Lord of the World/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
Line 40: Line 40:
== Fulltrúar í heiminum ==
== Fulltrúar í heiminum ==


Drottinn Gátama er í forsæti sem æðsti stjórnandi [[Shamballa]], nú á ljósvakasviðinu, sem jarðbundna athvarfið hefur horfið til. Í gegnum aldirnar hafa boðberar bræðralagsins, þekktir sem óþekktir, viðhaldið jafnvægi náttúrunnar (logans) í efnisáttundinni fyrir Búddha í Shamballa. Þannig hélt Jesús, sem smurður boðberi drottins Maitreya, hins kosmíska Krists, opnum gáttum í gegnum sitt helga hjarta fyrir ljós föðurins sem Maitreya, Gátama og Sanat Kumara eru fulltrúar fyrir til að rótfesta ljósið í hjörtum mannfjöldans á jörðunni.  
Drottinn Gátama er í forsæti sem æðsti stjórnandi [[Special:MyLanguage/Shamballa|Shamballa]], nú á ljósvakasviðinu, sem jarðbundna athvarfið hefur horfið til. Í gegnum aldirnar hafa boðberar bræðralagsins, þekktir sem óþekktir, viðhaldið jafnvægi logans (náttúrunnar) í efnisáttundinni fyrir Búddha í Shamballa. Þannig hélt Jesús, sem smurður boðberi drottins Maitreya, hins kosmíska Krists, opnum gáttum í gegnum sitt helga hjarta fyrir ljós föðurins sem Maitreya, Gátama og Sanat Kumara eru fulltrúar fyrir til að rótfesta ljósið í hjörtum mannfjöldans á jörðunni.  


Drottinn Jesús Kristur skilgreindi embætti sitt í efnisáttundinni samkvæmt kosmískum lögmálum þegar hann sagði: „Meðan ég er í heiminum, Ég ER sá sem ÉG ER, Orðið sem varð hold, er ég ljós heimsins. <ref>Jóhannes 9:5.</ref> Það var þessi festing ljóss ÉG ER-nærverunnar í hjartaorkustöð hans sem gerði Jesú kleift að taka á sig hnattkarma, „syndir heimsins,“ til þess að sálir ljóssins gætu fylgt honum á vegi Krists-fyllingarinnar uns þær skyldu einnig bera ljós sonar Guðs í musterum sínum.  
Drottinn Jesús Kristur skilgreindi embætti sitt í efnisáttundinni samkvæmt kosmískum lögmálum þegar hann sagði: „Meðan ég er í heiminum, Ég ER sá sem ÉG ER, Orðið sem varð hold, er ég ljós heimsins. <ref>Jóhannes 9:5.</ref> Það var þessi festing ljóss ÉG ER-nærverunnar í hjartaorkustöð hans sem gerði Jesú kleift að taka á sig hnattkarma, „syndir heimsins,“ til þess að sálir ljóssins gætu fylgt honum á vegi Krists-fyllingarinnar uns þær skyldu einnig bera ljós sonar Guðs í musterum sínum.  

Revision as of 19:00, 2 November 2024

Heimsdrottinn, embætti innan helgivaldsins sem er í höndum æðsta yfirvalds guðdómsins fyrir hönd byggðs hnattar og þróunar hans. Samkvæmt tilmælum Karmadrottna velur Sólar logosinn þann sem gegnir þessu embætti úr hópi þeirra sem hafa staðist búddhískar vígslur og eru lengst komnir á meðal vígsluþega samkvæmt lögum helgivaldsins í tilteknum heimi.

Drottinn heimsins tekur við hinni guðlegu forskrift fyrir heiminn frá hinu Þögla vitni og gætir þrígreinda logans fyrir hönd engla, höfuðskepnanna og mannanna sem þjóna til að úthverfa loga Krists á sviðum anda og efnis. Hann beinir sér einnig að öllum vitundarsviðum Guðs, þar með talið hinum fimm leyndu geislum. Að hafa vald á bæði innri stigum (sviðum hinna hinna fimm leyndu eða óvirku geisla) og ytri stigum (sviðum hinna sjö geisla) hins mikla orsakalíkama, stillir hann til friðar í fjórum lægri líkömum plánetunnar.

Gátama Búddha, Heimsdrottinn vorra tíma

Gátama Búddha gegnir embætti Heimsdrottins (nefndur „Drottinn jarðar“ í Opb. 11:4), en hann tók nýlega við af Sanat Kumara, sem hafði gegnt embættinu í tugþúsundir ára. Það er æðsta embættið í andlega helgivaldinu fyrir plánetuna – og samt er drottinn Gátama sá auðmjúkasti meðal uppstiginna meistara.

Á innri stigum viðheldur hann þrígreinda loganum, guðlega neistanum, fyrir þá lífsstrauma sem hafa misst beina snertingu við ÉG ER-nærveru sína og hafa skapað svo slæmt karma að þeir eru ófærir um að magna nægjanlegt ljós frá guðdóminum til að viðhalda endurholdgun sálar sinnar á jörðinni. Í gegnum ljósþráðavef sem tengir hjarta hans við hjörtu allra barna Guðs nærir drottinn Gátama hinn flöktandi loga lífsins sem ætti að brenna á altari hvers hjarta af meiri kærleika, visku og mætti sem Krists-vitund hvers og eins glæðir.

Sanat Kumara, fyrrverandi Heimsdrottinn

Gátama Búddha tók við möttli Heimsdrottins 1. janúar, 1956 af Sanat Kumara, yfirstjórnanda og æðstaprests plánetunnar Venus, sem hafði gegnt stöðu Heimsdrottins frá myrkustu stundum í sögu jarðarinnar. Sanat Kumara, þekktur sem hinn aldni, bauð sig fram til að koma til jarðar fyrir þúsundum ára þegar kosmísk ráð höfðu ákveðið að jörðin yrði leyst upp. Svo mikið var fráhvarf mannkyns frá kosmískum lögmálum að Sólardrottnarnir höfðu ákveðið að ekki ætti að gefa mannkyninu frekari tækifæri sem hafði viljandi vanrækt og gleymt Guðs-loganum í hjörtum síunum. Ákvæði laganna fyrir björgun storðar (Terra) var að einhver sem væri fær um að taka sér stöðu hins holdgaða „lambs“ í efnislegri áttund gæfi sig fram til að viðhalda jafnvægi [náttúrunnar] og hinum þrígreinda lífsloga fyrir hönd hvers sálarlífs. Sanat Kumara bauðst til að taka það að sér.

Í Opnun sjöunda innsiglsins segir Sanat Kumara söguna af því hvernig hollvinir sínir frá Venus buðu sig fram til að fylgja honum og endurholdast meðal mannkyns til að aðstoða við viðhald logans:

Gleði tækifærisins var blönduð sorg aðskilnaðarins. Ég hafði af frjálsum vilja valið mér útlegðarvist á myrkri stjörnu. Og þó að það ætti fyrir henni að liggja að verða frelsisstjarna vissu allir að það yrði fyrir mig dimm nótt sálarinnar. Þá birtist allt í einu úr dölum og fjöllum stór hópur barna minna. Það voru hundrað fjörutíu og fjórar þúsund sálir sem voru á leið til ljósahallarinnar okkar. Þær hringsóluðu nær og nær uns tólf sveitir hófu að kyrja söng frelsis, kærleika og sigurs. ... Þegar við horfðum á af svölunum, Venus og ég, sáum við þrettándu sveitina í hvítum klæðnaði. Það var konunglegt prestdæmi Melkísedeksreglunnar. ...

Þegar allur hópur þeirra hafði safnast saman, hring eftir hring í kringum heimili okkar og lofsöngur þeirra og tilbeiðsla til mín var lokið stóð talsmaður þeirra fyrir framan svalirnar til að ávarpa okkur fyrir hönd hins mikla fjölda. Það var sál þess sem þið þekkið og elskið í dag sem Heimsdrottinn, Gátama Búddha. Og hann ávarpaði okkur og sagði: „Ó hinn aldni, við höfum heyrt um sáttmálann sem Guð hefur gert við þig í dag og um skuldbindingu þína um að varðveita loga lífsins uns sumir á meðal jarðarþróunarinnar hafa glætt hann og endurnýjað aftur heit sín um að vera verðir logans. Ó hinn aldni, þú ert gúrú-meistarinn okkur, sjálft líf okkar, Guð okkar. Við munum ekki skilja þig eftir umkomulausan. Við förum með þér.“[1]

Þannig komu þeir til jarðar með Sanat Kumara og englasveitum, í kjölfar fylgdarliðs ljósbera sem undirbjuggu jarðveginn og stofnuðu Shamballa athvarfið – Hvítu borgina – á eyju í Góbíhafi (nú Góbíeyðimörk). Þar jarðtengdi Sanat Kumara hinn þríþreinda loga og kom í upphafi á fót snertiþræði við alla á jörðu með því að færa ljósgeisla frá hjarta sínu til þeirra eigin. Og þar voru sjálfboðaliðar frá Venus íklæddir þéttum holdshjúpi til að fylgja eftir jarðarþróuninni til sigurs heits síns.

Sá fyrsti af þessum óuppstignu ljósberum til að svara kalli Heimsdrottins frá efnisáttundinni var, skiljanlega, Gátama og í grennd við hann var Maitreya. Báðir fylgdu vegferð Bódhisattva til búddhadóms, Gátama lauk „fyrstur“ rásinni og Maitreya „í öðru sæti“. Þannig urðu þeir tveir fremstir lærisveina Sanat Kumara, annar tók að lokum við af honum embætti Heimsdrottins, hinn sem Kosmískur Kristur og Búddha jarðarinnar.

Embættisfærsla

Á þeirri stundu sem möttull Heimsdrottins yfirfærðist 1. janúar, 1956 á Gátama Búddha tók hann á sig þá kvöð að viðhalda líflínunni í þróun jarðarinnar með eigin hjartaloga og Sanat Kumara, sem ríkjandi Heimsdrottinn, sneri aftur til heimastjörnu sinnar, Venusar, þar sem hann hefur heldur úti mikilli starfsemi í þjónustu Stóra hvíta bræðralagsins á jarðarplánetunni.

Drottinn Maitreya tók samtímis við fyrrum embætti Gátama, hins kosmíska Krists og Búddha jarðarinnar. Í sömu athöfn sem fór fram í Royal Teton-athvarfinu var embætti Heimskennarans fært drottni Jesú og ástfólgnum vini hans og lærisveini heilögum Frans [sem nú heitir] (Kúthúmi) en það embætti var áður í höndum Maitreya. Í júlí, 1958, tók Drottinn Lantó við chohan-meistaratign á öðrum geisla sem áðu hafði verið í höndum Kúthúmi, og ástkær Nada tók við embætti chohan-meistara sjötta geisla sem hafði verið í höndum Jesú á fiskaöld þar sem hann var einnig æðsti stjórnandi.

Saint Germain með Porsja tók við stjórn vatnberaaldarinnar 1. maí, 1954. Þó að Maitreya sé fulltrúi hins kosmíska Krists og Búddha jarðarinnar gegnir Jesús embætti hins einstaklingsbundna Krists sem mikilfengleg eftirbreytni manns eigin heilags Krists-sjálfs.

Fulltrúar í heiminum

Drottinn Gátama er í forsæti sem æðsti stjórnandi Shamballa, nú á ljósvakasviðinu, sem jarðbundna athvarfið hefur horfið til. Í gegnum aldirnar hafa boðberar bræðralagsins, þekktir sem óþekktir, viðhaldið jafnvægi logans (náttúrunnar) í efnisáttundinni fyrir Búddha í Shamballa. Þannig hélt Jesús, sem smurður boðberi drottins Maitreya, hins kosmíska Krists, opnum gáttum í gegnum sitt helga hjarta fyrir ljós föðurins sem Maitreya, Gátama og Sanat Kumara eru fulltrúar fyrir til að rótfesta ljósið í hjörtum mannfjöldans á jörðunni.

Drottinn Jesús Kristur skilgreindi embætti sitt í efnisáttundinni samkvæmt kosmískum lögmálum þegar hann sagði: „Meðan ég er í heiminum, Ég ER sá sem ÉG ER, Orðið sem varð hold, er ég ljós heimsins. [2] Það var þessi festing ljóss ÉG ER-nærverunnar í hjartaorkustöð hans sem gerði Jesú kleift að taka á sig hnattkarma, „syndir heimsins,“ til þess að sálir ljóssins gætu fylgt honum á vegi Krists-fyllingarinnar uns þær skyldu einnig bera ljós sonar Guðs í musterum sínum.

Sjá einnig

Gátama Búddha

Sanat Kumara

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path, 4. kafli.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

  1. Elizabeth Clare Prophet, The Opening of the Seventh Seal: Sanat Kumara on the Path of the Ruby Ray, 2. kafli.
  2. Jóhannes 9:5.