Temple of Peace/is: Difference between revisions
(Created page with "Category:Ljósvakaathvörf") |
(Created page with "Hinir innvígðu sem leggja stund á sjötta geisla nám í Friðarhofinu undir vökulli leiðsögn elóhímanna sem eru í forsvari. Þeir sem eru að búa sig undir að endurfæðast á sjötta geisla verja tíma hér áður en þeir endurfæðast til að læra hvernig elóhímarnir beina friðarloganum í gegnum heilagan anda í náttúrunni og hvernig starfsemi formsmiðanna fer fram. Áður en Kúthúmi endurfæddist sem heilagur Frans, bað hann...") |
||
| Line 18: | Line 18: | ||
== Starfsemi athvarfsins == | == Starfsemi athvarfsins == | ||
Hinir innvígðu sem leggja stund á [[sjötta geisla]] nám í Friðarhofinu undir vökulli leiðsögn elóhímanna sem eru í forsvari. Þeir sem eru að búa sig undir að endurfæðast á sjötta geisla verja tíma hér áður en þeir endurfæðast til að læra hvernig elóhímarnir beina friðarloganum í gegnum [[heilagan anda]] í náttúrunni og hvernig starfsemi [[formsmiðanna]] fer fram. Áður en [[Kúthúmi]] endurfæddist sem [[heilagur Frans]], bað hann: „Drottinn, gerðu mig að verkfæri friðar þíns!“ Hann lærði hjá hinum mikla vígslumanni, [[drottni Maitreya]], í [[athvarfi Maitreya í Himalajafjöllum]]; en áður en hann tók á sig efnislíkama var hann færður í Friðarhofið þar sem þroski hans á friðarloganum var reyndur með skipulögðum vígsluskrefum sem framkvæmd eru undir verndarvæng helgivaldi þess athvarfs. | |||
Outside the great Hall of Peace, there are three other buildings (at the nine, twelve, and three o’clock lines). Here the '''Brotherhood of Peace''' works diligently, drawing up plans for the implementation of peace throughout the world. Volunteers who study there while their body temples sleep or who are between embodiments come to the retreat to study the plans for peace, and here they take vows before Peace and Aloha to go forth as their representatives in the world of form to carry the flame of peace and to implement the plans of the Brotherhood of Peace. | Outside the great Hall of Peace, there are three other buildings (at the nine, twelve, and three o’clock lines). Here the '''Brotherhood of Peace''' works diligently, drawing up plans for the implementation of peace throughout the world. Volunteers who study there while their body temples sleep or who are between embodiments come to the retreat to study the plans for peace, and here they take vows before Peace and Aloha to go forth as their representatives in the world of form to carry the flame of peace and to implement the plans of the Brotherhood of Peace. | ||
Revision as of 12:10, 14 July 2025

Friður og Alóha beina orku magagrófarorkustöðvar plánetunnar í athvarfi sínu sem er staðsett í ljósvakasviðinu uppi yfir Hawaii-eyjum. Frá Friðarhofinu geisla elóhímarnir ræmum af Alheims-Kristsfriði yfir alla jörðina sem net Alheims-Krists vitundar. Auk fjólubláa og gullna loga eru leyndir geislar hins Máttuga Kosmos í brennidepli í þessu athvarfi.
Lýsing
Kraftsvið Friðarhofsins má sjá fyrir sér sem fjólublátt og gulllitað hjarta með segulkraftsviði úr til skiptis fjólubláum og gulllituðum sammiðja hjartalaga hringjum. Loginn í miðju hjartans er logi Alheims-friðar Krists. Þetta kraftsvið er fyrir ofan hofið.
Maður gengur inn í ljósvakahofið í ljólsvakalíkamanum og strax finnst eilíf nærvera friðarlogans. Inngangsforstofan liggur inn í kringlótt herbergi; tíu súlur prýða hringlaga veggina, sem endurspegla púls leyndra geisla sem eru rótfestir í miðju herbergisins. Altari hinna leyndu geisla er grafið niður í miðju herbergisins. Þrjár tröppur liggja að hringlaga stíg sem umlykur altarið þar sem hinir leyndu geislar eru rótfestir.
Við höldum fram hjá altari leyndu geislanna og niður gang og göngum niður stiga sem liggur að hinni miklu Friðarhöll. Hún er í raun í miðju hofsins, byggingarlega sniðin eftir höllinni sem við gengum í gegnum, nema í stærri mælikvarða. Þar eru tólf súlur á hringveggnum, jafnt dreifðar á hringlaga veggjunum, sem endurspegla fjólubláa og gullna liti Friðarguðsins sem eru rótfestir í miðjum pallinum.
Við göngum niður þrjú þrep og göngum í kringum brennidepilinn og komum að hásætum Friðar og Alóhu. Milli tólf súlna sem prýða hliðar musterisins eru tólf dyr sem leiða að tólf hringlaga forstofum, þar af eitt herbergið sem við gengum í gegnum rétt í þessu sem leyndu geislarnir beinast að. Logi friðarins, sem er í miðpunkti Krists-vitundarinnar, er í miðju musterisins, hásæti Friðar og Alóhu við tólf tíma línu sólskífunnar og leyndu geislarnir við sex tíma línuna.
Starfsemi athvarfsins
Hinir innvígðu sem leggja stund á sjötta geisla nám í Friðarhofinu undir vökulli leiðsögn elóhímanna sem eru í forsvari. Þeir sem eru að búa sig undir að endurfæðast á sjötta geisla verja tíma hér áður en þeir endurfæðast til að læra hvernig elóhímarnir beina friðarloganum í gegnum heilagan anda í náttúrunni og hvernig starfsemi formsmiðanna fer fram. Áður en Kúthúmi endurfæddist sem heilagur Frans, bað hann: „Drottinn, gerðu mig að verkfæri friðar þíns!“ Hann lærði hjá hinum mikla vígslumanni, drottni Maitreya, í athvarfi Maitreya í Himalajafjöllum; en áður en hann tók á sig efnislíkama var hann færður í Friðarhofið þar sem þroski hans á friðarloganum var reyndur með skipulögðum vígsluskrefum sem framkvæmd eru undir verndarvæng helgivaldi þess athvarfs.
Outside the great Hall of Peace, there are three other buildings (at the nine, twelve, and three o’clock lines). Here the Brotherhood of Peace works diligently, drawing up plans for the implementation of peace throughout the world. Volunteers who study there while their body temples sleep or who are between embodiments come to the retreat to study the plans for peace, and here they take vows before Peace and Aloha to go forth as their representatives in the world of form to carry the flame of peace and to implement the plans of the Brotherhood of Peace.
Þeir sem hafa ferðast til Hawaii-eyja geta vottað um þann mikla frið sem þeir finna hér, sem nær yfir allt Kyrrahafið.
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Temple of Peace.”