Apolló og Lúmína
Apolló og Lúmína eru verndarar hinnar kosmísku Krists-vitundar. Elóhím annars geislans aðstoðar þá sem þrá að þekkja Guð í gegnum huga sonarins, annarar persónu þrenningarinnar. Fyrir Elóhím annars geisla er allt "útfelling úr huga Guðs“.
Forn-Grikkland
Sá guð sem Grikkir þekktu fyrir löngu sem hinn goðsagnakennda Apólló gæti vel verið framsetning minningarinnar um forn kynni við þennan elóhím. Í aldanna rás tóku guðirnir og gyðjurnar hins vegar á sig fleiri og fleiri mannleg einkenni í huga fólksins. Þess vegna þarf það sem nú er eignað Appól sem guði grískrar goðafræði ekki endilega að endurspegla raunveruleika þessa elóhíms.
Apollo var þekktur í pítagorasarhefðinni sem tákn karlmannlegrar fegurðar, sólguðinn sem persónugerir hið andlega ljós í mynd sólarinnar. Hann stendur fyrir niðurstigningu himins á jörðu. Apollí er af sumum talinn vera sólarlogosinn, milligöngumaðurinn, Vishnú, Míta, Hórus, hið alheimslega Orð. Apolló var löggjafi grísku borgríkjanna. Sem guð spásagna og spádóma tjáði hann sig við mannkynið fyrir munn spámanna og véfrétta eins og í hinni frægu véfrétt í Delfí.
Logi uppljómunarinnar
Logi Apolló er gullinn litur hjúpaður slíðri úr bláum eldingum. Blái loginn virkar sem verndandi kraftsvið orku sem umlykur ljós Krists. Þessi bláa elding sker í gegnum þykkni mannlegra mistaka og misbeitingar og greiðir götuna fyrir hinn gullna loga Lúmínu sem sýnir fullkomnun sjö þátta Krists-hugans. Tvíburalogarnir Apolló og Lúmína blása viti í jörð, loft, eld og vatn sem er lukt í miðju frumeindarinnar — í kjarna hins demants-skínandi huga Guðs.
Apolló og Lúmína vilja að við einbeitum okkur að menntun og örvun hins guðlega huga mannkynsins. Þann 6. júlí, 1975, færði Apolló mannkyninu stóra náðargjöf sem var upplýsigarsproti til að efla huga mannsins. Apolló sagði að þessi blessun væri aðeins færð mannkyninu einu sinni á tíu þúsund ára fresti. Hann sagði: „Mankynið getur, ef það kýs, notað sprotann til að ganga inn í nýtt tímabil og blómaskeið.“[1]
Hinn Guðdómlegi mikli stjórnandi útskýrði að þetta rafskaut orkunnar gæti snúið við allri neikvæðni sem nokkurn tíma hefur verið lögð á okkur. „Þessi ívilnun kom til þess að það sem eftir er af aldarfjórðungnum ættu ljósberarnir að hafa alla burði til að örva guðlega vitund“[2] svo að endurreisa megi huga Guðs innra með þeim.
Þið gætuð séð fyrir ykkur upplýsingarsprotann vera virkjaðan innra með ykkur. Sjáið hann sem skarpt gyllt ljós sem tifar í heila ykkar. Sjáið þetta rafskaut brenna upp öll óhreinindi sem gætu hindrað ljósflæði Guðs í huga ykkar. Sjáið líka kórónu úr gylltu ljósi sem er birtingarmynd hugar Guðs lagða yfir höfuð ykkar og yfir höfuð ljósbarna á jörðu.
Athvarf
► Aðalgrein: Athvarf Appolós og Lúminu
Apollo and Lumina’s retreat is located in the etheric plane over Lower Saxony, Germany. In preparation for the coming golden age, tremendous tides of illumination’s flame are being released from this temple. The millions of angels who serve under Apollo and Lumina are ready to go forth to raise the consciousness of the entire earth to the level of the Christ in answer to the calls of the students.
These angels, together with those angels serving at the retreats of Jophiel and Christine, Lord Lanto, the God and Goddess Meru, Lord Gautama Buddha, Lord Himalaya, Lord Maitreya and the World Teachers, Jesus and Kuthumi, should be called upon on behalf of the enlightenment of all mankind, for they are equal in every respect to the tremendous task at hand. Ask them to bring about illumined, intelligent action in all situations, especially those that affect the future of earth and her evolutions.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Apolló og Lúmína.”
- ↑ Elizabeth Clare Prophet, The Great White Brotherhood in the Culture, History and Religion of America, bls. 269–70.
- ↑ The Great Divine Director, „A Path of Karma Yoga“, Pearls of Wisdom, 31. bindi, nr. 73, 30. október, 1988.