Issa

From TSL Encyclopedia
Revision as of 07:59, 4 May 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

Árið 1887 fór rússneskur læknir, Nicolas Notovitch, til tíbetsku borgarinnar Hímis, hátt í Himalajafjöllum, í leit að fornum ritum um líf manns sem búddistar kölluðu heilagan Issa. Í Himis-klaustrinu las höfuð-laman fyrir hann úr fornum handritum og Notovitch skrifaði niður söguna af Issa - Ísraelsmanni sem ferðaðist til austurs til að kynna sér helgar ritningar og sneri síðan aftur til að kenna þjóð sinni í Palestínu þar sem hann var krossfestur.

caption
Jesús nálgast Ladakh á æskuárum sínum

Hliðstæðurnar milli heilags Issa og Jesú voru ótrúlegar sem leiddi til þess að Nótovitch komst að þeirri niðurstöðu að handritin greindu frá æskuárum Jesú á aldrinum 13 til 30 ára sem skortir í frásögn Biblíunnar. Hann birti söguna um uppgötvun sína árið 1890 í ritinu Ævi heilags Issa (Life of Saint Issa) (á ensku kom þýðingin út undir heitinu The Unknown Life of Christ, 1895 sem Hartmann Bragason þýddi sem Þöglu árin í ævi Jesú í ritinu Austurlenskar rætur kristninnar). Samkvæmt Notovitch voru upprunalegu Pali-handritin af lífi heilags Issa á bókasafni Lhasa í Tíbet þar sem Dalai Lama bjó.

Gagnrýnendur héldu því fram að frásögn Nótovich um handritin væri fölsuð. Hins vegar sá Swami Abhedananda, fræðimaður og lærisveinn hindú-dýrlingsins heilags Ramakrishna árið 1922 sömu skjöl í Hímis. Nicholas Roerich, rússneskur fornleifafræðingur, rithöfundur, listamaður, heimspekingur sá sömu eða svipuð skjöl árið 1925. Roerich uppgötvaði einnig ferð Jesú til Austurlanda sem skráð er í munnmælasögu svæðisins. Hann sagði: „Á hvaða hátt gæti nýleg fölsun komist inn í vitund alls Austurins?

Sjá einnig

Þöglu árin í ævi Jesú

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, The Lost Years of Jesus: Documentary Evidence of Jesus’ 17-Year Journey to the East.

Heimildir

Pearls of Wisdom, 25. bindi, nr. 58.

Elizabeth Clare Prophet, 6. óktóber, 1987.