Sálfarir

From TSL Encyclopedia
Revision as of 09:36, 23 December 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

Sálfarir er aðferð til þess að sálin geti ferðast um í ljósvakalíkamanum í svefni í fylgd erkiengla og ljóssveita, til að heimsækja ljósvakaathvörf og fá fræðslu og vígslu uppstignu meistaranna.

Í fyrstu Mósebók er lýst hinu djúpstæða andlega samfélagi sem nauðsynlegt er fyrir þroskun sálarinnar sem lýsir sér í djúpum svefni sem Drottinn Guð lét falla yfir Adam. Þetta var náttúrulega leiðin sem Maitreya stóð fyrir þar sem sálin myndi skilja sig frá lægri farartækjum sínm og ferðast í ljósvakahjúpi sínum til hærri áttundavídda skapandi vitundar í orsakalíkama Gúrú Maitreya eða til ljósvakaathvarfs hins Stóra hvíta bræðralags.

Síðar hafa ákveðnir skólar í hinu falska helgiveldi sem tíðkuðust á Atlantis á þeim hundrað og tuttugu árum sem Nói prédikaði, afskræmt þessa eðlilegu „útgöngu úr og inngöngu“ í líkamsmusterið. Á þeim tímum gerðu afkomendur Kains, sem unnu með Illuminist-mönnum, sem gerðu það vinsælt að falla í sálrænt dá á undan eða á eftir sálrænni hugleiðslu í undirvitundinni.

Þetta undirvitundarsvið sjálfsvitundarinnar (fyrir neðan marka meðvitundar um sjálfið sem Guð), sem við höfum lagt að jöfnu við rafræna beltið, varð sálfræðileg rannsóknarstofa til að höndla með hið geðræna svið — sjálfsins og annarra sjálfa. Þetta var upphafið að iðkun dáleiðslu og sjálfsdáleiðslu.

Þessi gerð til að falla í sálrænt trans og sálræna leiðslu hefur verið viðvarandi til dagsins í dag. Samkvæmt þessum fölsku kenningum er nýgræðingum kennt að fara úr líkamanum ekki í gegnum eldstöðina (hjartastöðina) og eldlíkamann (ljósvakahjúpinn) heldur í gegnum vatnsorkustöðina (magagrófarstöðina (sólar plexus)) og vatnslíkamann (astral- eða geðlíkamann). Þetta leiðir til sálfara á astral-/geðheimasviðinu. Þegar sálir eru komnar á astralsviðið eru þær fluttar til aðseturs aðila hins falska helgiveldis, astral-orkusviða þeirra. Þau sem þannig eru leidd af fulltrúum hins falska helgiveldis, sem eru í eða án efnislíkama, og láta blekkjast af endalausri sæluvímu á hinu sálræna fyrirbærasviði.

El Morya veitir eftirfarandi bæn þar sem neminn getur beðið um að vera fluttur til athvarfs Pálls Feneyings í sálförum:

Í nafni Krists, míns eigin raunsjálfs, kalla ég til hjarta Ég ER-nærverunnar og engils nærverunnar til að fara með mig í sál minni og sálarvitund til athvarfs Páls Feneyings í Suður-Frakklandi. Ég bið um að fá fræðslu um kærleikalögmálið og að fá forskrift fyrir sigri kærleikslogans í hjarta mínu. Og ég bið um að allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að uppfylla guðdómlega ráðagerð mína verði birta ytri vökuvitund minno eins og áskilið er. Ég þakka yður og tek undir þetta í fullum krafti hins uppstigna Krists.[1]

Sadkíel og heilög Ametýst útskýra að þau sem hafa komist upp á lag með að fara sálförum gætu einnig þjónað með erkienglunum meðan þeir eru utan líkamans í svefni:

Ef þið hafið uppsafnaðan bænakraft og hafið stundað sálfarir lengi, getið þið tekið þátt í liðsveitum okkar, liðsveitum Sadkíels eða annarra erkiengla. Englar fylgja ykkur og þið farið á þann stað þar sem þörfin er mest. Og þegar þið gangið til náða mun sem sagt foringi herfylkis ykkar koma og segja ykkur hvert við förum í nótt og hvers vegna við verðum að fara þangað: vegna þess að þar er þjáning, vegna þess að þar eru ljóssálir, vegna þess að þar stafar ógn, jarðskjálftar og hamfarir og við verðum að fara þangað og koma með fjólubláa logann, eða við verðum að fara inn á astralsviðið og bjarga þeim sem eru hallir undir sjálfsvíg og annars konar sjálfseyðingu.[2]

Sjá einnig

Ljósvakaathvarf

Til frekari upplýsinga

Helgisiðir til að auðvelda sálfarir, sjá “Sacred Ritual for Transport and Holy Work,” í El Morya, Ashram Notes.

El Morya, The Chela and the Path: Keys to Soul Mastery in the Aquarian Age, 7. kafli

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path of Self-Transformation.

  1. El Morya, The Chela and the Path: Keys to Soul Mastery in the Aquarian Age
  2. Archangel Zadkiel and Holy Amethyst, “Through Constructive Service at Night, You Are Balancing Karma,” Pearls of Wisdom, 46. bindi, nr. 8, 21. september, 2003.