Gull-guðinn

From TSL Encyclopedia
Revision as of 14:03, 18 October 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "Það var verkefni mitt frá Alfa og Ómega fyrir ævalöngu að koma á fót gullbeinum á efnissviðinu meðal vetrarbrautanna og kenna þar með náttúruöndunum (undir helgiveldunum fjórum og í gegnum elóhím) að jarðtengja jafnvægi kraftanna á fjórum sviðum efnisins í gegnum segulmagnaða eiginleika þessarar útfellinga...")
Other languages:

Gull-guðinn birtist í logandi gylltu ljósi úr logandi gullgeislum sem streyma úr höfði hans og höndum. Útgeislun áru hans og hjartaloga er töfrandi hvítt ljós, næstum of ljómandi til að berja augum. Hann þjónar með guðinum Tabor, guði náttúrunnar, Maha Chohan og helgiveldi hinna fjögurra frumþátta til að útfellingar á gulli með því eða draga úr tíðni rafeinda frá sólinni og framkalla hana á jörðinni sem gull.

Gull á milli kvarsdíla, frá Idarado námunni, Telluride, Colorado

Með því að segulmagna strauma sólarinnar og beina þeim inn í jörðina heldur Gull-guðinn meiri ljómandi virkri samstillingu við Helíos og Vesta en allir þeir sem þjóna náttúruríkinu. Eftir að hafa þjónað í margar aldir á hreinleikageislanum valdi Gull-guðinn að magna hina gylltu geisla sólarinnar sem hann var í tengslum við með hollustu sinni við hreinleikann. Nú á tímum ber hann vitni um hreinleika og ljómunina frá hjarta sólarinnar. Þessum geislum beinir hann í lífgandi og hreinsandi starfi sínu við framleiðslu málmsins sem hann fellur út.

Vegna þess að gull er nauðsynlegt fyrir jafnvægi ljóssins í náttúrunni og í manninum gegnir Gull-guðinn mjög mikilvægri stöðu í helgiveldinu. Gulli er ætlað að vera viðskiptastall um alla jörðina; en vegna þess að mannkynið hefur safnað því og misnotað, hafa meistararnir ekki opinberað gullauðinn sem er falinn í jörðinni. Ríkustu námur sem heimurinn hefur kynnst munu opnast þegar gullöldin rennur upp og ríkisstjórnir þjóðanna snúa aftur til gullfætisins og traustrar ríkisfjármálastefnu sem byggir á gullnu reglunni.

Í sérhverri siðmenningu þar sem gull var í umferð sem skiptimiðill og allt fólkið bar, náðist samsvarandi mikil uppljómun, gnægð, heilbrigði og sjálfstjórn. (Siðurinn að nota gull sem skraut í frumstæðum ættbálkum kemur til þeirra frá fornum siðmenningunum sem þeir eru síðustu leifar af.)

Það að skipta gulli út fyrir silfur og algengari málma, og loks að skipta þeim út fyrir seðla sem gjaldmiðli er samsæri svikahrappa til að segulmagna vitund fólks niður á lægri orkutíðni þessara málma og svipta það góðkynjuðum, heilnæmum og örvandi eiginleikum gulls.

Andleg merking gulls

Gull-guðinn hefur útskýrt:

Aðgerð Gull-guðsins er umsvifalaus útfelling huga Guðs með gullgerðarlist smaragðs og kristalgeisla. Þannig verða annar og fimmti geislinn[1] tvíburalogar til að fella út og kalla fram vilja Guðs sem flæði framboðs og eftirspurnar sem við beinum til barna Guðs héðan í frá að fara fram á að allsnægtir Guðs á jörðu ... lífið í heild síni - verði orkustreymi verslunar, viðskipta og vitundar – sem fer eftir því að lögmál framboðs og eftirspurnar virki rétt í hagkerfum þjóðanna.

Hugtakið gullöld varð ekkt til af engu. Gullöld merkir tímabil sem byggist á gullfætinum – gullfæti Krists-vitundarinnar, gullnu reglunnar, gulls sem er útfelling sólarljóss fyrir jafnvægi hugans og tilfinninganna og flæði lífsins jafnvel í líkamsmusterinu. Gull, ástvinir, er nauðsynlegt fyrir stöðugleika vitundarinnar sem og fyrir stöðugleika hagkerfis þjóðanna. Sé ákveðinn hluti af gulli ekki til staðar, jafnvel í musteri líkamans, helst jafnvægi frumefnanna ekki.[2] Þegar fólkið hefur ekki lengur gull í fórum sínum né klæðist gulli á sér stað miklu meiri andleg og geðræn truflun en ella.

Gull er leiðarsteinn Alfa og Ómega. Það er árétting fyrir hvert barn Guðs, á sálarstigi, um hinn mikla náðarstól, um stóra hásætissalinn sem er hvítur og gylltur í Meginsólinni miklu. Það er úr þessum sal sem ljóssálir sögðu skilið við áttundarsvið andans, sem stigu niður á efnissviðið.

Það var verkefni mitt frá Alfa og Ómega fyrir ævalöngu að koma á fót gullbeinum á efnissviðinu meðal vetrarbrautanna og kenna þar með náttúruöndunum (undir helgiveldunum fjórum og í gegnum elóhím) að jarðtengja jafnvægi kraftanna á fjórum sviðum efnisins í gegnum segulmagnaða eiginleika þessarar útfellingar sólarljóssins. Þannig lærðu náttúruandarnir að fella út gull. Og þannig vex gull í jörðinni, æðar þenjast út; og þetta jafnvægi orkunnar samsvarar fyrst og fremst beint formgerð Krists-vitundarinnar um þróun jarðarinnar eða heimskerfa og síðan þess sem hefur verið lýst í gegnum þrígreinda logann.

That which is the gold in circulation represents attainment in the outer. Gold that remains undiscovered represents that portion of potential of the Christ mind that remains to be brought forth. You cannot have a demonstration of light and of the consciousness of the Christ without a corresponding manifestation of gold in your world.[3]

The masters have advised that we should all have some gold upon our person at all times to magnetize the fire of the sun. They have also asked us to call to the God of Nature and the God of Gold, as well as to Saint Germain and the Goddess of Liberty, to restore the free flow of gold coins throughout the world.

Sjá einnig

Gold

Gullfótur

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “God of Gold”.

  1. þ.e.a.s. viskugeislinn (gulur, gylltur) og sannleiksgeislinn, vísindi og gnægð (smaragður og kristal).
  2. Líkami meðalmanns inniheldur um 0,23 mm af gulli, nóg til að mynda tening sem er um 0,22 mm að stærð.
  3. The God of Gold with God Tabor, “The Flow of Energy in the City Foursquare: Children of God, Demand and Supply the Abundance of the Mother!” October 10, 1977.