Ljósvakaborgir

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:57, 11 October 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:
Minnisvarði Jeffersons, Washingtonborg.

Það eru fjórtán ljósvakaborgir uppi yfir jörðinni, sjö yfir heimshöfunum sjö, sjö uppi yfir eyðimörkunum sjö. Þessar ljósvakaborgir eru staðir þar sem ljóssálir eða sálir sem hafa aðstoðað uppstignu meistarana geta farið til á milli endurfæðinga eða í svefni. Þessar borgir eru ósnortnar, tærar og óspilltar á ljósvakasviðinu; þær eru eins og þær voru á gullöld [jarðar]. Sýn Jóhannesar hins elskaða um Nýju Jerúsalem sem er að finna í Opinberunarbókinni má rekja til sýnar hans um ljósvakaborgirnar sem marka innra forsnið ferhyrndu borgarinnar fyrir komandi birtingu í siðmenningum jarðarinnar.

Gullguðinn lýsir þessum borgum:

Í ljósvakaáttundinni — eru ljósborgirnar gulli lagðar og stöðugt ljósstreymi. Englar ganga frjálslega um með sonum og dætrum Guðs á meistastigi. Börn eru frjálsleg sem guðirnir, ná fulla birtingu orsakalíkamans. Þið getið séð votta fyrir gagnsæju Krists-sjálfsins og orsakalíkamans og ÉG ER-nærverunnar sem eru sýnileg fyrir ofan þessa lífsstrauma. Göturnar eru gullslegnar.

Gull flytur og leiðir sólarljósið, heldur við heilsu í líkamanum og útfellingu sólarljóssins frá eigin orsakalíkama hvers og eins, áunninn forði fyrri endurfæðinga á jörðu og þjónustu á himnum. Þess vegna sjáið þið að allir eru ekki jafn efnaðir, jafnvel ekki í ljósvakaborgum, en hver sýnir með kunnáttu, kærleika sínum og guðdómi útfellingu þessa gullsgnóttar og fegurðar og ljóss, menningar og sálarþroska og allar hinar fjölmörgu hliðar Guðs-stjórnar á geislunum sjö.

Maður heyrir, með hljóðlausu hljóði og innri samhljómun orkustöðva, grunntóna allra meistara alheimsins. Maður getur stillt sig með hugleiðslu í gegnum orkustöðvar sínar inn á ýmsar bylgjulengdir hljóðs, ljóss, fegurðar, innblásturs og launhelga og andlegra miðstöðva annarra pláneta og fjarlægra heima.

Fegurð náttúrunnar er ljómandi og marglit - kristaltærir straumar, ferskleiki loftsins, sláandi lífskraftur stjarnanna, tilfinningin fyrir gegnsýringu lífsins með bláum geisla vilja Guðs. Það er friður og jafnvægi, jafnaðargeð. Það er vellíðan en ekki pirringur og taugaveiklunin í þéttari líkömum sem við íklæðumst, mataræðið sem við borðum, dauðatitringur og helvíti á jörðu.

Burtséð frá þessum sjö stórborgum ljóssins eru opin rými ljósvakasviðsins þar sem eru einangruð musteri, lærdómssetur, önnur samfélög og einhvers konar samkomur meistaranema.[1]

Ein af stærstu borgum í heimi þar sem vottar fyrir ljósaborg úr tálgusteini er Washingtonborg. Þetta er sökum framlags [uppstignu meistaranna] Saint Germains og George Washingtons sem létu lækka þessi mót í form. Borgarskipulag hennar nær aftur til hinna miklu ljósborga sem voru í Amazon-dældinni á tímum mikilfenglegrar gullaldar í Suður-Ameríku; lykilbyggingar borgarinnar eru hvítar og í mörgum þeirra má greina eitthvað mjög svipað því sem sést í ljósvakaborgunum.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “The Etheric Cities”.

  1. Godfre, 3. september, 1984.