Idolatry/is: Difference between revisions
No edit summary |
No edit summary |
||
| Line 4: | Line 4: | ||
Að hengja sig við formið, tilbeiðsla þess forms, sviptir okkur einstaklingsbundið þessu Guðs-valdi. Þannig komumst við að því að ótrúa kynslóðin<ref>Matt 12:39.</ref> er málamiðlun hins helga elds og misnotkunar hans í [[Special:MyLanguage/chakra|orkustöðvunum]]. Við komumst að því að átrúnaðargoðadýrkandi kynslóðin er að afhenda öðrum ábyrgð á frelsi okkar, hvort sem það er [[Special:MyLanguage/Jesus Christ|Jesús Kristur]] eða [[Special:MyLanguage/Henry Kissinger|Henry Kissinger]]. Að afhenda það öðrum er að gangast að átrúnaðargoðadýrkun. | Að hengja sig við formið, tilbeiðsla þess forms, sviptir okkur einstaklingsbundið þessu Guðs-valdi. Þannig komumst við að því að ótrúa kynslóðin<ref>Matt 12:39.</ref> er málamiðlun hins helga elds og misnotkunar hans í [[Special:MyLanguage/chakra|orkustöðvunum]]. Við komumst að því að átrúnaðargoðadýrkandi kynslóðin er að afhenda öðrum ábyrgð á frelsi okkar, hvort sem það er [[Special:MyLanguage/Jesus Christ|Jesús Kristur]] eða [[Special:MyLanguage/Henry Kissinger|Henry Kissinger]]. Að afhenda það öðrum er að gangast að átrúnaðargoðadýrkun. | ||
[[Special:MyLanguage/El Morya|El Morya]] hefur rætt um þegar hann | [[Special:MyLanguage/El Morya|El Morya]] hefur rætt um þegar hann skoraði skurðgoðadýrkun á hólm á æviskeiði sínu sem [[Abraham]]: | ||
<blockquote> | <blockquote> | ||
Revision as of 20:58, 29 December 2025
Átrúnaðargoðdýrkun er að úthluta öðrum Guðs-loganum sem er innra með manni sjálfum og síðan tilbiðja hinn sama í stað þess að tilbiðja logann innra með sjálfum sér. Átrúnaðargoðadýrkun er að binda trúss sitt við þann sem hefur náð tökum á Guði og Kristi. (Auðvitað getur það líka verið upphafning andkrists í öðrum í samræmi við það sem maður hefur upphafið sína eigin sjálfshyggju (egó) í sjálfum sér.)
Að hengja sig við formið, tilbeiðsla þess forms, sviptir okkur einstaklingsbundið þessu Guðs-valdi. Þannig komumst við að því að ótrúa kynslóðin[1] er málamiðlun hins helga elds og misnotkunar hans í orkustöðvunum. Við komumst að því að átrúnaðargoðadýrkandi kynslóðin er að afhenda öðrum ábyrgð á frelsi okkar, hvort sem það er Jesús Kristur eða Henry Kissinger. Að afhenda það öðrum er að gangast að átrúnaðargoðadýrkun.
El Morya hefur rætt um þegar hann skoraði skurðgoðadýrkun á hólm á æviskeiði sínu sem Abraham:
Þess vegna, elskurnar mínar, er ég kallaður Abraham, vinur Guðs.[2] Ég býð ykkur að verða vinir Guðs, að varpa fyrir róða átrúnaðargoðum ykkar, rétt eins og ég varpaði fyrir róða skurðgoðum Tara, föður míns.[3] Ég þorði að skora á alla sem ekki settu sig undir einn Guð og einn.DROTTINN.
Varpið því fyrir róða átrúnaðargoðum ykkar! Ég tala til allra ykkar sem komið nær og fjær. Átrúnaðardýrkun mannsins og mannlegs sjálfs getur ekki staðist á degi hins máttuga lampa Guðs! Þekkið því kraft ljóssins, styrk hins heilaga elds í ofninum, kæru vinir.
Þess vegna er hinn helgi eldur tiltækur, en hann er ekki aðgengilegur þér þegar þið stundið átrúnaðargoðadýrkun á neinum manni eða neinum karakter, þar með talið persónuleika uppstigins meistara. Það er fyrir Ljósinu sem þið beygið ykkur og fyrir Alheims-ljósinu. Talið því ekki um mikilleika þessa eða hins, svo að þið verðið þess ekki áskynja að þið standið utan þessara vébanda.
Þetta er þá innri ganga með Guði. Sviptið því af ykkur þessa nótt sjálfsdýrkun ykkar, sjálfsdýrkun! Verið afklædd og verið þess vitandi að skjöldur Drottins er ykkar mikla umbun[4] þegar þið haldið ykkur fast við Drottin og Drottin einan. Þekkið afmáun sjálfsins og þekkið síðan birtingu Guðs-sjálfsins í ykkur.[5]
Heimildir
Elizabeth Clare Prophet, 1. júlí, 1976.