Sálræn skyggni
[Úr grísku psyche, „sál“] Sá sem hefur þroskað sál sína, eða sólar plexus (magagrófarorkustöðina), hæfileika sína fyrir aukinni vitund um hið efnislega, geðræna, hugræna og stundum ljósvakasvið jarðarinnar og þróun hennar.
Sá sem hefur dulræna skynjun, eða hefur slíkar gáfur, hefur í þessu lífi eða fyrri lífum þroskað næmni eða yfirskilvitlega skynjun sem mannkynið hefur almennt ekki aðgang að. Þetta getur falið í sér breytt vitundarástand ofan eða neðan eðlilegra marka vitundarinnar og virkjun tölvu undirvitundarinnar eða yfirvitundarinnar. Þrátt fyrir að sumir noti þessa hæfileika uppbyggilega af nákvæmri samviskusemi eru dæmi um að upplýsingar og sundurgreining þeirra séu í mörgum tilvikum óáreiðanlegar.
Hugtakið „sálræn skyggni“ hefur verið notað sömu merkingar og hugtakið „astral“ í neikvæðu samhengi þess og snýr að gagntekinni meðhöndlun orku á vettvangi geðsviðsins. Samkvæmt uppstignu meisturunum starfar sá á lægra geðheimasviðinu sem hefur varið kröftum sína í sálræn fyrirbæri. Þannig dregur hann á langinn sönnum andlegum þroska sínum og gagntekna einingu við guðdóminn með því að byggja up sterk tengsl við geðheimaverur á lægri áttund geðsviðsins.
Aftur á móti, með einingu við Guð og með beinum skilningi á hærri áttundarsviðum getur sál hans hlotið andlegan ávinning á ljósvakasviðinu (himnaríki) og ferðast í ljósvakaumgjörðum sínum til athvarfa uppstignu meistara Stóra hvíta bræðralagsins og ljósvakaborganna og mustera ljóssins staðsett á því sviði. Sönn andleg guðleg færni er ekki mæld með skyggni eða sálrænum fyrirbærum heldur með guðlegri stjórn á hinum helga eldi hjartans og fullnumaþjálfun á vegi kærleikans.
Dulræn starfsemi
Málefni sem flokkast undir sálræn fyrirbæri eru meðal annars andatrú og spíritismi; sjálfvirk rithönd; fást við fljúgandi furðuhluti; og spádómaaðferðir eins og „veraldleg“ stjörnuspeki, tarot, pendúll og andaglas.
Drottinn Maitreya útskýrir að sálræn miðlun sé alltaf andleg afvegaleiðing:
Blæjan í musteri mannsins verður að rifna í tvennt. Blæja tálsýnarinnar verður að rofna og við vígslu mun veruleikinn skína fram.
Varist þó bakslagið við því að taka þátt í sjálfvirkum skrifum, í sálrænni miðlun og öllu því sem er andstætt lögmálum uppstignu meistaranna. Gætið þess að skilja að það er engin þörf fyrir að fást við það sem tengist hinum sálræna heimi (geðræna sviði). Að fara í andaglas og margar slíkar athafnir draga niður mannkynið. Ég segi ykkur, fáir finnast á jörðinni sem vita hvernig á að höndla tarotspil.
Þið ættuð því að skilja að öruggasta og besta vegferðin [leiðin] fyrir hina útvöldu er undir stjórn hinna uppstignu meistara. Hún kennir ykkur hvernig þið eigið að kanna orð þeirra og biðja til þeirra, ákalla þá, leita eftir vígslu, að verða sannur maður, að verða guðleg mannvera, að virkja flæði alheimsorkunnar innra með kraftsviðs ykkar með því að láta hið talaða Orð hljóma, með því að raula um hina tignarlegu ímynd hins lifandi Krists, með því að finna fyrir bylgju upprisulogans, með því að ganga inn í kraft hins allra helgasta í ykkar eigin verund.
Menn þurfa ekki að fara út fyrir sjálfa sig til að finna hjálpræði því himnaríki er innra með yður. Og það ríki sem er innra með yður er ríki okkar.[1]
Drottinn Maitreya gaf frekari kennslu um þessa starfsemi í bréfi frá 1. júlí, 1986:
Ég vil minnast á þá ívilnun sem fólst í stjörnuspeki, tarot, lófalestri og I Ching sem aðferðafræði sem kynnt var á ýmsum tímabilum sögunnar sem fullnuma fræðarar veittu sem voru í réttri samstillingu við hið innra lögmál. Með tímanum og aukinni uppljómun jarðlífsins fyrir milligöngu Saint Germains hafa þessi kerfi vegna misnotkunar gegnsýrst af orkutíðni geðsviðsins og falsgúrúar og kennarar hafa notað þau til að hafa áhrif á og ná stjórn á nemum sínum og fylgjendum. Þess vegna höfum við bannað nemum okkar að nota þessi kerfi, nema undir stjórn okkar, bakstuðningi og upplýsingum.
Af því sem nefnt hefur verið bent á stjörnuspeki sem lausn þegar hún er gefin og móttekin án ótta, hjátrúar, eða tilfinningar um óbreytanlega forskipan. Engu að síður hafa sumir af nemum okkar lent í þeirri gildru að leggja of mikla athygli á stjörnukort sín og ekki nægilega mikið á ÉG ER-nærveru sína, gefa stjörnuspám of mikið vægi og ekki gætt nægilega vel að ljós hins heilaga Krists sjálfs og hins mikla hvíta bræðralags eru þyngri á metunum. Þegar um I Ching er að ræða er það óáreiðanlegt vegna misnotkunar hins falska helgiveldis.
Sjá einnig
Fyrir upplýsingar um sérstakar sálrænar athafnir, sjá:
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Paths of Light and Darkness, 2. kafli.
- ↑ Lord Maitreya, "AUM," Pearls of Wisdom, 27. bindi, nr. 15, 8. apríl, 1984.