Meta/is: Difference between revisions
No edit summary |
No edit summary |
||
| Line 12: | Line 12: | ||
== Eftir uppstigninguna == | == Eftir uppstigninguna == | ||
Síðan þá hefur Meta kennt vísindi lækninga og notkun ljósgeisla til | Síðan þá hefur Meta kennt vísindi lækninga og notkun ljósgeisla til að kalla fram heilun í [[Special:MyLanguage/etheric cities|ljósvakaborgunum]] þar sem hún hefur einnig vígt lækningahof. Þeir sem stunda nám þar á milli endurfæðinga hafa tækifæri til að draga til sín lækningakraft hennar og nota þá kennslu sem þeir fá í næstu jarðvistum sínum sem vísindamenn, læknar eða græðarar. | ||
Meta þjónaði undir [[chohan-meistara]] fimmta geislans og tók síðan við því embætti þegar kennari hennar, sem var kosmísk vera, fór til að þjóna á æðri sviðum alheimsins. Eftir að hafa gegnt þessu embætti í nokkur þúsund ár færði hún nýlega ábyrgð embættisins yfir á [[Hilaríon]]; þannig gat hún snúið aftur með Sanat Kumara til Venusar árið 1956. | Meta þjónaði undir [[chohan-meistara]] fimmta geislans og tók síðan við því embætti þegar kennari hennar, sem var kosmísk vera, fór til að þjóna á æðri sviðum alheimsins. Eftir að hafa gegnt þessu embætti í nokkur þúsund ár færði hún nýlega ábyrgð embættisins yfir á [[Hilaríon]]; þannig gat hún snúið aftur með Sanat Kumara til Venusar árið 1956. | ||
Revision as of 11:20, 27 November 2025
Hinn „uppstigni kvenmeistari Meta“ þjónar á fimmta geislanum (græna geislanum) til lækninga, vísinda og sannleika. Hún er dóttir Sanat Kumara og kvenmeistarans Venusar, helgiveldis plánetunnar Venusar (plánetunnar). Hún fylgdi föður sínum til jarðar þegar hann kom til að aðstoða við þróun þessarar plánetu.
Fyrri jarðvistir
Á Atlantis þjónaði hún í lækningahofinu og nærði lækningarlogann sem nú er beint frá ljósvakasviðinu uppi yfir Nýja-Englandi.
Á lokajarðvist hennar bjó hún í Persíu með tvíburaloga sínum og þremur börnum þeirra, þar af var Cha Ara eitt þeirra. Þótt tvíburaloginn hafi farið sína leið og stigið upp í næsta jarðlífi, þá lifðu Meta og þrjú börn þeirra í sömu efnislíkömum í nokkur hundruð ár áður en þau stigu upp að endingu.
Eftir uppstigninguna
Síðan þá hefur Meta kennt vísindi lækninga og notkun ljósgeisla til að kalla fram heilun í ljósvakaborgunum þar sem hún hefur einnig vígt lækningahof. Þeir sem stunda nám þar á milli endurfæðinga hafa tækifæri til að draga til sín lækningakraft hennar og nota þá kennslu sem þeir fá í næstu jarðvistum sínum sem vísindamenn, læknar eða græðarar.
Meta þjónaði undir chohan-meistara fimmta geislans og tók síðan við því embætti þegar kennari hennar, sem var kosmísk vera, fór til að þjóna á æðri sviðum alheimsins. Eftir að hafa gegnt þessu embætti í nokkur þúsund ár færði hún nýlega ábyrgð embættisins yfir á Hilaríon; þannig gat hún snúið aftur með Sanat Kumara til Venusar árið 1956.
Þjónusta hennar nú á dögum
Í fyrirlestri sem fluttur var 30. desember 1974 sagði uppstigni meistarinn Hilaríon okkur að Meta hefði boðið sig fram til að taka þátt í þróun jarðarinnar. Hann sagði: „Meta mun þá dvelja á ljósvakasviðum plánetunnar og þjóna í hinum ýmsu lækningarhofum. Köllun hennar er að þjóna þörfum barna.“ Hann sagði að Meta yrði til staðar til að hjálpa mæðrum og feðrum sem eiga í vandræðum með börn sín og forða þeim frá skaðlegum áhrifum. Hún nýtur aðstoðar presta hins helga elds sem hafa gætt lækningarlogans í þúsundir ára og munu koma að rúmstokki barna til að svara kalli okkar.
Meta vinnur með öllum lækningarmeisturum og englasveitum. Hún ber í vitund sinni hina óflekkuðu ímynd hreinleikans og tæra fullkomnun kristalsmótsins fyrir hvert barn á jörðinni og fyrir þau sem eiga eftir að endurfæðast.
Hilaríon mælti með því að við leitum til Meta um að færa kristalmótið fyrir börnin okkar. Hann sagði:
Þið getið kallað eftir því að lækningarhugarmótið og kristall hinnar óflekkuðu ímyndar jarðtengist í ljósvakalíkama þeirra, jafnvel núna á þessari stundu. Ákallið Metu á hverjum degi og þið munuð sjá hvernig börnin ykkar munu varðveita kristalskýrleika Guðs-vitundarinnar sem þau höfðu þegar þau komu fram á vettvang heimsins.[1]
Nemar geta einnig leitað til Meta til aðstoðar við að skýra sannleikann, skilgreiningu á veruleikanum og afhjúpa falskar hugmyndir sem settar eru fram í nafni sannleikans.
Sjá einnig
Heilunarathvarf Metu uppi yfir Nýja Englandi
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Meta.”
- ↑ Hilarion, “Dispensations from the Healing Masters” („Ívilnun frá lækningarmeisturunum“), 30. desember 1974.