Tree of Life/is: Difference between revisions
No edit summary |
No edit summary |
||
Line 9: | Line 9: | ||
(2) ''' Lífsins tré''' (cap.) er táknrænt fyrir [[ÉG ER-nærveruna]] og [[orsakalíkama]] hvers einstaklings og tengslanna sem lýst er í [[kortinu um guðlegu sjálfi þínu]], barna ljóssins með ódauðlegri uppsprettu þeirra. Það er vísað til þess í 1. Mósebók og Opinberunarbókinni: | (2) ''' Lífsins tré''' (cap.) er táknrænt fyrir [[Special:MyLanguage/I AM Presence|ÉG ER-nærveruna]] og [[Special:MyLanguage/causal body|orsakalíkama]] hvers einstaklings og tengslanna sem lýst er í [[kortinu um guðlegu sjálfi þínu]], barna ljóssins með ódauðlegri uppsprettu þeirra. Það er vísað til þess í 1. Mósebók og Opinberunarbókinni: | ||
<blockquote> | <blockquote> |
Revision as of 15:40, 22 July 2024
Lífsins tré getur vísað til:
(1) Lífsins tré er nafnið á skýringarmynd kabbalistanna (dulspekinga gyðinga)' af sefírot.
► Aðalgrein: Lífsins tré (Kabbala)
(2) Lífsins tré (cap.) er táknrænt fyrir ÉG ER-nærveruna og orsakalíkama hvers einstaklings og tengslanna sem lýst er í kortinu um guðlegu sjálfi þínu, barna ljóssins með ódauðlegri uppsprettu þeirra. Það er vísað til þess í 1. Mósebók og Opinberunarbókinni:
Og Drottinn Guð lét upp vaxa af jörðinni alls konar tré, sem voru girnileg á að líta og góð að eta af, og lífsins tré í miðjum aldingarðinum (Eden) og skilningstréð góðs og ills.[1]
Á miðju stræti borgarinnar, beggja vegna móðunnar, var lífsins tré, sem ber tólf sinnum ávöxt. Á mánuði hverjum gefur það ávöxt sinn, og blöð trésins eru til lækningar þjóðunum.[2]
Hinir tólf ávextir þess eru tólf eiginleikar Guðs-vitundarinnar sem karli og konu er ætlað að birta þegar þau fylgja vígslum á vegi uppstigningarinnar. Þeir eru Guðs-kraftur, Guðs-kærleikur og Guðs-færni, Guðs-stjórn, Guðs-hlýðni og Guðs-viska, Guðs-samlyndi, Guðs-þakklæti og Guðs-réttlæti; Guðs-veruleiki, Guðs-sýn og Guðs-sigur.
Þegar gúrú virkjar ÉG ER-nærveru einhvers, eins og gerðist hjá mörgum með prédikunum Jóhannesar skírara og Jesú Krists, vekur það ytri hugann til vitundar um Krists-vitundina og ber fram ávexti góðverka sem varðveitast í orsakalíkamanum. Slík prédikun heilags anda þvingar líka fram samfund einstaklingsins við lægra sjálf sitt og óuppgerð mál þess.
(3) Lífsins tré (l.c.) vísar til lægri persónuleikans (lægri veran í guðdómlegu sjálfi þínu), sjálfsvitundin í fjórum lægri líkömunum og trés sjálfsverundarinnar sem á rætur í karma og skráð í rafræna beltinu. Þessi orkuhula, eða myrkur, virkjar ljós gúrúsins til þess að sálin geti valið að varpa þessum óuppgerðu málumn í undirvitundinni í hinn helga eld og leita aðeins hina algóða í ÉG Er-nærverunni og orsakalíkamanum sem beinist að Edengarðinum sem lífsins tré.
„Lífsins tré“ getur því átt við bæði efri og neðri forðabúr lífsreynslunnar sem hver ber ávöxt eftir sinni tegund.
Sjá einnig
Heimildir
Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras.
Archangel Gabriel, Mysteries of the Holy Grail.