Brahma/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
Line 21: Line 21:
Ég kem, því, til að jarðtengja með [[Special:MyLanguage/Word|Orðinu]], með sveiflutíðni hins [[Special:MyLanguage/spoken Word|talaðs Orðs]] míns (sem endurómar á þessu sviði í gegnum boðberann) boðskapur minn til marga að ÉG ER tiltækur fyrir ykkur eins og þið hafið gert ykkur aðgengileg fyrir mig.

Ég stíg niður á hreinsunarstigið sem þið hafið náð, til kærleiksstigsins – djúps og virðulegs kærleika, kærleiks sem er niðurdýfing inn í Guðs-heildina.
Ég stíg niður á hreinsunarstigið sem þið hafið náð, til kærleiksstigsins – djúps og virðulegs kærleika, kærleiks sem er niðurdýfing verunnar inn í Guðs-heildina.

Þannig, um alla jörð ER ÉG alls staðar, þekktur í formi en samt formlaus. Ég stíg því niður því að ég kem til að uppskera sálir ljóssins og ég má nú taka mér bólfestu í kaleikum hjartans sem eru reistir þar til fylling þess ljóss kemur í ljós. ...

Revision as of 20:50, 1 September 2024

Other languages:
Bronsmyndastytta af Brahma (Kambódía, seint á 12. – byrjun 13. aldar)

Brahma, Vishnú og Shíva hindúaþrenningarinnar samsvara vestrænum hugmyndum um föður, son og heilagan anda – hinn eilífa skapara, varðveitanda og tortímanda. Brahma felur í sér hina guðdómlegu löngun sem var innblástur sköpunar heimsins. Vishnú miðlar miskunn og dyggð til að viðhalda heiminum. Shíva táknar hinn helga eld sem eyðir illskuna.

Litið er á Brahma sem föðurímyndina og fyrstu persónu þrenningarinnar, hina ómælanlegu verund – skapara, æðsta stjórnanda, löggjafa, viðhaldara og uppsprettu allrar þekkingar. Brahma er guðlegt almætti ​​holdgert. Guðdómleg samfella hans, eða shaktí, er Sarasvatí, virkur grunnþáttur Brahma. Þessir guðdómlegu elskendur eru dæmi um karllæga og kvenlega holdtekningu hins kosmíska krafts.

Maha Chohan talar um alheimsnærveru Brahma með okkur:

Ástvinir, skiljið leyndardóm Brahma í hjarta ykkar, hins mikla löggjafa, hins lifandi grunnþáttar föðurins, persónuna í mynd þess sem hefur hið mikla Guðs-vald yfir fjórðungum tilverunnar (sjá hina Kosmísku sólskífu). Sá faðir sem þið kallið Brahma er svo sannarlega hinn blái kraftskúfur í hjarta ykkar (sjá hinn þrígreinda loga). Og þess vegna, þegar þið segið „Ó Drottinn Brahma, komdu í ljós,“ ástvinir, Drottinn Brahma alheimsins kemur í ljós innan úr hjarta ykkar, innan úr hjarta Helíos og Vesta, Alfa til Ómega, og sérhvers sonar og dóttur Guðs bæði uppstiginn og óuppstiginn. Skiljið þá merkingu sjálfrar persónu Guðs. ...

Skiljið, ó blessaðir hjartkæru vinir, að þessi Brahma sem þið ákallið og veitið lotningu er bæði kraftur, vitund, andi og lifandi, dansandi eftirmynd hindúaguðsins. Svo þegar þið segið „Brahma“, þá svarar allsherjarandi Stóra hvíta bræðralagsins ákalli ykkar í fullum krafti alheimsins. Haldið ekki að orðið sem ég nota, „alheimsmáttur,“ sé aðeins orð sem þið getið ekki skilið. Byrjið á því að víkka út logann, logann ykkar, logann í hjarta ykkar, út, út í óravíddir og skynjið hið stórfenglega tilverusvið Guðs innra með ykkur sem teygir sig, snertir jörðina, loftið, sleikjandi eins og loginn væri sjálfur himininn eða pottlok hans og sífellt lengra og lengra.[1]

Ástfólginn Brahma hefur talað um löngun sína til að vera með okkur:

Ó ástvinir skaparans, ÉG ER kominn í einum tilgangi þennan dag. Því ÉG ER að lækka sjálfan mig, hið mikla Guðs sjálf, niður á stig þess að vera eitt af öðru, í eftirvæntingarfulla bikara milljóna sem horfa til dögunar sameiningarinnar við Brahma.

Ég kem, því, til að jarðtengja með Orðinu, með sveiflutíðni hins talaðs Orðs míns (sem endurómar á þessu sviði í gegnum boðberann) boðskapur minn til marga að ÉG ER tiltækur fyrir ykkur eins og þið hafið gert ykkur aðgengileg fyrir mig.

Ég stíg niður á hreinsunarstigið sem þið hafið náð, til kærleiksstigsins – djúps og virðulegs kærleika, kærleiks sem er niðurdýfing verunnar inn í Guðs-heildina.

Þannig, um alla jörð ER ÉG alls staðar, þekktur í formi en samt formlaus. Ég stíg því niður því að ég kem til að uppskera sálir ljóssins og ég má nú taka mér bólfestu í kaleikum hjartans sem eru reistir þar til fylling þess ljóss kemur í ljós. ...

Svo, smávinir, svo, dýrindis sálir mínar, svo, synir mínir og dætur, komið í faðm Brahma og þekkið mig sem mynd þess sem skapar og endurskapar og endurskapar þannig að öll sköpunin sé í því ferli að endurfæðast og endurfæðast og endurfæðast þar til fylling verundarinnar er uppgötvuð – og fylling tilgangs grasstrás, hinnar minnstu náttúruveru, engils, stjörnu er kunnug.[2]

Sjá einnig

Vishnú

Shíva

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Brahma”.

  1. The Maha Chohan, "I Will Be Brahma/Vishnu/Shiva Where I AM," 5. október, 1978.
  2. Drottinn Brahma, „Light up the World!“ Pearls of Wisdom, 36. bindi, nr. 46, 6. október, 1993.