrsti er í djúprósrauðum lit, annar er grípandi hvítur að lit og sá þriðji er kóbaltblár. Þetta eru brennideplar sem stórfenglegar andlegar verur nota til að örva krists-vitundina í Ameríku til sigurs. | ||
Við sláumst nú í för með Saint Germain sem beinir hendi sinni að miðlægu bogagöngunum. Við enda þeirra er hellismunni sem opnast að boði meistarans. Eftir um hundrað metra göngu vísar hann okkur inn um dyr þar sem fleiri fornar táknmyndir er að finna í tólfhliða íhvolfum sal sem er tíu metrar að þvermáli. Samstundis verðum við þess vör að fjórar hliðar eru hvítljómandi (þær safna í brennidepil sinn tærleika | Við sláumst nú í för með Saint Germain sem beinir hendi sinni að miðlægu bogagöngunum. Við enda þeirra er hellismunni sem opnast að boði meistarans. Eftir um hundrað metra göngu vísar hann okkur inn um dyr þar sem fleiri fornar táknmyndir er að finna í tólfhliða íhvolfum sal sem er tíu metrar að þvermáli. Samstundis verðum við þess vör að fjórar hliðar eru hvítljómandi (þær safna í brennidepil sinn tærleika Krists-vitundarinnar í höfuðskepnunum fjórum (náttúruöflunum) og fjórum lægri efnisgerðum plánetunnar). Hinar sem eftir standa eru í pastellitblæ geislanna. | ||
Í þessum sal er okkur sýnt stórkostlegt viðtæki sem uppstigni kvenmeistarinn Leonóra fann upp. Með því er hægt að hafa samband á innri sviðum við aðra hnetti í sólkerfinu, við miðju jarðar og hvert sem er á yfirborði jarðar. Þarna eru rannsóknarstofur í efna- og rafeindafræði þar sem vísindamenn vinna við að fullkomna formúlur og uppfinningar sem þeim hefur verið heimilað að hafa með sér frá loftþéttum og innsigluðum borgum á botni Atlantshafs. Þessar borgir hafa verið verndaðar frá því að Atlantis sökk í sæ. | Í þessum sal er okkur sýnt stórkostlegt viðtæki sem uppstigni kvenmeistarinn [[Special:MyLanguage/Leonora|Leonóra]] fann upp. Með því er hægt að hafa samband á innri sviðum við aðra hnetti í sólkerfinu, við miðju jarðar og hvert sem er á yfirborði jarðar. Þarna eru rannsóknarstofur í efna- og rafeindafræði þar sem vísindamenn vinna við að fullkomna formúlur og uppfinningar sem þeim hefur verið heimilað að hafa með sér frá loftþéttum og innsigluðum borgum á botni Atlantshafs. Þessar borgir hafa verið verndaðar frá því að [[Special:MyLanguage/Atlantis|Atlantis]] sökk í sæ. Uppgötvanirnar verða færðar mannkyninu til afnota á komandi [[Special:MyLanguage/golden age|blómaskeiði]], jafnskjótt og maðurinn hefur lært að hafa taumhald á græðgi sinni, sjálfselsku og tilhneigingu til að kúga aðra með stríðsátökum og óheiðarlegu fjármálakerfi. | ||
Þegar synir Guðs ná á ný stjórn á stórþjóðum þessa heims munu uppstignu meistararnir stíga fram með gífurlegan þekkingarauð sem þeir hafa varðveitt í athvörfum sínum um aldir. Óuppstignir vísindamenn koma hingað í fíngerðari líkama sínum í svefni eða á milli jarðvistarskeiða. Andlegir nemar geta einnig beðið um að verða færðir hingað (í svefni). Saint Germain vinnur að því að þjálfa liðskjarna sálna sem hafa helgað sig Kristi og | Þegar synir Guðs ná á ný stjórn á stórþjóðum þessa heims munu uppstignu meistararnir stíga fram með gífurlegan þekkingarauð sem þeir hafa varðveitt í athvörfum sínum um aldir. Óuppstignir vísindamenn koma hingað í fíngerðari líkama sínum í svefni eða á milli jarðvistarskeiða. Andlegir nemar geta einnig beðið um að verða færðir hingað (í svefni). Saint Germain vinnur að því að þjálfa liðskjarna sálna sem hafa helgað sig Kristi og Krists-fræðum. Þekkingin sem þessar sálir hafa tileinkað sér í þessu athvarfi og öðrum athvörfum bræðralagsins verður í fyllingu tímans færð niður á vökuvitundarsvið mannsins. | ||

Line 21: | Line 20: | ||
{{main-is|Ascension chair|Uppstigningarstóll}} | {{main-is|Ascension chair|Uppstigningarstóll}} | ||
Í einu herbergi athvarfsins í Táknahellinum er að finna svonefndan „frumeindahraðal“ – stól úr gulli sem rafstraumar eru leiddir í gegnum. Straumarnir hækka orkutíðni frumeinda og rafeinda í fjórum lægri líkömum mannsins (efnis-, tilfinninga-, hugar- og ljósvakaslíðrum sem hjúpa sálina). Þeim innvígðu nemum bræðralagsins sem þegar hafa sýnt og sannað verðleika sína í verki með þjónustu og hollustu við ljósið, og hafa þegar jafnað umtalsverðan hluta karma síns, er leyft að sitja í þessum stól tiltekinn tíma, sem Saint Germain og karmadrottnarnir tilgreina. Með því að örva ljósorkutíðnina í fjórum lægri líkömunum jafnast hluti af karma þess sem í stólnum situr, og ákveðnir hlutar af efnisgerðum misfellum hans þeytast burt vegna | Í einu herbergi athvarfsins í Táknahellinum er að finna svonefndan „frumeindahraðal“ – stól úr gulli sem rafstraumar eru leiddir í gegnum. Straumarnir hækka orkutíðni frumeinda og rafeinda í fjórum lægri líkömum mannsins (efnis-, tilfinninga-, hugar- og ljósvakaslíðrum sem hjúpa sálina). Þeim innvígðu nemum bræðralagsins sem þegar hafa sýnt og sannað verðleika sína í verki með þjónustu og hollustu við ljósið, og hafa þegar jafnað umtalsverðan hluta karma síns, er leyft að sitja í þessum stól tiltekinn tíma, sem Saint Germain og karmadrottnarnir tilgreina. Með því að örva ljósorkutíðnina í fjórum lægri líkömunum jafnast hluti af karma þess sem í stólnum situr, og ákveðnir hlutar af efnisgerðum misfellum hans þeytast burt vegna miðflóttaaflsins sem myndast við snúning rafeindanna og umbreytingarkraft hins helga elds. | ||
Þannig er hægt að hækka orkutíðni fjögurra líkama mannsins í uppstigningarstreymi og hefja sálina að | Þannig er hægt að hækka orkutíðni fjögurra líkama mannsins í uppstigningarstreymi og hefja sálina að uppstigningunni. Með Saint Germain sem bakhjarl hafa margir lífstraumar (sálir) risið upp einmitt í þessu herbergi. | ||
Við tökum lyftu 30 metra niður í hjarta fjallsins þar til í ljós kemur hringlaga herbergi, sjö metrar í þvermál. Við erum leidd um dyr inn í risastóran sal. Þar eru ofnar og vélar til að framleiða efnivið sem notaður er í tilraunum í rannsóknarstofunum í efna- og rafeindafræði á efri hæðum athvarfsins. | Við tökum lyftu 30 metra niður í hjarta fjallsins þar til í ljós kemur hringlaga herbergi, sjö metrar í þvermál. Við erum leidd um dyr inn í risastóran sal. Þar eru ofnar og vélar til að framleiða efnivið sem notaður er í tilraunum í rannsóknarstofunum í efna- og rafeindafræði á efri hæðum athvarfsins. | ||
Line 34: | Line 33: | ||
{{main-is|Cosmic Mirror|Alvíddarspegillinn}} | {{main-is|Cosmic Mirror|Alvíddarspegillinn}} | ||
Alvíddarspegillinn er á eystri vegg Kristalsalarins. Þegar lærisveinninn hefur náð vissum árangri lætur meistarinn hann standa frammi fyrir kristalspeglinum, sem er stilltur inn á ljósvakalíkama hans. Spegillinn endurspeglar fyrri æviskeið lærisveinsins, og greinir þar á meðal orsakir og afleiðingar í lífi hans sem hver hugsun og kennd, hvert orð og athöfn, hafa hrundið af stað frá fyrstu tíð. | Alvíddarspegillinn er á eystri vegg Kristalsalarins. Þegar lærisveinninn hefur náð vissum árangri lætur meistarinn hann standa frammi fyrir kristalspeglinum, sem er stilltur inn á [[Special:MyLanguage/etheric body|ljósvakalíkama]] hans. Spegillinn endurspeglar fyrri æviskeið lærisveinsins, og greinir þar á meðal orsakir og afleiðingar í lífi hans sem hver hugsun og kennd, hvert orð og athöfn, hafa hrundið af stað frá fyrstu tíð. Alvíddarspegillinn endurspeglar einnig upprunalegan [[Special:MyLanguage/divine plan|guðlega ráðagerð]] lærisveinsins, sem er greyptur í ljósvakalíkamann þegar sálin fæðist í hjarta Guðs. Athugun fyrri æviskeiða gerir lærisveininum kleift að meta hversu vel hann hefur uppfyllt guðlegan tilgang sinn. Hann getur séð hvað hann verður að bæta. Hann sér einnig hvaða mannkosti hann hefur ræktað með sér, og hvernig hann getur nýtt þá til að sigrast á erfiðleikum fyrr og síðar, og þar með uppfyllt guðlegan tilgang sinn í næstu framtíð. | ||

=== Ljóskúlan === | === Ljóskúlan === | ||
Í fjarlægari enda áheyrendasalarins er gengið um innsiglaðar dyr inn í ljóskúlu, kúlulaga rými þar sem eldinum helga er beint að því að örva ljósmagnið innra með þeim sem veittur er aðgangur. Hlutverk þessa herbergis er í samræmi við virkni ljóssins í Ljóshellinum sem er í umsjón hins [[Special:MyLanguage/Great Divine Director|Guðdómlega mikla stjórnanda]] á Indlandi. Ásamt frumeindahraðlinum þjónar þessi safngeisli þeim tilgangi að færa lærisveina meistarans nær uppstigningunni og flýta fyrir henni sem ekki væri unnt í ytri veruleikanum. | |||

== Þátttaka í athvarfi == | == Þátttaka í athvarfi == | ||
Það er áhrifamikil og fjörgandi reynsla að standa fyrir framan alvíddarspegilinn í þessu athvarfi. Lærisveinninn þarf að vera reiðubúinn að horfast í augu við blekkingar sínar, hugaróra og gervisjálf. Hann verður að vera viðbúinn því að gangast við sífelldri sviksemi mennska sjálfsins gegn betri vitund. Ekki er unnt að fela neitt fyrir Guði. Einlægur nemi sem óskar sér að vera laus við tálsýnirnar getur beðið til Saint Germains um að fá að standa frammi fyrir alvíddarspeglinum. | |||

== Heimildir == | == Heimildir == | ||
Elizabeth Clare Prophet. Saint Germain. Alemíumeistarinn, Bræðralagsútgáfan, Reykjavík, 2015 (https://www.penninn.is/is/book/saint-germain). | |||
{{MTR}}, sjá “Cave of Symbols”. | {{MTR}}, sjá “Cave of Symbols”. | ||
[[Category:Ljósvakaathvörf]] | [[Category:Ljósvakaathvörf]] |
Latest revision as of 10:58, 27 October 2024
Táknhellirinn er athvarf Saint Germains í Borðfjallinu í Klettafjöllum Norður-Ameríku. Þetta er mikilvæg viðtöku- og sendistöð og margar uppfinningar eiga eftir að verða gangsettar úr þessu athvarfi. Saint Germain notar þetta athvarf ásamt Rakoczy óðalsetrinu í Transylvaníu, Ljóshellinum og Royal Teton athvarfinu.
Lýsing
Gengið er inn í athvarfið um stóran helli sem er lagður bleikum og hvítum kristöllum. Síðan liggur leiðin í hvelfingu sem er um 70 metrar á breidd. Hún er þakin dropsteinssúlum í öllum litbrigðum regnbogans og mynda þær dulspekileg tákn. Þessir kristallar, sem eru í brennidepli fyrir regnbogageisla Guðs, leysa ásamt rúmfræðilegu lyklunum úr læðingi fohat, orkustrauma sem blossa í gegnum þessar táknmyndir út um gjörvalla Ameríku. Geislarnir valda mögnuðum hughrifum sem gera íbúana móttækilega fyrir áhrifum komandi blómaskeiðs og vekja upp endurminningar um týnda arfleifð.
Á gagnstæðum vegg, í fjarlægari enda hvelfingarinnar, eru þrír bogar með sjö metra millibili. Hinn fyrsti er í djúprósrauðum lit, annar er grípandi hvítur að lit og sá þriðji er kóbaltblár. Þetta eru brennideplar sem stórfenglegar andlegar verur nota til að örva krists-vitundina í Ameríku til sigurs.
Við sláumst nú í för með Saint Germain sem beinir hendi sinni að miðlægu bogagöngunum. Við enda þeirra er hellismunni sem opnast að boði meistarans. Eftir um hundrað metra göngu vísar hann okkur inn um dyr þar sem fleiri fornar táknmyndir er að finna í tólfhliða íhvolfum sal sem er tíu metrar að þvermáli. Samstundis verðum við þess vör að fjórar hliðar eru hvítljómandi (þær safna í brennidepil sinn tærleika Krists-vitundarinnar í höfuðskepnunum fjórum (náttúruöflunum) og fjórum lægri efnisgerðum plánetunnar). Hinar sem eftir standa eru í pastellitblæ geislanna.
Í þessum sal er okkur sýnt stórkostlegt viðtæki sem uppstigni kvenmeistarinn Leonóra fann upp. Með því er hægt að hafa samband á innri sviðum við aðra hnetti í sólkerfinu, við miðju jarðar og hvert sem er á yfirborði jarðar. Þarna eru rannsóknarstofur í efna- og rafeindafræði þar sem vísindamenn vinna við að fullkomna formúlur og uppfinningar sem þeim hefur verið heimilað að hafa með sér frá loftþéttum og innsigluðum borgum á botni Atlantshafs. Þessar borgir hafa verið verndaðar frá því að Atlantis sökk í sæ. Uppgötvanirnar verða færðar mannkyninu til afnota á komandi blómaskeiði, jafnskjótt og maðurinn hefur lært að hafa taumhald á græðgi sinni, sjálfselsku og tilhneigingu til að kúga aðra með stríðsátökum og óheiðarlegu fjármálakerfi.
Þegar synir Guðs ná á ný stjórn á stórþjóðum þessa heims munu uppstignu meistararnir stíga fram með gífurlegan þekkingarauð sem þeir hafa varðveitt í athvörfum sínum um aldir. Óuppstignir vísindamenn koma hingað í fíngerðari líkama sínum í svefni eða á milli jarðvistarskeiða. Andlegir nemar geta einnig beðið um að verða færðir hingað (í svefni). Saint Germain vinnur að því að þjálfa liðskjarna sálna sem hafa helgað sig Kristi og Krists-fræðum. Þekkingin sem þessar sálir hafa tileinkað sér í þessu athvarfi og öðrum athvörfum bræðralagsins verður í fyllingu tímans færð niður á vökuvitundarsvið mannsins.
Frumeindahraðallinn
► Aðalgrein: Uppstigningarstóll
Í einu herbergi athvarfsins í Táknahellinum er að finna svonefndan „frumeindahraðal“ – stól úr gulli sem rafstraumar eru leiddir í gegnum. Straumarnir hækka orkutíðni frumeinda og rafeinda í fjórum lægri líkömum mannsins (efnis-, tilfinninga-, hugar- og ljósvakaslíðrum sem hjúpa sálina). Þeim innvígðu nemum bræðralagsins sem þegar hafa sýnt og sannað verðleika sína í verki með þjónustu og hollustu við ljósið, og hafa þegar jafnað umtalsverðan hluta karma síns, er leyft að sitja í þessum stól tiltekinn tíma, sem Saint Germain og karmadrottnarnir tilgreina. Með því að örva ljósorkutíðnina í fjórum lægri líkömunum jafnast hluti af karma þess sem í stólnum situr, og ákveðnir hlutar af efnisgerðum misfellum hans þeytast burt vegna miðflóttaaflsins sem myndast við snúning rafeindanna og umbreytingarkraft hins helga elds.
Þannig er hægt að hækka orkutíðni fjögurra líkama mannsins í uppstigningarstreymi og hefja sálina að uppstigningunni. Með Saint Germain sem bakhjarl hafa margir lífstraumar (sálir) risið upp einmitt í þessu herbergi.
Við tökum lyftu 30 metra niður í hjarta fjallsins þar til í ljós kemur hringlaga herbergi, sjö metrar í þvermál. Við erum leidd um dyr inn í risastóran sal. Þar eru ofnar og vélar til að framleiða efnivið sem notaður er í tilraunum í rannsóknarstofunum í efna- og rafeindafræði á efri hæðum athvarfsins.
Þegar við snúum aftur upp á efri hæðirnar er okkur vísað inn í móttökusal með kúptu þaki sem liggur að svefnskálum og inn í áheyrendasal sem einnig hefur kúpt himinblátt þak sem á eru máluð ský sem líta út eins og ský undir berum himni. Þarna er stórkostlegt orgel og píanó sem meistararnir nota til að beina samhljómi hljómkviða himnanna til frelsunar sonum og dætrum Guðs á jörðu.
Alvíddarspegillinn
► Aðalgrein: Alvíddarspegillinn
Alvíddarspegillinn er á eystri vegg Kristalsalarins. Þegar lærisveinninn hefur náð vissum árangri lætur meistarinn hann standa frammi fyrir kristalspeglinum, sem er stilltur inn á ljósvakalíkama hans. Spegillinn endurspeglar fyrri æviskeið lærisveinsins, og greinir þar á meðal orsakir og afleiðingar í lífi hans sem hver hugsun og kennd, hvert orð og athöfn, hafa hrundið af stað frá fyrstu tíð. Alvíddarspegillinn endurspeglar einnig upprunalegan guðlega ráðagerð lærisveinsins, sem er greyptur í ljósvakalíkamann þegar sálin fæðist í hjarta Guðs. Athugun fyrri æviskeiða gerir lærisveininum kleift að meta hversu vel hann hefur uppfyllt guðlegan tilgang sinn. Hann getur séð hvað hann verður að bæta. Hann sér einnig hvaða mannkosti hann hefur ræktað með sér, og hvernig hann getur nýtt þá til að sigrast á erfiðleikum fyrr og síðar, og þar með uppfyllt guðlegan tilgang sinn í næstu framtíð.
Ljóskúlan
Í fjarlægari enda áheyrendasalarins er gengið um innsiglaðar dyr inn í ljóskúlu, kúlulaga rými þar sem eldinum helga er beint að því að örva ljósmagnið innra með þeim sem veittur er aðgangur. Hlutverk þessa herbergis er í samræmi við virkni ljóssins í Ljóshellinum sem er í umsjón hins Guðdómlega mikla stjórnanda á Indlandi. Ásamt frumeindahraðlinum þjónar þessi safngeisli þeim tilgangi að færa lærisveina meistarans nær uppstigningunni og flýta fyrir henni sem ekki væri unnt í ytri veruleikanum.
Þátttaka í athvarfi
Það er áhrifamikil og fjörgandi reynsla að standa fyrir framan alvíddarspegilinn í þessu athvarfi. Lærisveinninn þarf að vera reiðubúinn að horfast í augu við blekkingar sínar, hugaróra og gervisjálf. Hann verður að vera viðbúinn því að gangast við sífelldri sviksemi mennska sjálfsins gegn betri vitund. Ekki er unnt að fela neitt fyrir Guði. Einlægur nemi sem óskar sér að vera laus við tálsýnirnar getur beðið til Saint Germains um að fá að standa frammi fyrir alvíddarspeglinum.
Heimildir
Elizabeth Clare Prophet. Saint Germain. Alemíumeistarinn, Bræðralagsútgáfan, Reykjavík, 2015 (https://www.penninn.is/is/book/saint-germain).
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Cave of Symbols”.