Translations:Lemuria/9/is
Í aðalmusteri Mu var logi hinnar guðdómlegu móður skrínlagður sem hnit fyrir loga hins guðdómlega föður með Gullborg sólarinnar í brennidepli. Með því að viðhalda fornum helgisiðunum með áköllum til logosins og kyrjun helgra hljóða og mantra Orðsins héldu prestar og meyprestar hins helga elds kosmískum kröftum í jafnvægi fyrir hönd lífsbylgna plánetunnar. Í hinum fjarlægu nýlendum Mu voru eftirlíkingar af musterinu og loga-beini þess komið á fót sem helgidómum meyjarvitundarinnar og mynduðu þar með ljósboga milli jarðar og sólar, sem var jarðtengdur í loganum að neðan sem og loganum að ofan sem miðlaði orku logosins sem nauðsynleg er til að framkalla form og efni út á efnissviðunum.