Gnana jóga
Gnana jóga er ein af fjórum megin jógakerfum. Gnana jóga er leið sameiningarinnar við Guð með þekkingu.
Gnana jóga hentar best hinum íhugandi eða einlífis manni; það felur í sér sameiningu við Guð með upprætingu fáfræðinnar. Þekking byrjar auðvitað á sjálfsþekkingu. Gnana jóginn leitar þekkingar ekki aðeins með námi heldur með beinni andlegri reynslu á guðdóminum. Gnana jóga er líka leið til að greina á milli hins raunverulega og óraunverulega. Það fellur í annan fjórðung hinnar kosmísku klukku, hugræna fjórðunginn.
Kenning Shankara
Shankara, hinn mikli hindúadýrlingur og fræðimaður á níundu öld, skrifar með rödd gúrú-lærimeistarans sem ráðleggur lærisveininum:
Þar sem fáviskan hefur snert við ykkur finnið þið, sem eruð æðsta sjálfið, fyrir ánauð gervisjálfsins, sem eitt sér viðheldur hringrás fæðinga og dauða. Þekkingareldurinn, sem sundurgreiningin á milli sjálfsins og gervisjálfsins kyndir undir, eyðir fáfræðinni ásamt áhrifum hennar.“[1]
Gúrúinn kennir nemanda sínum fyrst um hinar fjórar stóru Vedic staðhæfingar.[2] Sú fyrsta er „Tat Tvam Asi“ („Það ert þú“), sem þýðir „Brahman þú ert,“ „Þú ert skapaður í mynd Brahman og líkan honum. Þessa staðhæfingu er hægt að setja í ljósvakalíkamann, fyrsta fjórðungi kosmísku klukkunnar.
Önnur yfirlýsingin er „Aham Brahma-smi“ („ÉG ER Brahman“). Þetta er staðfesting á meðvitaðri samsömun við hið mikla Guðs sjálf – Brahman. Þessi staðhæfing á heima í huglíkamanum, öðrum fjórðungi klukkunnar.
Þriðja staðfestingin er „Ayam A-tma Brahma“ („Þetta sjálf er Brahman“). Þetta æðra sjálf er ekki sjálf lægri langana. Þetta æðra sjálf brennur í brennandi löngun til að vera Brahman og þekkja æðra sjálfið sem Brahman. Þessi þrá er andlegi eldurinn sem brennir allar lægri langanir og skilur sálina eftir gegnsósa og gagndrepa í einni þrá, löngunina til að vera Brahman. Þessi staðhæfing er bundin við löngunar líkamann (geðlíkamann), þriðja fjórðung klukkunnar.
Fjórða staðfestingin er „Prajna-nam Brahma“ („Vitundin er Brahman“). Þessi mantra er staðfesting þess að öll líkamleg vitund sé Brahman. Það frelsar okkur frá óróleika skilningarvitanna fimm, frá freistingum holdsins. Það verndar musteri mannsins sem musteri Brahmans.
Fjórða staðfestingin á við efnislíkamann, fjórða fjórðung klukkunnar. Þegar hin líkamlega [umgjörð] hýsir Drottin, þá fylgja löngunarlíkaminn, huglíkaminn og ljósvakalíkaminn. Og fjórar hliðar pýramídans spegla loga Brahmans á miðaltari konungssalarins.
Eftir að nemandinn hefur lært þessar staðfestingar og holdgert þær kennir lærimeistarinn nemanda sínum að hugleiða raunverulegt eðli sitt.
Það sem er ... laust við nafn og form, ... það sem er óendanlegt og óafmáanlegt; það sem er hið æðsta, eilíft og ódauðlegt; það sem er flekklaust - það Brahman ert þú. Íhugið þetta í huganum.[3]
Með þessari hugleiðslu losar lærisveinninn og lærisveinkan sig við þær venjur sem binda þau við heiminn. Smám saman skilja þau hina sönnu hluta sjálfs síns frá hinum ósönnu, eins og rjóma frá mjólk.
Nemandi helgar sig því næst hugleiðslu um Brahman ... [þar til] kemur upp í huga hans andlegt ástand sem lætur hann finna að hann sé Brahman. ... Með dýpkun hugleiðslu, hugans, sem er birting fáviskunnar og efnisformsins, er eytt, og ... Brahman sem endurspeglast í huganum er niðursokkinn í Hæsta Brahman. ... Þessa einingu, ólýsanleg í orðum, þekkir aðeins sá sem hefur upplifað hana.<ref. >Ibid., bls. 126–27.</ref>
Þetta dulræna samband þýðir ekki að jóginn missi getu sína til að hugsa eða vera til. „Huganum er eytt“ þýðir að lægri hugurinn er smám saman hliðrað til vegna þess að hugur jógans er einn með huga Guðs, sem er óendanlegur að getu. Meira og meira af huga Guðs er í honum og minna og minna í hinum lægri huga.
Krishna has this to say about jnana yoga: “When wisdom is thine, Arjuna, never more shalt thou be in confusion; for thou shalt see all things in thy heart, and thou shalt see thy heart in me.”[4]
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path.