Soul/is: Difference between revisions
No edit summary Tags: Mobile edit Mobile web edit |
No edit summary |
||
Line 14: | Line 14: | ||
Svið Guðs-verunnar er hvirflandi frumeind sem kallast Alfa-til-Ómega. Upp úr hringiðu umskautunar þess er ÉG SÁ SEM ÉG ER, sæði sálarinnar er fætt. Og þegar það fer í gegnum hringrás [[eindarinnar]] myndar það nýja skautun um miðjuna. Og rafeind sjálfsverundarinnar, ný sjálfsverund, fæðist. ... | Svið Guðs-verunnar er hvirflandi frumeind sem kallast Alfa-til-Ómega. Upp úr hringiðu umskautunar þess er ÉG SÁ SEM ÉG ER, sæði sálarinnar er fætt. Og þegar það fer í gegnum hringrás [[eindarinnar]] myndar það nýja skautun um miðjuna. Og rafeind sjálfsverundarinnar, ný sjálfsverund, fæðist. ... | ||
Þegar Guð fjölgaði sjálfum sér aftur og aftur í [[ÉG ER-nærverunni]] (einstaklingsmyndaður neisti verundarinnar), urðu fræin sem urðu að sálum – sálirnar sem varpað var frá sviðum andans – að lifandi sálum á sviðum efnisins. ... sálirnar sem komu fram söfnuðu saman efnisþráðum til að mynda starfstæki sjálfsverundarinnar í tíma og rúmi – hugann, minningarnar, tilfinningarnar sem bundnar eru við hið efnislega form. Þannig hulin í holdi og blóði var sálin búin til að stýra í tíma og rúmi.<ref>{{ | Þegar Guð fjölgaði sjálfum sér aftur og aftur í [[ÉG ER-nærverunni]] (einstaklingsmyndaður neisti verundarinnar), urðu fræin sem urðu að sálum – sálirnar sem varpað var frá sviðum andans – að lifandi sálum á sviðum efnisins. ... sálirnar sem komu fram söfnuðu saman efnisþráðum til að mynda starfstæki sjálfsverundarinnar í tíma og rúmi – hugann, minningarnar, tilfinningarnar sem bundnar eru við hið efnislega form. Þannig hulin í holdi og blóði var sálin búin til að stýra í tíma og rúmi.<ref>{{CAP-is}}, 3. kafli.</ref> | ||
</blockquote> | </blockquote> | ||
Revision as of 16:48, 15 July 2024
Guð er andi og sálin er lifandi vaxtarsproti Guðs. Krafa sálarinnar um frjálsan vilja og aðskilnað hennar frá Guði leiddi til þess að þessi vaxtarsproti seig niður í lágkúru holdsins. Sáð í vanvirðu, sálinni er ætlað að vera reist til heiðurs til fyllingar þeirrar guðdómlegu stöðu sem er hinn eini andi alls lífs. Sálin getur glatast; Andinn getur aldrei dáið.
Sálin er áfram fallinn vaxtarsproti sem verður að gæðast raunveruleika andans, hreinsuð í bæn og iðrun og snúa aftur til dýrðarinnar sem hún er sprottin úr til einingar við heildina. Þessi endurtenging sálar við anda er alkemíska hjónabandið sem ákvarðar hlutskipti sjálfsins og gerir það eitt með ódauðlegum sannleika. Þegar þessi helgisiður er uppfylltur krýnist æðsta sjálfið sem Drottinn lífsins og vaxtarmegn Guðs, opinberast í manninum, reynist svo vera allt-í-öllu.
Meistarinn Morya útskýrir uppruna sálarinnar:
Látum okkur nú ... sjá hvaða hluti hins óendanlega hefur orðið að veruleika á einmitt því kraftsviði sem þið kallið sjálf ykkar. Frækorn þessa sjálfs varð auðvitað að koma frá hinu mikla sjálfi Guðs, því það er engin önnur uppspretta hvaðan það gæti komið. Á ferð í gegnum svið hinnar miklu frumeindar lífsins safnar fræ sjálfs-vitundar saman ljósþráðum – þráð fyrir þráð, undnir og ofnir, ofnir og undnir um skurðpunkt vitundarinnar, orkusvið í uppbyggingu. Og fræið verður sál sem fædd er af sameiningu sjálfs andans við lífið. Og sálin er smækkuð sól sem snýst um meginsól Alheims-verunnar.. ...
Svið Guðs-verunnar er hvirflandi frumeind sem kallast Alfa-til-Ómega. Upp úr hringiðu umskautunar þess er ÉG SÁ SEM ÉG ER, sæði sálarinnar er fætt. Og þegar það fer í gegnum hringrás eindarinnar myndar það nýja skautun um miðjuna. Og rafeind sjálfsverundarinnar, ný sjálfsverund, fæðist. ...
Þegar Guð fjölgaði sjálfum sér aftur og aftur í ÉG ER-nærverunni (einstaklingsmyndaður neisti verundarinnar), urðu fræin sem urðu að sálum – sálirnar sem varpað var frá sviðum andans – að lifandi sálum á sviðum efnisins. ... sálirnar sem komu fram söfnuðu saman efnisþráðum til að mynda starfstæki sjálfsverundarinnar í tíma og rúmi – hugann, minningarnar, tilfinningarnar sem bundnar eru við hið efnislega form. Þannig hulin í holdi og blóði var sálin búin til að stýra í tíma og rúmi.[1]
Dvalarstaður sálarinnar er sálarstöðin. Þessi orkustöð er staðsett miðpunkt á milli botn-af-hryggjarstöðvarinnar og sólar-plexus orkustöðvarinnar, sem er staðsett við naflann. Sálin er kölluð af Guði til að ganga upp hringstigann frá sálarsæti orkustöðvarinnar að leynihólf hjartans, þar sem hún hittir ástkæra Heilaga Krist sjálfa.
Hinir upprisnu meistarar hafa vísað til sálarinnar sem barnsins sem býr innra með okkur. Sálfræðingar hafa kallað sálina „innra barn. Sálin með einhverju öðru nafni er enn sálin. Og við erum foreldrar hennar og kennarar, jafnvel eins og við erum nemendur hennar.
Sjá einnig
Til frekari upplýsinga
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path of the Higher Self, volume 1 of the Climb the Highest Mountain® series, bls. 7–11.
Elizabeth Clare prophet, The Story of Your Soul: Recovering the Pearl of Identity.
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path of the Higher Self, volume 1 of the Climb the Highest Mountain® series, bls. 7, 8.
Pearls of Wisdom, 35. bindi, nr. 58, November 29, 1992.
Pearls of Wisdom, 38. bindi, nr. 29, 2. júlí, 1995.
- ↑ El Morya, Chela-neminn og vegurinn: Leiðarlyklar að sálarstjórn á vatnsberaöld, 3. kafli.