Cosmic law/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
Tags: Mobile edit Mobile web edit
No edit summary
Line 29: Line 29:


Hvernig getið þið verið málsvarar náðagjafa [[Special:MyLanguage/Holy Spirit|heilags anda]] hverju barni Guðs til handa ef þið þekkið ekki lögmálið? Kynnist því lögmálinu og rannsakið lögmálið — lög Guðs og lög mannsins. Og takið ykkur því stöðu málamiðlunar til að greina hvaða lög sem sett eru á þessu sviði eru í samræmi við sannleikann og hvaða lög eru í ósamræmi við grundvallarsannleika lífsins, tilverunnar. Koma verður á lögum sem tryggja vígsluleið mannkyns og lög sem víkja frá þeirri braut verður að andæfa.<ref>Nada, "The Law of the One," {{POWref-is|64|13|, 1. apríl 2021}}</ref>
Hvernig getið þið verið málsvarar náðagjafa [[Special:MyLanguage/Holy Spirit|heilags anda]] hverju barni Guðs til handa ef þið þekkið ekki lögmálið? Kynnist því lögmálinu og rannsakið lögmálið — lög Guðs og lög mannsins. Og takið ykkur því stöðu málamiðlunar til að greina hvaða lög sem sett eru á þessu sviði eru í samræmi við sannleikann og hvaða lög eru í ósamræmi við grundvallarsannleika lífsins, tilverunnar. Koma verður á lögum sem tryggja vígsluleið mannkyns og lög sem víkja frá þeirri braut verður að andæfa.<ref>Nada, "The Law of the One," {{POWref-is|64|13|, 1. apríl 2021}}</ref>
</blockquote>


<span id="Sources"></span>
<span id="Sources"></span>

Revision as of 04:55, 22 May 2024

 
Hluti af greinaröð um
Kosmísk lögmál



Kosmísk lögmál



Samsvörunarlögmál
Hringrásarlögmál
Fyrirgefningarlögmál
Karmalögmál
Lögmál hins eina
Yfirskilvitleg lögmál
 
Stytta Réttlætisgyðjunnar

Lögmálið sem stjórnar af stærðfræðilegri nákvæmni, en samt með sjálfsprotinni íhlutun loga miskunnar og náðar, öllum raunbirtingum í alheiminum á anda- og efnissviðinu

Lögmál Guðs og manna

Hinn uppstigni kvenmeistari Nada talar um lögmál Guðs og hvernig lögmál manna rangsnúa þeim oft:

Fyrir mörgum þúsundum ára þegar ég var í endurfæðingu á jörðinni stundaði ég lögfræði sem málsvari fyrir dómstólum á Atlantis fyrir hönd barna ljóssins. Í hugleiðingum mínum um lögmál Guðs þegar ég þjónaði til altaris í musterinu skynjaði ég lögmál Guðs sem ákveðna vörn sem Móður-gyðjan verður að nota til að vernda börn sín gegn illsku þessa heims, gegn hinum föllnu sálum sem einnig leitast við að nota lögin í óréttmætum tilgangi.

Og nú eru komnir fram tímar sem eru ekki ólíkir þeim sem ég lifði á þegar ég þjónaði lögmáli Guðs vors í musterinu sem málflutningsmaður, sem verndari réttlætis, sannleika og miskunnar. Við sjáum að siðmenningin hefur eflst og siðmenningin er eins og akur illgresisins og hveitsins sem er fullvaxið. Næstum allt undir sólinni sem þið sækist eftir má finna í siðmenningu okkar, hvort sem það er frá Guði eða mammón, mönnum eða djöflum.

Við sjáum að hinir föllnu hafa notað margar aðferðir til að hrifsa frá börnum Guðs hinn réttláta skerf þeirra af ljósinu. Við höfum orðið vitni að valdaráni á lögmáli Guðs af mannavöldum sem raska kosmísku réttlæti. Við sjáum að þessi lög og túlkun þeirra fyrir dómstólum heimsins eru oft til varnar sjálfshyggju mannsins sem ómerkja varnir sálarinnar í Kristi.

Ég kem fram í dag sem guðsmóðir til að kalla ykkur til að gerast einnig guðsmæður, til að vara ykkur við þeim atburðum sem gerast í lok hringrásar þessa tímabils, þar sem synir Guðs segja um og spá fyrir um slík tímabil á hverri plánetu í hverju sólkerfi. Sjáið hvernig hinir föllnu hrifsa til sín lögmálið, hvernig þeir setja og framkvæma lög sem munu leiða til dauða og tortímingar sálarinnar og stöðu hennar á braut sólarþróunar.

Þið sjáið því að þegar þið ákallið ljósið, biðjið um frelsi, um aðgengi hins guðlegu sáttmála til barna Guðs og til að frelsa fólkið á hinni blessuðu jörð, þá rætast stundum ekki þessar ákallanir vegna þess að lögmál af mannavöldum koma í veg fyrir það. Og þessum köllum er sem sagt varpað til baka af þeim varnarvirkjum og kastölum sem menn hafa ekki reist fyrir börn Guðs í Kristi heldur fyrir börn óguðlegra og börn þessa heims. ...

Ég ráðlegg ykkur því að skipa laganefnd um löggjafir til að sjá hvers konar lög Bandaríkjaþing setur, hvers konar lög löggjafarþing ríkisins setur og hvers konar lög eru sett hjá öðrum þjóðum heimsins.

Því að þessi lög, þegar þau eru sett á, eru tilskipanir, manngerðar tilskipanir sem þjóna sínum eigin tilgangi. Sem vélrænar tilskipanir halda þessi lög uppi aðgerðum sem eru andkristilegar og brjóta í bága við birtingu Orðs Guðs uns þeim er andæft, uns dómstólar endurskoða þau og fólkið sjálft verður að taka í sínar hendur umboð réttlætisins, umboð Orðs Guðs til að skora á bæði löggjafana og lagatúlkana þegar lög þessara aðila eru ekki í samræmi við vilja Krists.

Við skulum gera okkur eitt ljóst: Öll lög sem standast ekki uppfyllingu lögmáls Guðs geta ekki staðist. Þau bíða þess að þeim verði andæft og sérhver einstakur sonur eða dóttir Guðs sem skynjar óréttlætið og ósamræmi manngerðra laga – mun mótmæla í nafni Krists slíkum lögum og það mun koma til kasta Karma-drottnanna sem vekja athygli okkar á tilvist óréttlætisins — og Karma-drottnarnir munu tafarlaust grípa til viðeigandi mótaðgerða ásamt Krists-sjálfi einstaklingsins. ...

Ég er að tala við ykkur um lögmálið sem leið til hjálpræðis mannsins og lögmálið sem leið mannsins til tortímingar. Lögmálið er helgur kraftur máttar Guðs, stjórnar hans, vilja hans, þess krafts sem kom fram í upphafi sköpunarinnar [1] Lögin verður því að virða. Þaðan kemur krafturinn og hinn mjög svo helgi eldur sem er Guð.

Hvernig getið þið verið málsvarar náðagjafa heilags anda hverju barni Guðs til handa ef þið þekkið ekki lögmálið? Kynnist því lögmálinu og rannsakið lögmálið — lög Guðs og lög mannsins. Og takið ykkur því stöðu málamiðlunar til að greina hvaða lög sem sett eru á þessu sviði eru í samræmi við sannleikann og hvaða lög eru í ósamræmi við grundvallarsannleika lífsins, tilverunnar. Koma verður á lögum sem tryggja vígsluleið mannkyns og lög sem víkja frá þeirri braut verður að andæfa.[2]

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

  1. Gen. 1:3.
  2. Nada, "The Law of the One," Pearls of Wisdom, 64. bindi, nr. 13, 1. apríl 2021.