Ára

From TSL Encyclopedia
Revision as of 08:38, 18 October 2024 by Hbraga (talk | contribs)
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)

Ljósgeislun eða „rafsegulsvið“ sem umlykur efnislíkamann, oft lagt að jöfnu við geðlíkamann.

Kirlian ljósmynd af fingurgóm

Geislabaugur eða dýrðarljómi tengdur hinum heilögu, upprunninn í sálinni og í forsniði sálarinnar sem endurspeglar með frjálsum vilja hið himneska eða jarðneska mynstur.

Sérstök geislun skynlífs og ólífrænna fyrirbæra eins og hún kemur fram í Kirlian ljósmyndun.

Lýsandi orkustreymi eða rafsegulsvið sem umlykur líkamann. Hjúpur innan um og umhverfis fjóra lægri líkama mannsins og orkustöðvar. Hughrif, hugsanir, tilfinningar, orð og gjörðir einstaklingsins setja mark sitt á áruna, þar á meðal karma hans og skrár yfir fyrri líf.

Hvel heilags elds með hárri orkuhleðslu sem umlykur Krist, uppstiginn meistara, engil, elóhím eða algeimsveru, yfirfæranleg sem „náð“ til hvers og eins sem þeim býður svo við að horfa.

Andlegur hjúpur (kóróna), sem vísað er til sem L-sviðið eða lífssviðið (dulúðugt ljósvakahulstur) sem umlykur mannkynið og lífverur sem bæði stjórnar og endurspeglar heilsu, lífskraft og langlífi líkamans eða lífverunnar.

Til frekari upplýsinga

Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.