Lanto/is: Difference between revisions
(Created page with "Þessi logi er frumljós gula kynstofnsins sem hinir uppljómuðu hafa þegar virkjað. Hann gaf Kína menningarlegan kraft á þeim tíma þegar eftirhreturnar af heiminum sem annaðhvort hafði hafnað eða farið á mis við Krists-loga sendiboðanna og var í karmískum viðjum á tímum siðspellingarinnar. Mikilleiki Kína endurspeglar vitund Lantós, meistarans sem kom henni á laggirnar, og meistaranna sem komu honum á legg – hinn aldna, drottin Himalaja, G...") |
No edit summary |
||
(26 intermediate revisions by the same user not shown) | |||
Line 3: | Line 3: | ||
[[File:0000216 lord-lanto-2333AX 600.jpeg|thumb|alt=caption|Hertoginn af Chou, ein af endurfæðingum drottins Lantós]] | [[File:0000216 lord-lanto-2333AX 600.jpeg|thumb|alt=caption|Hertoginn af Chou, ein af endurfæðingum drottins Lantós]] | ||
[[Chohan]] af öðrum geisla; | Uppstiginn [[Special:MyLanguage/Chohan|Chohan-meistari]] af öðrum geisla; í nærveru hans er hægt að snerta og þekkja háleitni huga Guðs. Drottinn Lantó, meistari spekinga og heimspekinga, kennir okkur hina andlegu leið til uppljómunar, að skilja og stjórna [[Special:MyLanguage/crown chakra|hvirfistöðinni]]. | ||
Eftir að hafa notið leiðsagnar drottins [[Himalaya]] og fullnumast í [[Athvarfi bláa lótussins]] kaus drottinn Lantó að nota gula skúf hins [[þrígreinda loga]] til að umvefja hjörtu alls mannkyns. Hann hefur tileinkað sér að fullkomna þróun lífsins á þessum hnetti með uppljómun mannsins fyrir milligöngu hins [[Kosmíska Krist]]. Gullni loginn sem hann ber er hlaðinn uppsöfnuðum krafti guðlegs sigurs æsku heimsins. | Eftir að hafa notið leiðsagnar drottins [[Himalaya]] og fullnumast í [[Athvarfi bláa lótussins]] kaus drottinn Lantó að nota gula skúf hins [[þrígreinda loga]] til að umvefja hjörtu alls mannkyns. Hann hefur tileinkað sér að fullkomna þróun lífsins á þessum hnetti með uppljómun mannsins fyrir milligöngu hins [[Kosmíska Krist]]. Gullni loginn sem hann ber er hlaðinn uppsöfnuðum krafti guðlegs sigurs æsku heimsins. | ||
Line 46: | Line 46: | ||
Lantó endurfæddist síðar sem höfðingi í Kína á tímum Konfúsíusar (551 til 479 <small>f</small>.<small>Kr</small>.) Ásamt þekktari samtímamönnum sínum Konfúsíusi og Gátama Búddha hélt hann uppi hinum gyllta loga upplýsingarinnar fyrir hönd kínversku þjóðarinnar í fjölmargar aldir. Þessi logi er jarðtengdur í Kína frá [[athvarfi erkienglanna Jófíels og Kristínar]] sem er staðsett í miðhluta Kína. | Lantó endurfæddist síðar sem höfðingi í Kína á tímum Konfúsíusar (551 til 479 <small>f</small>.<small>Kr</small>.) Ásamt þekktari samtímamönnum sínum Konfúsíusi og Gátama Búddha hélt hann uppi hinum gyllta loga upplýsingarinnar fyrir hönd kínversku þjóðarinnar í fjölmargar aldir. Þessi logi er jarðtengdur í Kína frá [[athvarfi erkienglanna Jófíels og Kristínar]] sem er staðsett í miðhluta Kína. | ||
Þessi logi er frumljós gula kynstofnsins sem hinir uppljómuðu | Þessi logi er frumljós gula kynstofnsins sem hinir uppljómuðu höfðu virkjað og gáfu Kína menningarlegan kraft á þeim tíma þegar eftirhreturnar af heiminum hafði annaðhvort hafnað eða farið á mis við Krists-loga sendiboðanna og var í karmískum viðjum á siðspilltum tímum. Mikilleiki Kína endurspeglar vitund Lantós, meistarans sem kom Kína á laggirnar, og meistaranna sem komu Lantó á legg – hinn aldni, drottin Himalaja, [[Gátama Búddha]] og drottinn [[Maitreya]]. | ||
Fyrir uppstigningu sína ákvað drottinn Lantó að ljósið frá sínum eigin hjartaloga skyldi skína í gegnum líkamann sem lifandi sönnun fyrir lærisveina sína um að hinn þrígreindi logi, eins og á fyrri og komandi gullöldum, er Orðið sem varð hold og að fullneminn geti stækkað það og eflt sem setur það í forgang. | |||
Staðfesting með orðskviði Jobs: „En í holdi mínu mun ég sjá Guð! Lantó, með krafti fyrirmæla sinna frá hjartanu, trúrækni hans við hið lifandi Orð með alheims-Krist ávallt í för með sér, og helgun hans á orkustöðvum hins helga elds guðmóðurinnar náði því sem enginn annar í sögu jarðar eftir syndafallið hafði öðlast: Lantó dáði svo þrenninguna í þrígreindu ljósi innstu veru sinnar að hinn ákafi ljómi þessa guðlega neista sást í gegnum hold hans sem ljáði mjúkan gylltan ljóma í gegnum brjóst hans. Þessu hélt hann til heiðurs Sanat Kumara uns hann steig upp til himna um 500 <small>f</small>.<small>Kr</small>.— “minnisvarði um allar kynslóðir“ sem snerta [[ÉG ER-Nærveruna]] — til þess að upprunalegu ljósberarnir gætu rifjað upp köllunina um að lýsa upp hina myrku stjörnu. | |||
<span id="His_mission_today"></span> | <span id="His_mission_today"></span> | ||
== Köllun hans í samtímanum == | == Köllun hans í samtímanum == | ||
Sem meistari afburðaeldkjarnans í hjarta viskugeislans, þar af leiðandi hollvinur hinna hvítu eldlilja Guðs-móðurinnar, er Lantó gúrú-meistari gúrúanna, ekki aðeins Kínverja, sem hann þráir að aðstoða enn á ný við að reisa loga upplýsingarinnar, en einnig allra sálna sem deila kærleika hans á hinni gylltu sólskinsleið [[Búddha]] og [[bódhisattva]] undir Sanat Kumara. | |||
Í gegnum nítjándu og tuttugustu öldina hefur Lantó staðið dyggilega á bak við viðleitni [[Saint Germains]] við að frelsa mannkynið með því að birta kenningar uppstignu meistaranna um [[ÉG ER-nærveruna]] og [[fjólubláa eldinn]]. | |||
Þann 3. júlí 1958 tók hinn uppstigni meistari [[Konfúsíus]] við af drottni Lantó sem yfirstjórnandi [[Royal Teton athvarfsins]]. Með því að hafa náð árangri langt umfram það sem krafist var af annað hvort yfirstjórnanda athvarfsins eða chohan-meistara, þáði Lantó frá [[Kúthúmi]] embætti [[annars geisla]] á þeim degi (þessi blessaði bróðir sem hafði tilbeðið friðarhöfðingjann sem [[Saint Francis]] eftir að hafa þegar árið 1956 gengið til liðs við [[Jesú]] í embætti [[heimskennara]]). | |||
Þann 30. október 1966, í samvinnu við [[guðinn og gyðjuna Merú]], veitti [[Karmíska ráðið]] Lantó þá [[ívilnun]] að koma fyrir „mögnuðum yfirskilvitlegum gylltum ljóma“ sem slær taktfast um 100 m uppi yfir framhaldsskólum, háskólum og guðfræðideildum og skólum Ameríku og heimsins fyrir nemendur og kennara sem eru og gætu verið móttækileg fyrir þekkingu frá æðri sviðum. Allir nemendur úr skólum sem veita æðri menntun geta með áköllum fært sér þennan loga í nyt fyrir hönd skóladeilda og nemendahóps. | |||
Hinn uppstigni meistari Lantó stýrir kennslustundum í [[Royal Teton athvarfinu]], upphaflegu athvarfi [[Stóra hvíta bræðralagsins]] sem nýliðinn getur beðið um að vera færður til. Hér lærum við grundvallaratriði [[vígslu]]brautarinnar. Vegna [[undanþágunnar]] sem fólst í því að opna sjö athvörf chohan-meistaranna sjö, fá margar tugþúsundir sálna þjálfun á innri stigum til örvunar vitundar sinnar fyrir nýöldina. | |||
Drottinn Lantó reynir líka að gefa okkur tilfinningu | Drottinn Lantó reynir líka að gefa okkur tilfinningu fyrir verðleikum okkar í stað þeirrar sjálfsfyrirlitningar sem er svo algeng á meðal karla nú á dögum: | ||
<blockquote> | <blockquote>Maðurinn er verðandi Guð, en hann getur aldrei orðið sér þess áskynja á meðan þankar hans eru jarðneskir. Hann getur aldrei upplifað þetta með veraldlegri þekkingu því að það sem er í þessum heimi er heimska hjá Guði.<ref>I Cor. 3:19.</ref> Og í augum Guðs eru einu raunverulegu gildin þau sem frelsa manninn frá myrkviðum tilverunnar sem hefur leynt nærveru sólar Guðs fyrir augum hans. Og það er þessi sól sem mun vekja andleg skynfæri hans sem gerir honum kleift að sjá með augum heilags Páls andlit meistarans og heyra hróp hans: ... “<ref>Postulasagan 9:5; {{UYS}}, bls. 153.</ref></blockquote> | ||
Hugleiðingar um drottin Lantó og hinn gullna lótusloga hans er hægt að fylgja eftir með tónlistinni „Söngur til kvöldstjörnunnar“ úr ''Tannhäuser'', eftir Wagner (sem er [[grunntónn]] Royal Teton athvarfsins). Viska Lantós er upphafin hjá fáum uppstignum verum sem þjóna þessari jörð. Loga hans ætti að kalla fram daglega fyrir hönd ungmenna heimsins. | |||
<span id="See_also"></span> | <span id="See_also"></span> | ||
Line 81: | Line 81: | ||
== Til frekari upplýsinga == | == Til frekari upplýsinga == | ||
Kenningar Lantós, sjá kaflana um drottin Lantó í {{LSR}}. | |||
<span id="Sources"></span> | <span id="Sources"></span> |
Latest revision as of 13:56, 18 December 2024
Uppstiginn Chohan-meistari af öðrum geisla; í nærveru hans er hægt að snerta og þekkja háleitni huga Guðs. Drottinn Lantó, meistari spekinga og heimspekinga, kennir okkur hina andlegu leið til uppljómunar, að skilja og stjórna hvirfistöðinni.
Eftir að hafa notið leiðsagnar drottins Himalaya og fullnumast í Athvarfi bláa lótussins kaus drottinn Lantó að nota gula skúf hins þrígreinda loga til að umvefja hjörtu alls mannkyns. Hann hefur tileinkað sér að fullkomna þróun lífsins á þessum hnetti með uppljómun mannsins fyrir milligöngu hins Kosmíska Krist. Gullni loginn sem hann ber er hlaðinn uppsöfnuðum krafti guðlegs sigurs æsku heimsins.
Endurfæðingar
Sjálfboðaliði með Sanat Kumara
Lantó bauð sig fram með Sanat Kumara, hinum aldna, til að koma til jarðar fyrir löngu til að bjarga plánetunni og þróun hennar. Sem einn af hinum upprunalegu Vörðum logans gegndi hann ákveðnu hlutverki í fyrstu viðleitni Sanat Kumara til að endurheimta mannkynið úr myrku falli þess.
Sveitirnar sem buðu sig fram til að fylgja Sanat Kumara í leiðangri hans til myrku plánetunnar einsettu sér að endurvekja guðdómlega neistann í mannkyninu sem, með öfugþróun, hafði glatað upprunalegum eldi sínum og lifandi greind (kynstofns) guðdóms síns. Þetta sóru þær að gera frammi fyrir altari Shamballa og hinum mikla foringja sínum sem hafði gert sjálfan sig útlægan á jarðkringlunni í því eina skyni að viðhalda loga lífsins.
Lemúría og Atlantis
Hann var æðsti prestur í musteri hinnar guðlegu móður í álfunni sem sökk í Kyrrahafið, þekkt sem Lemúría. Hann hafði aðrar holdtekjur á Atlantis eins og allir chohan-meistarar geislanna.
Á síðustu dögum Lemúríu voru þeir sem gættu loganna á ölturum musteranna varaðir við komandi hamförum. Þeir numu á brott logana sína, báru þá á örugga staði og komu þeim fyrir í öðrum efnislegum athvörfum eða fluttu þá til ljósvakaáttundarinnar. Það var drottinn Lantó sem bar útfellingarlogann og staðsetti hann á Grand Teton-fjallasvæðinu í Norður-Ameríku.
Útfellingarloginn er kínverskur grænn litur með gulum litblæ af öðrum geisla. Þessi logi sem logar í Royal Teton athvarfinu gæðir vitundina eiginleikum sem gerir Bandaríkjamenn afar skilvirka, ýtir undir þróun hagnýtra vísinda og tækni sem tekur okkur aftur til tíma Mu þegar þessi tækni skaraði jafnvel fram úr því sem við höfum í dag. Það er gnægtarlogi sem liðkar fyrir sköpun auðlegðar sem og hamingju og gleði og alheimslegrar Krists-vitundar.
Hertoginn af Chou
Drottinn Lantó endurfæddist í Kína til forna sem hertoginn af Chou, (d. 1105 f.Kr.), talinn einn mesti stjórnmálamaður í kínverskri sögu og hinn sanni stofnandi konfúsískrar hefðar. Hertoginn af Chou, faðir hans, Wen konungur, og bróðir stofnuðu Chou-ættina. Þeir voru í fararbroddi fyrir því að steypa hinni spilltu Shang-ætt og áfengissjúkum og geðvilltum stjórnanda hennar af stóli.
Guðfaðir nýju ríkisstjórnarinnar, hertoginn af Chou, skrifaði handbækur um stjórnskipulag, helgisiði og velsæmi. Hann samdi líka tónlist. Hertoginn af Chou sagði eitt sinn: "Mér er aðeins umhugað um himininn og þjóðina."[1]
Hann og fjölskylda hans kynntu hugtakið „himnaríki“ fyrir kínversku þjóðinni og komu einnig á legg hugmyndina um „umboð himinsins,“ eða guðlegan rétt til að stjórna. Þeir sem fengu umboðið til að stjórna báru þá ábyrgð að halda því uppi af heilindum og heiðri. Þannig var það heilög skylda þeirra að stjórna með góðvild og réttlæti. Og ef þeir gerðu það ekki, yrðu þeir steyptir af stóli og háttsett embætti þeirra tekið af þeim.
Konfúsíus leit á hertogann sem fyrirmynd sína og taldi að það hafi verið köllun hans að endurreisa siðareglur og menningu fyrri tíma Chou-tímabilsins, sem var talið hafa verið gullöld. Á fyrstu ævi sinni dreymdi Konfúsíus oft um að hertoginn af Chou hefði leiðbeint honum um hina fornu speki. Í Analects harmaði hann: „Mikið er hnignun mín. Það er langt síðan mig dreymdi að ég sæi hertogann af Chou.
Frægasta bók hertogans af Chou er Klassískt rit gula keisarans um innri læknisfræði — elsta þekkta bók um læknisfræði í heiminum. Hún fjallar um líffærafræði og orsakir, greiningar og meðferð sjúkdóma. Ritið lýsir umbreytingu orku frá yin í yang og aftur í yin í fimm þrepum í gegnum eld, jörð, málm, vatn og tré. Í þessu hringferli hefur hvert líffæri í líkama okkar sín eigin einkenni í samræmi við orkustigið sem það er gert úr og orkuna sem streymir í gegnum það. Þessir eiginleikar koma fram líkamlega, sálrænt og andlega. Meginreglurnar í þessari bók hafa orðið grunnurinn að makróbíótísku mataræði.
Talið er að Konfúsíus hafi endurfæðst á tímum hertogans af Chou og hjálpað honum að koma hugsjónum sínum í verk um guðlega stjórn. Þegar Konfúsíus endurfæddist í Kína fimm hundruð árum síðar, ritstýrði hann hinum sex sígildu kínversku ritum, þar á meðal I Ching, sem Wen King hafði skrifað.
Stjórnandi í Kína
Lantó endurfæddist síðar sem höfðingi í Kína á tímum Konfúsíusar (551 til 479 f.Kr.) Ásamt þekktari samtímamönnum sínum Konfúsíusi og Gátama Búddha hélt hann uppi hinum gyllta loga upplýsingarinnar fyrir hönd kínversku þjóðarinnar í fjölmargar aldir. Þessi logi er jarðtengdur í Kína frá athvarfi erkienglanna Jófíels og Kristínar sem er staðsett í miðhluta Kína.
Þessi logi er frumljós gula kynstofnsins sem hinir uppljómuðu höfðu virkjað og gáfu Kína menningarlegan kraft á þeim tíma þegar eftirhreturnar af heiminum hafði annaðhvort hafnað eða farið á mis við Krists-loga sendiboðanna og var í karmískum viðjum á siðspilltum tímum. Mikilleiki Kína endurspeglar vitund Lantós, meistarans sem kom Kína á laggirnar, og meistaranna sem komu Lantó á legg – hinn aldni, drottin Himalaja, Gátama Búddha og drottinn Maitreya.
Fyrir uppstigningu sína ákvað drottinn Lantó að ljósið frá sínum eigin hjartaloga skyldi skína í gegnum líkamann sem lifandi sönnun fyrir lærisveina sína um að hinn þrígreindi logi, eins og á fyrri og komandi gullöldum, er Orðið sem varð hold og að fullneminn geti stækkað það og eflt sem setur það í forgang.
Staðfesting með orðskviði Jobs: „En í holdi mínu mun ég sjá Guð! Lantó, með krafti fyrirmæla sinna frá hjartanu, trúrækni hans við hið lifandi Orð með alheims-Krist ávallt í för með sér, og helgun hans á orkustöðvum hins helga elds guðmóðurinnar náði því sem enginn annar í sögu jarðar eftir syndafallið hafði öðlast: Lantó dáði svo þrenninguna í þrígreindu ljósi innstu veru sinnar að hinn ákafi ljómi þessa guðlega neista sást í gegnum hold hans sem ljáði mjúkan gylltan ljóma í gegnum brjóst hans. Þessu hélt hann til heiðurs Sanat Kumara uns hann steig upp til himna um 500 f.Kr.— “minnisvarði um allar kynslóðir“ sem snerta ÉG ER-Nærveruna — til þess að upprunalegu ljósberarnir gætu rifjað upp köllunina um að lýsa upp hina myrku stjörnu.
Köllun hans í samtímanum
Sem meistari afburðaeldkjarnans í hjarta viskugeislans, þar af leiðandi hollvinur hinna hvítu eldlilja Guðs-móðurinnar, er Lantó gúrú-meistari gúrúanna, ekki aðeins Kínverja, sem hann þráir að aðstoða enn á ný við að reisa loga upplýsingarinnar, en einnig allra sálna sem deila kærleika hans á hinni gylltu sólskinsleið Búddha og bódhisattva undir Sanat Kumara.
Í gegnum nítjándu og tuttugustu öldina hefur Lantó staðið dyggilega á bak við viðleitni Saint Germains við að frelsa mannkynið með því að birta kenningar uppstignu meistaranna um ÉG ER-nærveruna og fjólubláa eldinn.
Þann 3. júlí 1958 tók hinn uppstigni meistari Konfúsíus við af drottni Lantó sem yfirstjórnandi Royal Teton athvarfsins. Með því að hafa náð árangri langt umfram það sem krafist var af annað hvort yfirstjórnanda athvarfsins eða chohan-meistara, þáði Lantó frá Kúthúmi embætti annars geisla á þeim degi (þessi blessaði bróðir sem hafði tilbeðið friðarhöfðingjann sem Saint Francis eftir að hafa þegar árið 1956 gengið til liðs við Jesú í embætti heimskennara).
Þann 30. október 1966, í samvinnu við guðinn og gyðjuna Merú, veitti Karmíska ráðið Lantó þá ívilnun að koma fyrir „mögnuðum yfirskilvitlegum gylltum ljóma“ sem slær taktfast um 100 m uppi yfir framhaldsskólum, háskólum og guðfræðideildum og skólum Ameríku og heimsins fyrir nemendur og kennara sem eru og gætu verið móttækileg fyrir þekkingu frá æðri sviðum. Allir nemendur úr skólum sem veita æðri menntun geta með áköllum fært sér þennan loga í nyt fyrir hönd skóladeilda og nemendahóps.
Hinn uppstigni meistari Lantó stýrir kennslustundum í Royal Teton athvarfinu, upphaflegu athvarfi Stóra hvíta bræðralagsins sem nýliðinn getur beðið um að vera færður til. Hér lærum við grundvallaratriði vígslubrautarinnar. Vegna undanþágunnar sem fólst í því að opna sjö athvörf chohan-meistaranna sjö, fá margar tugþúsundir sálna þjálfun á innri stigum til örvunar vitundar sinnar fyrir nýöldina.
Drottinn Lantó reynir líka að gefa okkur tilfinningu fyrir verðleikum okkar í stað þeirrar sjálfsfyrirlitningar sem er svo algeng á meðal karla nú á dögum:
Maðurinn er verðandi Guð, en hann getur aldrei orðið sér þess áskynja á meðan þankar hans eru jarðneskir. Hann getur aldrei upplifað þetta með veraldlegri þekkingu því að það sem er í þessum heimi er heimska hjá Guði.[2] Og í augum Guðs eru einu raunverulegu gildin þau sem frelsa manninn frá myrkviðum tilverunnar sem hefur leynt nærveru sólar Guðs fyrir augum hans. Og það er þessi sól sem mun vekja andleg skynfæri hans sem gerir honum kleift að sjá með augum heilags Páls andlit meistarans og heyra hróp hans: ... “[3]
Hugleiðingar um drottin Lantó og hinn gullna lótusloga hans er hægt að fylgja eftir með tónlistinni „Söngur til kvöldstjörnunnar“ úr Tannhäuser, eftir Wagner (sem er grunntónn Royal Teton athvarfsins). Viska Lantós er upphafin hjá fáum uppstignum verum sem þjóna þessari jörð. Loga hans ætti að kalla fram daglega fyrir hönd ungmenna heimsins.
Sjá einnig
Til frekari upplýsinga
Kenningar Lantós, sjá kaflana um drottin Lantó í Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays.
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Lantó.”
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays
Elizabeth Clare Prophet, “Confucius’ Formula for Family and Community Building,” Pearls of Wisdom, 41. bindi, nr. 32, 9. ágúst, 1998.
Elizabeth Clare Prophet, 15. apríl, 1988.
- ↑ Confucius, Analects 7:13; James Legge, The Chinese Classics, 2d útg., endursk. (endurprentun 1893 útgáfunnar), 1:199, 68.
- ↑ I Cor. 3:19.
- ↑ Postulasagan 9:5; Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Understanding Yourself: A Spiritual Approach to Self-Discovery and Soul-Awareness, bls. 153.