Soul mate/is: Difference between revisions
No edit summary |
No edit summary Tags: Mobile edit Mobile web edit |
||
Line 4: | Line 4: | ||
Skilgreiningin á sálufélaga er sá sem þú ert að vinna með að verkefni sem er hluti af því að uppfylla þörf fyrir því að öðlast stjórn á einni af sjö [[orkustöðvunum]]. Nánar tiltekið, sálufélagi þinn væri sá sem þú ert að vinna með að því að beina orku Alfa og Ómega í ákveðna orkustöð, og tilsamans sameinið þið krafta ykkar til að mynda guðlega heild innan þessarar orkustöðvar. | Skilgreiningin á sálufélaga er sá sem þú ert að vinna með að verkefni sem er hluti af því að uppfylla þörf fyrir því að öðlast stjórn á einni af sjö [[orkustöðvunum]]. Nánar tiltekið, sálufélagi þinn væri sá sem þú ert að vinna með að því að beina orku Alfa og Ómega í ákveðna orkustöð, og tilsamans sameinið þið krafta ykkar til að mynda guðlega heild innan þessarar orkustöðvar. | ||
Þegar þú finnur manneskju sem þú | Þegar þú finnur manneskju sem þú átt samleið með til að inna af hendi göfugt verk, þá er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að jafnvel þótt það sé sálufélagssamband, þá þýðir það ekki að það sé sjálfkrafa tilskipun frá lífinu eða frá forlögunum um að því sé ætlað að vera ástarsamband. Maður getur lokið verkefninu og verið tilbúinn fyrir næstu vígslu í næstu orkustöð sem felur í sér alveg nýjan vinahóp og kannski annan sálufélaga. | ||
Tengsl sálufélaga skapa góð bróður/systursambönd, góð fjölskyldutengsl og góð [[hjónabönd]]. Þessi sambönd hafa eiginleika sálarspeglunar; ákveðinn þátt fullnægingar er að finna. Reyndar gætirðu verið miklu líkari sálufélaga þínum en tvíburaloga þínum. Þó að þú værir andstæða tvíburalogans þíns, gætir þú verið hliðstæða sálufélaga þíns. Þetta skapar hamingjusöm, samfelld, frjósöm sambönd. | Tengsl sálufélaga skapa góð bróður/systursambönd, góð fjölskyldutengsl og góð [[hjónabönd]]. Þessi sambönd hafa eiginleika sálarspeglunar; ákveðinn þátt fullnægingar er að finna. Reyndar gætirðu verið miklu líkari sálufélaga þínum en tvíburaloga þínum. Þó að þú værir andstæða tvíburalogans þíns, gætir þú verið hliðstæða sálufélaga þíns. Þetta skapar hamingjusöm, samfelld, frjósöm sambönd. |
Revision as of 10:16, 17 December 2024
Sálufélagi er samkvæmt orðanna hljóðan félagi sálarinnar. Sálin er eitthvað alveg aðskilin frá hvítum eldlíkamanum, hvítum eldkjarna ÉG ER-Nærverunnar. Svo hugtakið „sálufélagi“ tengist sameiginlegri þjónustu og köllun á vegferðinni sem maðir gæti sinnt með einhverjum öðrum en tvíburaloganum.
Skilgreiningin á sálufélaga er sá sem þú ert að vinna með að verkefni sem er hluti af því að uppfylla þörf fyrir því að öðlast stjórn á einni af sjö orkustöðvunum. Nánar tiltekið, sálufélagi þinn væri sá sem þú ert að vinna með að því að beina orku Alfa og Ómega í ákveðna orkustöð, og tilsamans sameinið þið krafta ykkar til að mynda guðlega heild innan þessarar orkustöðvar.
Þegar þú finnur manneskju sem þú átt samleið með til að inna af hendi göfugt verk, þá er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að jafnvel þótt það sé sálufélagssamband, þá þýðir það ekki að það sé sjálfkrafa tilskipun frá lífinu eða frá forlögunum um að því sé ætlað að vera ástarsamband. Maður getur lokið verkefninu og verið tilbúinn fyrir næstu vígslu í næstu orkustöð sem felur í sér alveg nýjan vinahóp og kannski annan sálufélaga.
Tengsl sálufélaga skapa góð bróður/systursambönd, góð fjölskyldutengsl og góð hjónabönd. Þessi sambönd hafa eiginleika sálarspeglunar; ákveðinn þátt fullnægingar er að finna. Reyndar gætirðu verið miklu líkari sálufélaga þínum en tvíburaloga þínum. Þó að þú værir andstæða tvíburalogans þíns, gætir þú verið hliðstæða sálufélaga þíns. Þetta skapar hamingjusöm, samfelld, frjósöm sambönd.
Eitt mesta afrek allra tíma gerðu hjón sem voru ekki tvíburalogar en þeirra eigin tvíburalogar voru stignir upp til himna og því fær um að aðstoða þau við verkefni sín. María guðsmóðir og heilagur Jósef, útnefnd af Guði til að ala önn fyrir Kristi, nutu aðstoðar Rafaels erkiengils, hinnar guðlegu uppfyllingar (maka) Maríu, og ástkærrar Porsju, gyðju réttlætisins, uppfyllingar (maka) Saint Germains (sem endurfæddist sem Jósef).
Líf þeirra er lifandi sönnun þess að sálir sem koma saman tileinkaðar í þjónustu við Guð og færa fram hið guðdómlega sveinsbarn geta náð árangri með aðstoð tvíburaloganna. Þessi hjálp, þegar hún er kölluð fram, er alltaf væntanleg frá hinni guðlegu nærveru tvíburaloga þeirra, jafnvel þó að tvíburalogarnir þeirra hafi ekki enn stigið upp til himna.
Sjá einnig
Til frekari upplýsinga
Elizabeth Clare Prophet, Soul Mates and Twin Flames: The Spiritual Dimension of Love and Relationships.
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Attainment, 1. kafli, “Twin Rays.”
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Attainment, 1. kafli, “Twin Rays.”