Eldsdíkið

From TSL Encyclopedia
Revision as of 20:31, 1 April 2025 by Hbraga (talk | contribs)
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Other languages:

Eldsdíkið, sem vísað er til í skráningu ástkærs Jóhannesar í Opinberunarbókinni þar sem „hugdeigum og vantrúuðum, viðurstyggilegum og manndrápurum, frillulífismönnum og töframönnum, skurðgoðadýrkendum og öllum lygurum er fyrirbúið.“[1] Það er staður umbreytinga og umskipta þar sem hinn eilífi, sjálfbrennandi, allteyðandi helgi eldur sem felur í sér eiginleika hins meistaralega guðdómleika, og frelsar allt líf frá sársaukafullum minningum bæði syndarans ​​og orsökum, afleiðingum, skráningu og í minningu syndarinnar.

Eldsdíkið er risastór beinir fyrir segul hinnar miklu Meginsólar á „yfirborði“ Guðsstjörnunnar, Síríusar, stærri en plánetan Jörð. Um leið og afmynduð orka kemst í snertingu við eldsdíkið, eyðir hinn helgi eldur orsök og innihaldi hins afmyndaða efnis. Orkan er endurunnin og endurreist til fullkomnunar Guðs, skilað aftur í eldkjarna seguls hinnar stóru Meginsólar sem hluta af uppsprettu lífsins og endurnotuð, eins og þegar leirkerasmiður endurmótar leir sem hann hefur mótað í form en óskar eftir að fjarlægja.

Logandi sjór af fljótandi eldi sem gleypir í sig hræðileg sköpunarverk svartagaldursmanna, djöfla þeirra og rándýra á geðheimasviði, magnútstreymi úrgangsefna pláneta og stór kraftsvið afmyndaðrar orku. Allur tilbúningur svartagaldursmannanna sem sendur er til Síríusar — í rauninni allt sem ekki er þess virði að halda við — er varpað í eldsdíkið til umbreytingar; þessi sköpun bráðnar í brennandi hita alheimsuppleysisins eins og borgir sem hafa gleypst í bráðnuðu hrauni. Hreinsaða orkan rís síðan til Stóra bláa orsakalíkamans sem notast til framköllunar uppbyggilegra hugskotsmynda sona [og dætra] Guðs.

Sýnin á þessu eldsdíki og þekking hinna föllnu á eldsdíkinu hefur leitt til þess að þeir hafa þróað kenninguna um loga helvítis, fordæmingu – eilífa refsingu og útskúfun í eldi helvítis. Það eru hinir föllnu sem hafa skapað þessa fölsku guðfræði. Þeir hafa og heimfært hana upp á hina heilögu saklausu.

Sjá einnig

Dómsdagur

Til frekari upplýsinga

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Immortality, 3. kafli.

Hartmann Bragason, Austurlenskar rætur kristninnar. Upprunalegar kenningar frumkristninnar og guðfræði nýja tímans. Reykjavík, Bræðralagsútgáfan, 2022. 19. kafli, bls. 185-187.

Heimildir

Opb 19:20; 20:10, 14, 15.

Jesus and Kuthumi, Corona Class Lessons: For Those Who Would Teach Men the Way, 23. kafli.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Immortality, 3. kafli.

Elizabeth Clare Prophet, The Great White Brotherhood in the Culture, History and Religion of America, 20. kafli.

Elizabeth Clare Prophet, 14. mars 1979.

  1. Opb 21:8.