Etheric cities/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
Line 2: Line 2:
[[File:1280px-Jefferson Memorial as seen from across the Tidal Basin in Washington DC.jpg|thumb|Minnisvarði Jeffersons, Washingtonborg.]]
[[File:1280px-Jefferson Memorial as seen from across the Tidal Basin in Washington DC.jpg|thumb|Minnisvarði Jeffersons, Washingtonborg.]]


Það eru fjórtán '''ljósvakaborgir''' uppi yfir jörðinni, sjö yfir heimshöfunum sjö, sjö uppi yfir eyðimörkunum sjö. Þessar ljósvakaborgir eru staðir þar sem sálir ljóssins eða sálir sem hafa aðstoðað [[uppstignu meistarana]] geta farið til á milli endurfæðinga eða í svefni. Þessar borgir eru ósnortnar á ljósvakastigi; þær eru eins og þær voru á [[gullöldinni]]. Sýn [[Jóhannesar hins elskaða]] um [[Nýju Jerúsalem]] sem er að finna í [[Opinberunarbókinni]] er fengin frá sýn hans um ljósvakaborgirnar, sem  marka innra forsnið [[ferhyrndu borgarinnar]] fyrir komandi birtingu í siðmenningum jarðarinnar.
Það eru fjórtán '''ljósvakaborgir''' uppi yfir jörðinni, sjö yfir heimshöfunum sjö, sjö uppi yfir eyðimörkunum sjö. Þessar ljósvakaborgir eru staðir þar sem ljóssálir eða sálir sem hafa aðstoðað [[Special:MyLanguage/ascended master|uppstignu meistarana]] geta farið til á milli endurfæðinga eða í svefni. Þessar borgir eru ósnortnar á ljósvakastigi; þær eru eins og þær voru á [[Special:MyLanguage/golden age|gullöld]] [jarðar]. Sýn [[Jóhannesar hins elskaða]] um [[Nýju Jerúsalem]] sem er að finna í [[Special:MyLanguage/Book of Revelation|Opinberunarbókinni]] má rekja til sýnar hans um ljósvakaborgirnar sem  marka innra forsnið [[Special:MyLanguage/City Foursquare|ferhyrndu borgarinnar]] fyrir komandi birtingu í siðmenningum jarðarinnar.


[[Gullguðinn]] lýsir þessum borgum:
[[Gullguðinn]] lýsir þessum borgum:

Revision as of 09:01, 11 October 2024

Other languages:
Minnisvarði Jeffersons, Washingtonborg.

Það eru fjórtán ljósvakaborgir uppi yfir jörðinni, sjö yfir heimshöfunum sjö, sjö uppi yfir eyðimörkunum sjö. Þessar ljósvakaborgir eru staðir þar sem ljóssálir eða sálir sem hafa aðstoðað uppstignu meistarana geta farið til á milli endurfæðinga eða í svefni. Þessar borgir eru ósnortnar á ljósvakastigi; þær eru eins og þær voru á gullöld [jarðar]. Sýn Jóhannesar hins elskaða um Nýju Jerúsalem sem er að finna í Opinberunarbókinni má rekja til sýnar hans um ljósvakaborgirnar sem marka innra forsnið ferhyrndu borgarinnar fyrir komandi birtingu í siðmenningum jarðarinnar.

Gullguðinn lýsir þessum borgum:

Í ljósvakaáttundinni, í sjö helstu ljósvakaborgunum — er gull alls staðar, ljós streymir. Englar ganga frjálslega með meistaralegum sonum og dætrum Guðs. Börn njóta Guðs-frelsis, átta sig á fyllingu orsakalíkamans. Þið getið séð votta fyrir gagnsæju Krists-sjálfinu og orsakalíkamanum og ÉG ER-nærverunni sýnilegu fyrir ofan þessa lífsstrauma. Göturnar eru gullnar.

Gull flytur og leiðir sólarljósið, heldur við heilsu í líkamanum og útfellingu sólarljóssins frá eigin orsakalíkama hvers og eins, áunninn forði fyrri endurfæðinga á jörðu og þjónustu á himnum. Þess vegna sjáið þið að allir eru ekki jafn efnaðir, jafnvel ekki í ljósvakaborgum, en hver sýnir með kunnáttu, kærleika sínum og guðdómi útfellingu þessa gullsgnóttar og fegurðar og ljóss, menningar og sálarþroska og allar hinar fjölmörgu hliðar Guðs-stjórnar á geislunum sjö.

Maður heyrir, með hljóðlausu hljóði og innri samhljómun orkustöðva, grunntóna allra meistara alheimsins. Maður getur stillt sig með hugleiðslu í gegnum orkustöðvar sínar inn á ýmsar bylgjulengdir hljóðs, ljóss, fegurðar, innblásturs og launhelga og andlegra miðstöðva annarra pláneta og fjarlægra heima.

Fegurð náttúrunnar er ljómandi og marglit - kristaltærir straumar, ferskleiki loftsins, sláandi lífskraftur stjarnanna, tilfinningin fyrir gegnsýringu lífsins með bláum geisla vilja Guðs. Það er friður og jafnvægi, jafnaðargeð. Það er vellíðan en ekki pirringur og taugaveiklunin í þéttari líkömum sem við íklæðumst, mataræðið sem við borðum, dauðatitringur og helvíti á jörðu.

Burtséð frá þessum sjö stórborgum ljóssins eru opin rými ljósvakasviðsins þar sem eru einangruð musteri, lærdómssetur, önnur samfélög og einhvers konar samkomur meistaranema.[1]

Ein af stærstu borgum í heimi þar sem vottar fyrir ljósaborg úr tálgusteini er Washingtonborg. Þetta er sökum framlags [uppstignu meistaranna] Saint Germains og George Washingtons sem létu lækka þessi mót í form. Borgarskipulag hennar nær aftur til hinna miklu ljósborga sem voru í Amazon-dældinni á tímum mikilfenglegrar gullaldar í Suður-Ameríku; lykilbyggingar borgarinnar eru hvítar og í mörgum þeirra má greina eitthvað mjög svipað því sem sést í ljósvakaborgunum.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “The Etheric Cities”.

  1. Godfre, 3. september, 1984.