Elizabeth Clare Prophet
Elizabeth Clare Prophet var frumkvöðull í nútíma trúarhugsun, einn fremsti kvenkyns trúarleiðtogi tuttugustu aldar. Hún leiddi samtök um allan heim og rit hennar hafa selst í milljónum eintaka. Hennar er minnst í dag sem öflugs leiðtoga og andlegs kennara sem hvatti marga til að feta andlega veginn til Guðs.
Fyrri ár
Elizabeth Clare Wulf fæddist í Red Bank, New Jersey, árið 1939. Hún gekk í Antioch College, fluttist síðar til Háskólans í Boston, þar sem hún útskrifaðist með B.A. gráðu í stjórnmálafræði. Andleg leit hennar spratt af barnsminningum hennar um fyrri líf og ákvörðun hennar um að finna staðfestingu á sannleikanum sem Jesús talaði til hennar í hjarta hennar. Þegar hún var níu ára hafði hún farið í allar mótmælenda- og kaþólskar kirkjur og samkunduhús gyðinga í bænum Red Bank án þess að finna svörin sem hún leitaði að.
Frá níu til átján ára aldurs nam hún heildarverk Mary Baker Eddy auk Biblíunnar og sótti Kristnu vísindakirkjuna (Christian Science church) og sunnudagaskólann á staðnum. Þótt hún væri sátt við dýpri sannleika andlegu spekinnar sem hún lærði vissi hún að eitthvað vantaði og hélt því áfram leit sinni.
Leitin að uppstignu meisturunum
Þegar hún var átján ára opnaði hún bók um hina uppstignu meistara sem hún hafði séð á bókasafni foreldra sinna í mörg ár en aldrei tekið úr hillunni. Hún stóð augliti til auglitis við mynd af uppstigna meistaranum Saint Germain. „Þetta voru þáttaskil í lífi mínu,“ rifjaði hún upp síðar. Í fyrsta sinn hafði hún fundið fyrir nærveru uppstigins meistara og varð það til þess að hún varði næstu fjórum árum í að leita að einhverjum sem gæti leitt hana til Saint Germains.
Þann 22. apríl, 1961, sótti hún fund Summit Lighthouse (Ljós-vitanum á tindinum) í Boston og hitti leiðtoga þess, Mark L. Prophet, boðbera hinna uppstignu meistara. Hún endurþekkti hann sem kennarann sem hún hafði leitað að allt sitt líf, þann sem myndi leiða hana á andlegu brautinni. Innan sex vikna birtist meistarinn El Morya henni í garði í Boston og sagði henni að fara til Washingtonborgar þar sem Mark Prophet myndi þjálfa hana í að verða boðberi.
Þegar Elísabet svaraði kallinu hófst tímabil mikillar andlegrar agaþjálfunar og innri sálarvakningar. Þremur árum síðar hlaut hún smurningu Saint Germains til að verða boðberi Stóra hvíta bræðralagsins. Með krafti heilags anda fór hún að flytja spámannlegan boðskap uppstignu meistaranna.
Mark og Elizabeth gengu í hjónaband árið 1963 og eignuðust fjögur börn á næstu níu árum.
Heimsköllun
Með vaxandi starfsmannafjölda og félagsaðild á landsvísu fluttu Mark og Elizabeth höfuðstöðvar sínar til Colorado Springs [í Kaliorníu] árið 1966. Andlegt athvarf þeirra, þekkt sem La Tourelle, fallegt óðalsetur á Broadmoor svæðinu, varð samkomustaður fyrir leitendur á sjötta áratugnum. Þann 26. febrúar 1973 andaðist Mark Prophet eftir að hafa lokið köllun sinni. Hann er nú þekktur sem uppstigni meistari Lanelló.
Elísabet hélt verkefninu áfram með stuðningi starfsfólks og fylgjenda meistaranna um allan heim. Hún leiddi andlega pílagrímsferð til Suður-Ameríku í desember 1973 og hélt ráðstefnu í Mexíkóborg um jólin. Á næstu árum ferðaðist hún til Vestur-Afríku, Evrópu, Ástralíu, Filippseyja, Indlands, um Bandaríkin og Kanada og sneri aftur til Suður-Ameríku árið 1996, talaði við þúsundir manna og náði til milljóna til viðbótar í útvarpi og sjónvarpi.
Hún hélt líka áfram að skrifa bækur — hennar eigin og samansafn af verkum Marks — og stjórna því sem átti eftir að verða alþjóðleg samtök. Fyrsta forgangsverkefni hennar var hið vikulega tímarit Pearls of Wisdom (Viskuperlur) (bréf frá uppstignu meisturunum til nemenda sinna um allan heim).
Árið 1976 hafði Elisabeth haslað sér völl sem framúrskarandi trúarleiðtogi. Hún flutti höfuðstöðvar samtakanna í leiguhúsnæði á háskólasvæði í Pasadena, Kaliforníu, og tveimur árum síðar keypti hún 882 fermetra eign sem nefndist Gillette í Santa Monica-fjöllum nálægt Malibu. Eignin var endurnefnd „Camelot,“ til minningar um Arthúr konung og riddara Hringborðsins.
Árið 1981 keyptu samtökin Royal Teton Ranch, í Park County, Montana, [nálægt Yellowstone þjóðgarðinum]. Samtökin fluttu þangað árið 1986 og eru enn alþjóðlegar höfuðstöðvar Summit Lighthouse og Church Universal and Triumphant hinnar (Sigursælu alheimskirkju).
Arfleifð
Elizabeth hélt fyrirlestra í meira en 30 löndum og 150 borgum um allan heim, gaf út meira en 50 bækur, hélt fjórar ráðstefnur á hverju ári ásamt mörgum öðrum sérstökum málstofum, gaf ítarlega kennslu á Summit University námskeiðum, veitti þúsundum fylgjenda kirkjulega þjónustu, og stofnaði einkaskóla [í framúrstefnulegri uppeldisfræðri], Montessori International.
Á meðal bóka hennar sem hafa lengi verið á metsölulista yfir nýaldarrit má finna The Lost Years of Jesus (Þöglu árin í ævi Jesú), Saint Germain On Alchemy (Saint Germain um alkemíu), The Human Aura (Mennska áran), Fallen Angels and the Origin of Evil, (Fallnir englar og uppruni illskunnar) Violet Flame to Heal Body, Mind and Soul' (Fjólublái loginn til að lækna líkama, huga og sál) ásamt klassískum ritröðum eins eins og Lost Teachings of Jesus (Týndar kenningar Jesú) og Climb the Highest Mountain® (Hæstu fjöllin klifin). Elizabeth hélt námskeið og vinnustofur um efni eins og karma og endurholdgun, spádóma, engla, leyndardómsfullar slóðir trúarbragða heimsins og hagnýtar handbætur til andlegra nota.
Elizabeth Clare Prophet retired in 1999 for health reasons, and on October 15, 2009, made her transition to higher octaves.
Today the Royal Teton Ranch is the international headquarters for The Summit Lighthouse as well as Church Universal and Triumphant, Summit University and Summit University Press, which carry on her mission of bringing the teachings of the ascended masters to the world and helping people expand the light within and find their way back Home.
Köllun hennar
Elizabeth Prophtet hefur sagt eftirfarandi um köllun sína:
The ascended masters present a path and a teaching whereby every individual on earth can find his way back to God. I do not claim to be a master but only their instrument. Nor do I claim to be perfect in my human self. I am the servant of the light in all students of the ascended masters and in all people. My books and writings are intended to give people the opportunity to know the Truth that can make them free—so they can find God without me. My goal is to take true seekers, in the tradition of the masters of the Far East, as far as they can go and need to go to meet their true Teachers face to face.
Fyrri æviskeið
Fyrri æviskeið Elizabeth Clare Prophet:
Sjá einnig
Til frekari upplýsinga
Elizabeth Clare Prophet hefur skrifað minningargrein um fyrstu ár sín sem ber titilinn In My Own Words.
Heimildir
Samantekt ritstjóra.