Bhakti jóga

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Bhakti yoga and the translation is 100% complete.
Other languages:

Bhakti jóga er jóga guðdómlegs kærleika. Það fellur á sjöttu línuna á Kosmísku klukkunni í fjórðungnum fyrir geðsviðið. Það er talið vera hið auðveldasta af öllum jógaaðferðum vegna þess að það áskilur ekki að við þurfum að gefa ástríður okkar upp á bátinn, aðeins að beina þeim til Guðs.

[Tilbiðjandinn] er beðinn um að finna fyrir ástríðufullri löngun til að eiga samskipti við Guð, að vera gramur út í sjálfan sig fyrir að hafa ekki tekið andlegum framförum, að vera áfjáður í upplifa andlega reynslu. ... Í Bhakti jóga er ekki áskilið að þú hafnir löngunum; heldur: „Elskaðu; elskaðu hið æðsta“ og allt sem er lægra sett mun falla niður af sjálfu sér.[1]

Bhakti jógar rækja hollustu við Guð með tilbeiðslufullri tónlist, dansi og stöðugri endurtekningu á nafni hans. Þeir tilbiðja Guð oft í birtingu hans í holdinu. Til dæmis trúa hindúar að Vishnú hafi endurholdgast níu sinnum sem Guðs-maður, avatar. Dýrkun á Krishna og Rama í endurholdgun þeirra er mjög vinsæl á Indlandi.

Bhakti jóga gerir okkur kleift að beina löngun okkar til hvers kyns mannlegra samskipta í samband við Guð. Og jafnvel þegar við höfum mannleg samskipti erum við að elska Guð í gegnum þá mannveru. Við getum valið þá guðsmynd sem hentar best sálrænum þörfum okkar. Við getum tilbeðið Guð sem föður, móður, meistara, barn, vin eða elskhuga.

Padma Sambhava kenndi í síðustu endurfæðingu sinni sem tíbeskur meistari jóga sem kallast gúrú jóga. Hann segir:

Þið getið styrkt ykkur sjálf með því að spegla Guð í sál ykkar. Að fara inn á braut bhakti jóga, leið persónulegrar hollustu við Guru, er ein leið til að gera þetta. Þegar þið veitið hollustu ykkar, lútið höfði fyrir gúrúunum ykkar eins og þeir birtast í huga ykkar.[2]

Bhakti jóga er ein leið til að elska Guð. Þegar þið myndið tengsl við Guð, myndar Guð tengsl við ykkur. Og þegar hann hefur reynt á þolrif sálar ykkar og komið ykkur í gegnum hreinsunareldinn, þá veitir hann ykkur náð sína á góðri stundu.

Sjá einnig

Jóga

Karma jóga

Jnana jóga

Raja jóga

Agni jóga

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path.

  1. Swami Nikhilananda, Hinduism: Its Meaning for the Liberation of the Spirit (London: Allen & Unwin, 1958), bls. 109, 116 .
  2. Padma Sambhava, “God Is Just: All Will Receive Their Just Reward,” Pearls of Wisdom, 38. bindi, nr. 36, 20. ágúst, 1995.