Lantó

From TSL Encyclopedia
Revision as of 11:30, 18 December 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "Þann 3. júlí 1958 tók hinn uppstigni meistari Konfúsíus við af drottni Lantó sem yfirstjórnandi Royal Teton athvarfsins. Með því að hafa náð langt umfram það sem krafist var af annað hvort yfirstjórnanda athvarfsins eða chohan-meistara, þáði Lantó frá Kúthúmi embætti annars geisla á þeim degi (þessi blessaði bróðir sem hafði tilbeðið friðarhöfðingjann sem Saint Francis eftir að hafa þegar árið 1956 gengið til l...")
Other languages:
caption
Hertoginn af Chou, ein af endurfæðingum drottins Lantós

Chohan af öðrum geisla; uppstiginn meistari í hvers nærveru er hægt að snerta og þekkja háleitni huga Guðs. Drottinn Lantó, meistari spekinga og heimspekinga, kennir okkur hina andlegu leið til uppljómunar, að skilja og stjórna hvirfistöðinni.

Eftir að hafa notið leiðsagnar drottins Himalaya og fullnumast í Athvarfi bláa lótussins kaus drottinn Lantó að nota gula skúf hins þrígreinda loga til að umvefja hjörtu alls mannkyns. Hann hefur tileinkað sér að fullkomna þróun lífsins á þessum hnetti með uppljómun mannsins fyrir milligöngu hins Kosmíska Krist. Gullni loginn sem hann ber er hlaðinn uppsöfnuðum krafti guðlegs sigurs æsku heimsins.

Endurfæðingar

Sjálfboðaliði með Sanat Kumara

Lantó bauð sig fram með Sanat Kumara, hinum aldna, til að koma til jarðar fyrir löngu til að bjarga plánetunni og þróun hennar. Sem einn af hinum upprunalegu Vörðum logans gegndi hann ákveðnu hlutverki í fyrstu viðleitni Sanat Kumara til að endurheimta mannkynið úr myrku falli þess.

Sveitirnar sem buðu sig fram til að fylgja Sanat Kumara í leiðangri hans til myrku plánetunnar einsettu sér að endurvekja guðdómlega neistann í mannkyninu sem, með öfugþróun, hafði glatað upprunalegum eldi sínum og lifandi greind (kynstofns) guðdóms síns. Þetta sóru þær að gera frammi fyrir altari Shamballa og hinum mikla foringja sínum sem hafði gert sjálfan sig útlægan á jarðkringlunni í því eina skyni að viðhalda loga lífsins.

Lemúría og Atlantis

Hann var æðsti prestur í musteri hinnar guðlegu móður í álfunni sem sökk í Kyrrahafið, þekkt sem Lemúría. Hann hafði aðrar holdtekjur á Atlantis eins og allir chohan-meistarar geislanna.

Á síðustu dögum Lemúríu voru þeir sem gættu loganna á ölturum musteranna varaðir við komandi hamförum. Þeir numu á brott logana sína, báru þá á örugga staði og komu þeim fyrir í öðrum efnislegum athvörfum eða fluttu þá til ljósvakaáttundarinnar. Það var drottinn Lantó sem bar útfellingarlogann og staðsetti hann á Grand Teton-fjallasvæðinu í Norður-Ameríku.

Útfellingarloginn er kínverskur grænn litur með gulum litblæ af öðrum geisla. Þessi logi sem logar í Royal Teton athvarfinu gæðir vitundina eiginleikum sem gerir Bandaríkjamenn afar skilvirka, ýtir undir þróun hagnýtra vísinda og tækni sem tekur okkur aftur til tíma Mu þegar þessi tækni skaraði jafnvel fram úr því sem við höfum í dag. Það er gnægtarlogi sem liðkar fyrir sköpun auðlegðar sem og hamingju og gleði og alheimslegrar Krists-vitundar.

Hertoginn af Chou

Drottinn Lantó endurfæddist í Kína til forna sem hertoginn af Chou, (d. 1105 f.Kr.), talinn einn mesti stjórnmálamaður í kínverskri sögu og hinn sanni stofnandi konfúsískrar hefðar. Hertoginn af Chou, faðir hans, Wen konungur, og bróðir stofnuðu Chou-ættina. Þeir voru í fararbroddi fyrir því að steypa hinni spilltu Shang-ætt og áfengissjúkum og geðvilltum stjórnanda hennar af stóli.

Guðfaðir nýju ríkisstjórnarinnar, hertoginn af Chou, skrifaði handbækur um stjórnskipulag, helgisiði og velsæmi. Hann samdi líka tónlist. Hertoginn af Chou sagði eitt sinn: "Mér er aðeins umhugað um himininn og þjóðina."[1]

Hann og fjölskylda hans kynntu hugtakið „himnaríki“ fyrir kínversku þjóðinni og komu einnig á legg hugmyndina um „umboð himinsins,“ eða guðlegan rétt til að stjórna. Þeir sem fengu umboðið til að stjórna báru þá ábyrgð að halda því uppi af heilindum og heiðri. Þannig var það heilög skylda þeirra að stjórna með góðvild og réttlæti. Og ef þeir gerðu það ekki, yrðu þeir steyptir af stóli og háttsett embætti þeirra tekið af þeim.

Konfúsíus leit á hertogann sem fyrirmynd sína og taldi að það hafi verið köllun hans að endurreisa siðareglur og menningu fyrri tíma Chou-tímabilsins, sem var talið hafa verið gullöld. Á fyrstu ævi sinni dreymdi Konfúsíus oft um að hertoginn af Chou hefði leiðbeint honum um hina fornu speki. Í Analects harmaði hann: „Mikið er hnignun mín. Það er langt síðan mig dreymdi að ég sæi hertogann af Chou.

Frægasta bók hertogans af Chou er Klassískt rit gula keisarans um innri læknisfræði — elsta þekkta bók um læknisfræði í heiminum. Hún fjallar um líffærafræði og orsakir, greiningar og meðferð sjúkdóma. Ritið lýsir umbreytingu orku frá yin í yang og aftur í yin í fimm þrepum í gegnum eld, jörð, málm, vatn og tré. Í þessu hringferli hefur hvert líffæri í líkama okkar sín eigin einkenni í samræmi við orkustigið sem það er gert úr og orkuna sem streymir í gegnum það. Þessir eiginleikar koma fram líkamlega, sálrænt og andlega. Meginreglurnar í þessari bók hafa orðið grunnurinn að makróbíótísku mataræði.

Talið er að Konfúsíus hafi endurfæðst á tímum hertogans af Chou og hjálpað honum að koma hugsjónum sínum í verk um guðlega stjórn. Þegar Konfúsíus endurfæddist í Kína fimm hundruð árum síðar, ritstýrði hann hinum sex sígildu kínversku ritum, þar á meðal I Ching, sem Wen King hafði skrifað.

Stjórnandi í Kína

Lantó endurfæddist síðar sem höfðingi í Kína á tímum Konfúsíusar (551 til 479 f.Kr.) Ásamt þekktari samtímamönnum sínum Konfúsíusi og Gátama Búddha hélt hann uppi hinum gyllta loga upplýsingarinnar fyrir hönd kínversku þjóðarinnar í fjölmargar aldir. Þessi logi er jarðtengdur í Kína frá athvarfi erkienglanna Jófíels og Kristínar sem er staðsett í miðhluta Kína.

Þessi logi er frumljós gula kynstofnsins sem hinir uppljómuðu höfðu virkjað og gáfu Kína menningarlegan kraft á þeim tíma þegar eftirhreturnar af heiminum hafði annaðhvort hafnað eða farið á mis við Krists-loga sendiboðanna og var í karmískum viðjum á siðspilltum tímum. Mikilleiki Kína endurspeglar vitund Lantós, meistarans sem kom Kína á laggirnar, og meistaranna sem komu Lantó á legg – hinn aldni, drottin Himalaja, Gátama Búddha og drottinn Maitreya.

Fyrir uppstigningu sína ákvað drottinn Lantó að ljósið frá sínum eigin hjartaloga skyldi skína í gegnum líkamann sem lifandi sönnun fyrir lærisveina sína um að hinn þrígreindi logi, eins og á fyrri og komandi gullöldum, er Orðið sem varð hold og að fullneminn geti stækkað það og eflt sem setur það í forgang.

Staðfesting með orðskviði Jobs: „En í holdi mínu mun ég sjá Guð! Lantó, með krafti fyrirmæla sinna frá hjartanu, trúrækni hans við hið lifandi Orð með alheims-Krist ávallt í för með sér, og helgun hans á orkustöðvum hins helga elds guðmóðurinnar náði því sem enginn annar í sögu jarðar eftir syndafallið hafði öðlast: Lantó dáði svo þrenninguna í þrígreindu ljósi innstu veru sinnar að hinn ákafi ljómi þessa guðlega neista sást í gegnum hold hans sem ljáði mjúkan gylltan ljóma í gegnum brjóst hans. Þessu hélt hann til heiðurs Sanat Kumara uns hann steig upp til himna um 500 f.Kr.— “minnisvarði um allar kynslóðir“ sem snerta ÉG ER-Nærveruna — til þess að upprunalegu ljósberarnir gætu rifjað upp köllunina um að lýsa upp hina myrku stjörnu.

Köllun hans í samtímanum

Sem meistari afburðaeldkjarnans í hjarta viskugeislans, þar af leiðandi hollvinur hinna hvítu eldlilja Guðs-móðurinnar, er Lantó gúrú-meistari gúrúanna, ekki aðeins Kínverja, sem hann þráir að aðstoða enn á ný við að reisa loga upplýsingarinnar, en einnig allra sálna sem deila kærleika hans á hinni gylltu sólskinsleið Búddha og bódhisattva undir Sanat Kumara.

Í gegnum nítjándu og tuttugustu öldina hefur Lantó staðið dyggilega á bak við viðleitni Saint Germains við að frelsa mannkynið með því að birta kenningar uppstignu meistaranna um ÉG ER-nærveruna og fjólubláa eldinn.

Þann 3. júlí 1958 tók hinn uppstigni meistari Konfúsíus við af drottni Lantó sem yfirstjórnandi Royal Teton athvarfsins. Með því að hafa náð langt umfram það sem krafist var af annað hvort yfirstjórnanda athvarfsins eða chohan-meistara, þáði Lantó frá Kúthúmi embætti annars geisla á þeim degi (þessi blessaði bróðir sem hafði tilbeðið friðarhöfðingjann sem Saint Francis eftir að hafa þegar árið 1956 gengið til liðs við Jesú í embætti heimskennara).

On October 30, 1966, in cooperation with the God and Goddess Meru, Lanto was granted the dispensation by the Karmic Board for a “mighty transcendent golden flame of illumination” to pulsate three hundred feet into the atmosphere over the colleges, universities, divinity and theological schools of America and the world whose students and faculty were and would be receptive to knowledge from higher spheres. Any students of any school of higher learning may call this flame into action on behalf of the faculty and student body.

The ascended master Lanto conducts classes at the Royal Teton Retreat, the initial retreat of the Great White Brotherhood to which the neophyte may ask to be taken. Here we learn the fundamentals of the path of initiation. Because of the dispensation of opening the seven retreats of the seven chohans, many tens of thousands of souls are receiving training at inner levels to accelerate their consciousness for the New Age.

Drottinn Lantó reynir líka að gefa okkur tilfinningu um verðleika okkar í stað þeirrar sjálfsfyrirlitningar sem er svo algeng meðal karla í dag:

Man is a God in the becoming, but he can never know this while he thinks earthly thoughts. He can never know this by worldly knowledge, for the things of this world are foolishness with God.[2] And in the eyes of God, the only real values are those that free man from the eclipse of being that has concealed the sun of God’s Presence from his eyes. And it is this sun that will awaken his spiritual senses that enable him to see with Saint Paul the face of the Master and to hear his cry “It is hard for thee to kick against the pricks.”[3]

Meditation on Lord Lanto and his golden lotus flame may be accompanied by the music of “Song to the Evening Star” from Tannhäuser, by Wagner (keynote of the Royal Teton Retreat). The wisdom of Lanto is excelled by few ascended beings serving this earth. His flame should be invoked daily on behalf of the youth of the world.

Sjá einnig

Chohan-meistarar

Bæn Lantós

Til frekari upplýsinga

Kenningar Lantós, sjá kaflana um drottin Lantó í Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Lantó.”

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays

Elizabeth Clare Prophet, “Confucius’ Formula for Family and Community Building,” Pearls of Wisdom, 41. bindi, nr. 32, 9. ágúst, 1998.

Elizabeth Clare Prophet, 15. apríl, 1988.

  1. Confucius, Analects 7:13; James Legge, The Chinese Classics, 2d útg., endursk. (endurprentun 1893 útgáfunnar), 1:199, 68.
  2. I Cor. 3:19.
  3. Acts 9:5; Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Understanding Yourself: A Spiritual Approach to Self-Discovery and Soul-Awareness, p. 153.