Náttúruverur

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:32, 3 June 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Náttúruverur jarðar, lofts, elds og vatns; náttúruandar sem eru þjónar Guðs og manna á efnissviðinu til að koma á og viðhalda efnissviðinu sem vettvang fyrir þróun sálarinnar. Náttúruverur sem þjóna frumþætti eldsins eru kallaðar eldandar (salamöndrur); þær sem þjóna frumþætti loftsins, loftandar (sylph); þær sem þjóna frumþætti vatnsins, vatnadísir (undine); þær sem þjóna jörðinni, dvergar (gnome).

Órómasis og Díana annast eldinn og alla eldanda; Neptún og Lúara stýra vatnadísum og vötnunum miklu; Aríes og Þór hafa umsjón með hinum þokkafullu loftöndum og órekjanlegum sviðum loftsins; og Virgó og Pellör eru móðir og faðir jarðar og dverganna.

Lýsing á náttúruverunum

Eldandar eru að minnsta kosti þriggja metra háir blaktandi logar, loginn breytist stöðugt — úr eldhvítu ljósi í alla liti regnbogans. Þetta er vera í líki manns sem logar allur, er stöðugt á hreyfingu, með mjög skýra sýn sem skín úr tveimur eldlegum augum.

Virgó og Pellör lýsa þannig dvergunum:

Verurnar sem þið kallið dverga, en mynd þeirra hefur gerð dvergvaxin í sögunni um Mjallhvít og dvergana sjö og í öðrum ævintýrum, eru í raun frá 8 cm háum álfum sem leika sér í grösunum, til 90 cm hárra dverga, allt til tröllanna sem finna má í hinum stóru fjallasölum fjallkonungsins og drottningarinnar sem Grieg glitti í og lýst er í tónverki hans sem hann tileinkar hinum sérstöku dvergum Noregs og Norðmanna.

Það eru risar á meðal höfuðskepna jarðar. Þetta eru öflugar verur sem ráða yfir eldi frumeindanna og sameindanna og halda jafnvægi fyrir heimsálfurnar í gegnum hamfarir, flóð og elda. Elóhím skapaði þessa þróun til að viðhalda vettvangi hinnar miklu tilraunar í frjálsum vilja sem Guð vígði börnum sínum sem hann sendi út í plánetukerfin til að vera frjósöm í Krists-vitundinni og margfalda birtingu Guðs í afkvæmum sínum og í verkum handa þeirra.[1]

Starf náttúruveranna

Kúthúmi, sem hafði mikið samneyti við náttúruverulífið á æviskeiði sínu sem heilagur Frans, fjallar um verk náttúruveranna í riti sínu Corona Class Lessons:

Líf Guðs er til staðar í jarðefna-, jurta- og dýraríkinu og um allan hinn ósýnilega heim náttúruandanna – ríki sem iðar af „frumþáttalífi“, glaðværu masi álfa og ljúflinga, dverga að störfum (þó ekki alltaf blístrandi!), loftöndum sem umforma skýin og veltast um í vindunum, vatnadísir skvettandi í öldunum og dansandi eldöndum í eldhringjum regnbogageisla.

Dvergar

Dverga bera svo mikið vægi af karma mannkynsins að þeir sjálfir taka að sér hátterni mannsins, verða gremjulegir og pirraðir þar til ljúfur kennari birtist (eins og blessuð guðsmóðirin í gervi Mjallhvítar) til að lyfta þeim ljúflega upp metaskálar jarðneskrar þróunar sinnar sem er í höndum yfirstjórnenda þeirra, Virgó og Pellör, hinar meistaralegu verur sem viðhalda jafnvægi náttúrukraftanna á jörðinni. Dvergarnir þjóna á efnissviðinu rétt hulin blæju (litróf) venjulegrar sýnar. Hér eru þau kölluð frumþættir jarðar. Stundum komið þið auga á þá úr augnkróknum - þá haldið þið að þið hljótið að hafa ímyndað ykkur það!

Loftandar

Loftandar þjónusta himinsviðið og sjá um hreinsun loftsins og viðhalda loftþrýstingskerfunum. Þetta kemur allt fram í alkemískum breytingum á veðri og hringrásum ljóstillífunar og úrkomu. Þessar náttúruverur sem eru skapaðar af meistarans höndum þenja út og draga saman loftkennda „líkama“ sína úr örsmæð til himinhæða. Þeir halda ávallt við loga hugarsviðsins sem samsvarar frumþætti loftsins - einn af þáttunum fjóru sem alkemistar til forna skilgreindu. Þess vegna eru loftandar þekktir sem frumþáttur loftsins. Þeir bregðast við tilskipunum yfirstjórnanda síns, Aríes og Þórs.

Dulrænt bræðralag forvísindamann smættaði uppsetningu jarðlíkamans og efnafræði jarðarinnar í fjögur aðgreind stig eða eiginleika efnis — elds, lofts, vatns og jarðar — leituðust við að stjórna náttúruöflunum sem fól í sér hið óræða markmið að umbreyta óæðri málmum í gull — var í raun ekki langt frá æðri sannleika.

Fjórir lægri líkamar mannsins tengjast svokölluðum fjórum efnissviðum sem kosmísk öfl þjóna með því að beina kröftum sínum að minna þróuðum náttúruverum. Reyndar gæti ykkur þótt athyglisvert að vita til þess að elóhímarnir sköpuðu náttúruverurnar til að þjóna sonum og dætrum Guðs þar sem þau leitast einnig við að ná tökum á jarðneskum vísindum og ríkja yfir tíma og rúmi (bæði því innra og ytra). Þar sem maðurinn leitast við að sigrast á heimi sínum í sjávarvötnunum og ljósahafinu, í orkutíðni efniseinda og yfirskilvitlegra sviða með því að sannreyna guðlega stjórn sína á alheiminum skref fyrir skref á öllum hliðum hinna fjögurra náttúruríkja án þess að hann sé sér þess vitandi er hann er í samstarfi við náttúruverurnar sem hafa haldið öllu undir stjórn í milljónir ára.

Eldandar

Eldandar geyma leyndarmál eldsins sem samsvarar ljósvakalíkamanum. Nákvæmlega á hvaða tímapunkti hinn efnislegi eldur, sem er óáþreifanlegur og erfiðast að stjórna, verður hinn helgi eldur er leyndardómur sem heilagur andi kennir, en hið helgu hjarta dýrlinganna greina, sem kjarnorkuvísindamenn hafa aðeins pata af en er í góðri vörslu í höndum eldandanna.

Í hlýðni og kærleiksríkri þjónustu við yfirstjórnendur sína, Órómasis og Díönu, nær ríki þeirra frá kjarna hverrar frumeindar og frumu lífsins til kjarna jarðar. Þau eru samúðarfullir og snilldar kennarar sem eru tilbúin til að kenna mannkyninu hagnýtar aðferðir til að virkja alheimsorkuna — frá hjarta rafeindarinnar til hjarta sólarinnar.

Vatnadísir

Náttúruverur vatnsins, sem lýst er í sögnum um hinar seiðandi en heillandi hafmeyjur, hafa innblásið margar sögur um rómantík milli mannheimsins og náttúruveraríkisins. „Að fara yfir“ frá náttúruveraríkinu í mannheiminn er þekkt fyrirbæri. Það er hurð sem var opin en hefur verið lokuð aftur nema í ákveðnum tilvikum hefur sérstökum náttúruverum verið veitt sú undanþága að fá að halda áfram vegferð sinni á þróunarbraut mannsins sökum dýrlegrar dyggðar sinnar og afreka með því að fæðast innan mennskra fjölskyldna og öðlast þar með að lokum guðlega neistann.

Oftar færast náttúrverur yfir í dýraríkið og flýta fyrir þróun sinni með því að þjóna manninum í gegnum mjög greindar dýrategundir eins og fíla, hvali, hnísur og jafnvel sérstaklega ástríka og þýða hunda eða hesta.

Minning kynþáttarins um slík atvik nær aftur til hinna þokukenndu sokknu meginlanda Lemúríu og Atlantis. Í nútímanum er þessari minningu haldið á lofti sem goðsögnum eða ævintýrum, munnmælasögum eða tilbúningi. Ef hún yrði tekin alvarlega myndi það hrista upp í og koma þeim um koll sem byggja sjálfsvirðingu og lífsýn sína á annarri heimsmynd ef þeir ættu að taka alvarlega þessa skynjun „undirvitundarinnar“ sem er afneitað alls staðar nema í leikriti Shakespeare, Draumur á Jónsmessunótt.

Engu að síður heldur alvörubundið starf vatnadísanna áfram þar sem höfin og árnar og vötnin, straumarnir, lækirnir og lækjarsprænurnar og regndroparnir eiga öll þátt í myndun og endurmyndun líkama plánetunnar okkar og mannsins en það er algjörlega undirorpið náttúruverunum.

Vatnadísirnar, sem einnig hlæja og leika sér í öldunum og fossunum, fylgja ástúðlega fordæmi yfirstjórnanda síns. Neptúnus er konungur djúpsins og maki hans, Lúara, er móðir sjávarfallanna, stjórnar hringrásum frjósemi og vatnsþáttarins þar sem hann hefur áhrif á geðlíkamann (þekktur sem vatns-, tilfinninga- eða löngunarlíkaminn) og samskipti mannskynsins og geðbrigði á borð við gleði, sorg, sektarkennd, reiði og ást í gegnum geðsviðið sem hefur sterk áhrif á sameiginlega undirvitund kynstofnsins.

Vitund náttúruveranna

Það er mikill munur á meðvitund steinefna-, grænmetis-, dýra- og mannaríkisins sem fjórar tegundir náttúruvera þjónusta. Rétt eins og líkami mannsins er ekki sjálfsmeðvitaður í svefni býr steinefnaríkið ekki yfir sjálfsvitund heldur birtir ákveðinn „steinefnaþéttleika“ sem nátúruveralífið hefur hlaðið inn í efnið.

Til dæmis, þó að tilvist dverganna sé vart almennt viðurkennd á Vesturlöndum – eru þeir þó þekktir á Írlandi sem „litla fólkið“ eða sem uppátækjasamir álfar sem kallaðir eru búálfar – þessar verur færa steinefnaríkinu dásamlegan andlegan ljóma sem leikur um meðvitund náttúruverunnar beint frá sólforeldrum þessa kerfis — Helíos og Vesta. Dvergunum er falið ábyrgðin á því að úthluta hið guðlega mynstur fyrir hvern stein, gimstein og frumþátt steinefnalífsins. Að sama skapi eru líka til margar englaverur ljósvakasviðsins (frá tívaþróuninni) sem bera ábyrgð á því að blása lífsmarki í hina guðlegu hönnun náttúrurnnar.

Tré og plöntur búa að sjálfsögðu hvorki yfir mennskri vitund né vitund náttúruveranna en háþróaðir tívar sem vaka yfir þeim veit þeim meiri lífsvitund en þeirri sem steinefnaríkið býr yfir.

Lífgun tívanna á trjám og plöntum sem stýra tilteknum náttúruverum jurta sem skiptast niður í gróðurflokka flórunnar – og eru til í svo óteljandi fjölda að þeir hlúa bókstaflega að öllu sem grær – sem skýrir þá óneitanlegu staðreynd að fólk sem stillir andlegar miðstöðvar sínar inn á náttúruríkið getur talað við tré og plöntur og fengið lífræna skynsvörun við þeim vitundarvottum sem miðlað er til plöntunnar í gegnum „taugakerfi“ hennar. Lífskrafturinn í plöntum og dýrum hefur verið greindur í Kirlian ljósmyndum sem sýnir áru alheimsorkunnar, rafsegulsvið sem einnig er er finna í öllum lífverum, þar á meðal hjá manninum.

Þegar við stígum upp mælistiku lífstjáningar frá gróðri til dýralífs, uppgötvum við með samanburði dýrategunda að samstilltar hópsálir þeirra sýna eiginleika æðri greindar. Mörg dýr búa yfir næstum mannlegum eiginleikum og ískyggilegum skilningi, næstum dulrænum í birtingu sinni. Þetta á sérstaklega við um ákveðnar hunda- og hestategundir og er áberandi á meðal fíla og mannapa.

Það er ekki laust við að sæspendýr, fiskar, selir og mörgæsir séu dásamlega vel greind og frekari rannsóknir næmra vísindamanna mun leiða í ljós stórkostlega samstillingu, í gegnum hjarta alls lífs, alls staðar í náttúruríkinu. Skordýrafræðingum kemur sífellt á óvart undur maursins; og hvatningarorð spekinganna, „Far þú til maursins, letingi...!“[2] gefur til kynna að maðurinn hafi mikið að læra af hinum sannkölluðu leyndardómum náttúrunnar.[3]

Áhrif mannsins á náttúruverurnar

Mannkynið hefur gríðarleg áhrif á náttúruverulífið — til góðs eða ills. Náttúruverurnar eru mjög áhrifagjarnar; það er auðveldara að hafa áhrif á þær en börn. Til dæmis: Slæmar hugsanir og tilfinningar sem bærast með fólki í litlum bæ sem á í sífelldum fjölskylduerjum gæti leitt til þess að hvirfilbylur skelli á þeim bæ. Það er rétt! Hvirfilbylur getur myndast af hugsunum og tilfinningum fólksins í þeim bæ ef náttúrverurnar taka þær til sín. En það er hægt að hafa stjórn á loftöndunum og fá þá til að vinna í þágu barna Guðs.

Mark Prophet greinir frá reynsli sinni af samstarfi við náttúruverurnar:

Ég man að ég ók bíl nálægt Chicago-borg í Illinois. Og þegar við vorum komin í nágrenni við Chicago var allt svæðið svart af óveðursskýjum. Þetta var alger skelfingarvettvangur því í þessum óveðursskýjum voru stormsveipir og hvirfilbylir. Svo þegar við skynjuðum hina ógnvekjandi og ógnandi hættu sem steðjaði að borginni hófst allur hópurinn okkar í bílnum strax handa við að ná sambandi við anda loftsins.

Áður en við byrjuðum fóru stormarnir og vindarnir að ýlfra. Þeir vældu eitthvað hræðilegt og þeir grenjuðu eins og börn — maður heyrði það í vindinum. Við gáfum möntrufyrirmæli okkar og sungum fyrir náttúruverurnar og við kölluðum eftir að stormurinn leystist upp og það gerðist nákvæmlega eins og við kölluðum það fram. Óveðursskýin hurfu og borginni var bjargað frá hræðilegri eyðileggingu með ákalli til náttúruveranna.[4]

Þegar hjörtu okkar eru greypt í hjarta Guðs er ekkert um megn.

Kúthúmi ræðir um áhrif mannsins á náttúrverurnar:

Öll þessi yndislega sköpun sem er að hluta til gædd hinum guðlegu vitsmunum er álitið „ríki við fótskör“ Guðs og var maðurinn upphaflega látinn drottna yfir henni þar sem hann var birtingarmynd Guðs. Með saurgandi orkutíðni grimmdarinnar hefur náttúran tekið til sín ófullkomleika mannsins. Villimannseiginleikar frumskógardýra eru álitnir dýrslegir, en í raun og veru, þegar flett er ofan af sannleik lífsins og þegar akasha-ánnálarnir og plánetuáran eru lesin út í hörgul kemur í ljós að dýralíf jafnt sem náttúruverulíf gleypti upprunalega á sig grófar og stundum afskræmdar sviðsmyndir frá mannkyninu.

Villimennska, mannát, ofbeldi, hefnd og dráp áttu uppruna sinn þegar mannkynið var statt á sínu lægsta þróunarstigi og yfirfærðust þessir brestir til undirtegundanna í gegnum orkutitring (sem sannar hér að máttur fordæmisinsins getur líka verið versti kennarinn). Þess vegna verður segulmagn dýra í mönnum — oft dýrslegt, valdur að djöfullegri reiði — sem verður að endurleysa (þ.e. umbreyta með fjólubláa loganum) í viðleitni við að frelsa plánetuna.

Þetta getið þið gert nú þegar með áköfum áköllum til alheimsmóðurinnar Astreu til að virkja sverð og hring bláa logans. Hún er Elóhim fjórða geislans (persónugerð í austri sem Kalí) sem sker börnin sín laus úr viðjum illra álaga af völdum hefndarhyggju hinna föllnu engla. Með staðföstum, hjartnæmum möntrufyrirmælum lyftir fjólublái loginn bókstaflega byrðum hinnar mennsku vitundar af öllu náttúruveralífi. Það er ómissandi þáttur til að endurheimta fegurð náttúrunnar.

Ástfólginn Saint Germain og aðrir uppstignir meistarar hafa í ýmsum samböndum á æviskeiðum sínum verið í tengslum við náttúruveruríkið sem þróast í gegnum dýraríkið. Í sumum tilvikum skapaði þetta um síðir þörf fyrir inngrip þeirra fyrir hönd ákveðinna náttúruvera í dýraformi. Frelsun þessara blessuðu náttúruvera sem eru „fjötruð“ í þéttum líkama hefur oftar en einu sinni verið gjöf kærleika og fjólubláa elds hinna uppstignu til þessa hluta náttúruveralífs sem þeir höfðu áður verið í sambandi við.

Með útgeislun góðvildar, gleði og þakklætis mun öll náttúran að lokum ná óspilltu ástandi hins fullkomna aldingarðs Edens þar sem „Þá mun úlfurinn búa hjá lambinu og pardusdýrið liggja hjá kiðlingnum. Kálfur, ljón og alifé munu ganga saman...“[5] Lögmál hins villta frumskógar verður afnumið með krafti Krists og þeir menn sem eru svo lánsamir að vera áfram á þessari plánetu munu verða lifandi Kristir. Fyrir meðalgöngu þeirra verða allar náttúruverur leystar úr viðjum tímabundins dýraforms. Geislun guðdómlegrar ástar, sem rís upp í miklum slagkrafti, mun samstundis rjúfa og leysa upp tengsl þróaðra náttúruvera við sjálftakmarkandi dýramót og vitund.

Sum ykkar muna eftir því að hafa lesið um ást mína á fuglunum og skepnunum og að þau hafi komið óttalaus til mín. Hjartkæru vinir, í flestum dýrum er óttinn afleiðing eigin tilfinninga mannkyns sem er eða hefur verið þröngvað upp á dýrin í gegnum múgvitundina. Lífshvöt mannsins sem varðveist hefur frá forsögulegum tímum viðheldur brennandi löngun til sjálfsverndar. Minningar kynstofnsins frá fyrri kynnum af villidýrum heldur lífi í sjálfvirkum viðbrögðum þar sem maðurinn snýst aftur í varnarstöðu þegar hann skynjar nærveru ákveðinna villtra dýra.

HINGAÐ OG EKKI LENGRA

Með krafti Krists geta menn höfðað til hins mikla lögmáls lífsins til að frelsa sig frá þessum dulda ótta sem veldur firringu frá öllu náttúruveraríkinu. Við mælum ekki með kæruleysi í umgengni við villt dýr, því þar til að maðurinn hefur fullkomlega umbreytt öllum ótta og efa innra með í ást, væri fólki fyrir bestu að útsetja sig ekki á ótilhlýðilegan hátt fyrir hættum af dýralífi sem enn bregst við manninum frá lægstu stigum heimsvitundarinnar — því að synir og dætur Guðs sem hafa endurheimt guðlega færni sína eiga enn eftir að færa þeim loga upprisunnar.

Munið, hjartkæru vinir, aðeins þegar hin mikla Guðs-nærvera lífsins hefur afmáð allan ótta innra með ykkur sjálfum, sérstaklega undirvitundarinnar, mun lægri orkutíðni kóbraslöngunnar, ljónsins og allra tortímandi dýra víkja fyrir voldugum krafti hins sanna árangurs í Kristi. Þannig minnum við þá sem eru farnir að átta sig á því að þeirra eigin sjálfs-stjórn er lausnin að sigri allrar jarðþróunarinnar: „Sá sem kemur skikkan á sjálfum sér (fjórum lægri líkömum sínum) og hliðinu að eigin húsi (vitund sinni, líkamsmusteri og orkustöðvum) er meiri maður en borgarstjóri.“[6]

Karmísk byrði náttúruveranna

Jörðin gæti verið allt önnur ef náttúruverurnar væru ekki svona þrúgaðar af mengun og þunganum af karma mannkyns. Í 1. Mósebók segir Guð við Adam: „bölvuð sé jörðin þín vegna. Með erfiði skalt þú þig af henni næra alla þína lífdaga.“[7] „Jörðin“ er táknræn fyrir náttúruveraríkið. Með öðrum orðum, vegna falls mannkyns frá náð (sem Adam og Eva eru táknmyndir fyrir) urðu náttúruverurnar „bölvaðar“ – það er að segja að hið slæma karma mannkyns hafði fengið inngöngu inn í heim þeirra – og nátturuverurnar fengu það verkefni að viðhalda jafnvægi náttúrunnar þar sem karmískt ójafnvægi birtist nú.

Vægi karma hefur verið að hlaðast upp í gegnum aldirnar og árþúsundir. Samt halda náttúruverurnar áfram að vinna hetjulega að því að hreinsa jörðina, loftið og vatnið á plánetunni okkar. Dag eftir dag vinna þær að því að halda jörðinni á jöfnum kili. Án óbilandi starfs náttúruveranna hefðum við ekki efnislegan vettvang til að lifa á. Við myndum ekki hafa stað til að vinna úr karma okkar eða til að vaxa andlega.

Árið 1990 sagði ástsæli Oromasis að náttúruverurnar væru sligaðar af kúgun og þunglyndi, örvæntingu og linkind mannkynsins. Eins og mannkynið verða náttúruverurnar „sljó og dauf". Þau verða úrvinda. Þau verða íþyngd. Þau verða yfirhlaðin. ... En, ástvinir," sagði hann, "þið getið hreinsað þær af því."

Náttúruverurnar hafa ekki þrígreindan loga og Órómasis sagði að þangað til þær áynnu sér þennan þrígreinda loga „verðu þær að treysta á hjartaloga ykkar. Já, þær fara með möntrufyrirmæli með þér, en þær verða að hafa þig til að þylja þær með ykkur. Því að þær eru háðar altari hjarta ykkar eins og þið treystið á altari hjarta Guðs og á logann sem brennur ekki. ... Það er ekki bara fjölskylda ykkar og börn ykkar sem eru háð ykkur heldur hefur hvert og eitt ykkar hugsanlega milljónir náttúruvera sem treysta á hjartaloga ykkar."[8]

Árið 1996 sagði Lanelló okkur að náttúruverurnar ynnu enn undir mjög þungri byrði.

Náttúruverurnar og yfirstjórnendur þeirra eru komin að þolmörkum. Þær geta ekki og vilja ekki umbera syndir heimsins lengur. Við skorum á ykkur að biðja fyrir þeim því að þegar þær geta ekki lengur sinnt störfum sínum, megið þið búast við hamförum á plánetunni. Það er því fyrir bestu að minnast náttúruveanna, að umgangast og tala við þær, kalla á fjóra yfirstjórnendur þeirra og hvetja þær, gefa þeim von og standa með þeim. Annars munuð þið sjá þær gefast upp hver á fætur annarri. ...

Hvað myndi gerast ef öll jörðin yrði staður þar sem náttúruverurnar hafa farið í verkfall og sagt: „Við getum ekki lengur tekist á við fjallþung karma og mengað efni sem mannkynið losar í vötnin, í jörðina, í loftinu!“[9]

Náttúruverurnar hafa hjálpað okkur í langa tíð. Nú er komið að okkur að hjálpa þeim. Við höfum andleg verkfæri fjólubláa logans og kraft heilags anda til að gera það.

Samstarf við náttúruverurnar

Þann 8. júlí 1990 tilkynnti tvíburalogi Órómasis, Díana, ívilnun sem hóf nýtt skeið samvinnu sona og dætra Guðs og náttúruveraríkisins. Diana svaraði:

Ég hef tekið með mér í dag fulltrúa fjögurra höfuðskepna. Hverjum ykkar er gefinn hópur náttúruvera, sumir frá hverju ríki. Þið getið litið svo á að þið hafið ættleitt lítinn ættbálk í dag sem er tólf talsins. Þær verður hjá ykkur og hlýðir skipun ykkar ef hún kemur frá hjarta ykkar í demantshjarta Maríu guðsmóður og El Morya. Og hann dvelur hjá ykkur eins lengi og þið hlúið vel að þeim.

Hafið þær með í áköllunum ykkar og gefið þeim verkefni en aðeins í samræmi við vilja Guðs. Ákallið þær í margs konar skyni í lífi ykkar, ekki undanskilja lækningu á fjórum lægri líkömum ykkar eða hagnýt mál. Og þegar þið sjáið niðurstöður samskipta ykkar við þær og takið þær með ykkur í gönguferðir, þannig að þið getið áttað ykkur á þessum þætti herskara Drottins.

Þannig að þegar þeir sem eru ofar á stigveldiskvarðanum skynja hógværð þína sem og festu þína og hæfni þína til að koma öflum frumefnaríkisins til góðra verka, munu þeir byrja að íhuga að verða líka hlýðnir þjónar þínir.... Varður logans, gangið með Guði – og eins og þið gerið, vitið að Guð í frumlífinu gengur með ykkur.[10]

Gefið liðsveit ykkar með tólf náttúruverum dagleg verkefni. Þetta getur verið hvaða uppbyggilega viðleitni sem er sem kemur að gagni, ekki bara einum eða tveimur eða tíu manns, heldur tugum þúsunda og milljóna manna. Biddu þær um að sjá um hagnýt atriði, þar á meðal að lækna sjálfan þig og aðra. Allar náttúruver vita hvernig á að lækna. Verið viss um að beiðnir ykkar séu í samræmi við vilja Guðs. Þar sem þið eruð ötul við að fylkja saman náttúuöflunum til góðs, verða aðrar náttúruverur sem eru öflugri en náttúruverurnar ykkar líka þjónar ykkar. Hugsið bara hverju þið getið áorkað með fleiri og fleiri hjálparliðum til ráðstöfunar!

Árið 1993 komu Oromasis og Diana aftur með bæn og bæn fyrir frumefnin. Þeir lýstu öðrum plánetum sem eru ófrjó í dag vegna þess að frumefnin á þessum plánetum höfðu enga styrki – enga syni og dætur Guðs sem myndu halda loganum fyrir þá.

Náttúruverur á gullöldinni

Mark Prophet málaði einu sinni þessa senu fyrir okkur um hvernig jörðin væri ef frumefnin væru ekki hneigð niður af mengun og þyngd karma mannkyns:

Ef við hefðum fylgt guðdómlegri áætlun gætum við séð og verið vinir náttúruandanna. Við þyrftum ekki að takast á við minni eða meiri storma. Jörðin myndi úthella dögg til að vökva uppskeru okkar. Engin rigning myndi falla, en dögg myndi birtast úr loftinu. Loftið yrði mettað af raka, í réttu magni alls staðar á jörðinni, og eyðimörkin myndu blómgast eins og rós, og það væri enginn umfram raki og enginn skortur á honum. Það væri bara rétt fyrir hvert loftslag.

Þú fengir fallegasta veður og fallegustu blóm um allan heim. Þú myndir hafa nóg af mat og þú myndir komast að því að fólk myndi ekki drepa dýr til að lifa. Það væri nóg af ávöxtum. Margir af ávöxtunum sem myndu birtast eru ekki einu sinni á plánetunni núna.... Við myndum eiga samfélag við frumefnin, sýna þeim hvernig á að stíga upp í æðri birtingarmynd. Og við myndum fá leiðbeiningar okkar frá englum.[11]

Sjá einnig

Aríes og Þór

Neptún og Lúara

Virgó og Pellör

Órómasis og Díana

Náttúruvera líkamans

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, How to Work with Nature Spirits.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path of the Higher Self, volume 1 of the Climb the Highest Mountain® series, bls. 444–70, 548–55.

Jesus and Kuthumi, Corona Class Lessons: For Those Who Would Teach Men the Way, bls. 371–76.

"Cosmic Cooperation between the Children of the Sun and Elemental Life," fjögurra þátta röð fyrirskipuð af Hierarchs of the Elements, 1980 Pearls of Wisdom, bindi. 23, nr. 14–17.

Violet Flame for Elemental Life—Fire, Air, Water and Earth 1 og 2, hljóðupptökur með lögum og möntrufyrirmælum til fjólubláa logans til að lyfta byrðinni af náttúruveraríkinu.

Elizabeth Clare Prophet, 28. desember, 1973 (lýsing á eldöndum).

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats.

  1. Virgo and Pelleur, “The Servants of God and Man in the Earth Element,” Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 14, 6. apríl, 1980.
  2. Orðskv. 6:6.
  3. Jesus and Kuthumi, Corona Class Lessons: For Those Who Would Teach Men the Way, kafli 44.
  4. Mark Prophet, „The Kingdom of the Elements: Fire, Air, Water, Earth,“ 2. júlí 1972.
  5. Jes. 11:6.
  6. Jesus and Kuthumi, Corona Class Lessons: For Those Who Would Teach Men the Way, kafli 44.
  7. Mós. 3:17.
  8. Órómasis og Díana, "Kallið á regnbogaeldinn!" Pearls of Wisdom, 33. bindi, nr. 32.
  9. Lanello, „In the Sanctuary of the Soul,“ Pearls of Wisdom, 40. bindi, nr. 52, 28. desember, 1997.
  10. Oromasis og Diana, „Kallaðu á regnbogaeldinn!“ 8. júlí 1990, vitnað í af Elizabeth Clare Prophet, 9. október 1998.
  11. Mark L. Prophet, vitnað í af Elizabeth Clare Prophet, 9. október 1998.