Kosmíska klukkan

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Cosmic clock and the translation is 100% complete.

Kosmíska klukkan byggir á vísindalegri aðferð til að kortleggja hringrásir sem sálin gengur í gegnum varðandi karma sitt og vígslur á tólf línum klukkunnar undir Tólf helgiveldum sólarinnar í hinni Miklu meginsól. María guðsmóðir kenndi Mark og Elisabeth Prophet þessi fræði sem tileinkuð eru sonum og dætrum Guðs við endurkomu þeirra til lögmáls hins eina og upprunastaðar þeirra handan heima formsins og orsakatengla á lægri stigum.

Hringrásir klukkunnar

Vísindin um kosmíska klukkuna eru leið til að kortleggja hringrás lífs okkar. Þau er ekki hefðbundin stjörnuspeki. Þau er innri stjörnuspeki þar sem við getum kortlagt hringrás karma okkar og haft hönd í bagga með örlögum og hlutskipti okkar. Það gerir okkur einnig kleift að kortleggja hringrás dharma okkar og uppfylla tilgang tilveru okkar. Þar sem hjól kosmísku klukkunnar snýst dag eftir dag og við upplifum prófraunir og vígslur lífsins í hringrásum getur vitund um þessi vísindi hjálpað okkur að standast þessar þrekraunir.

Allar hringrásir fylgja sama frumgerðarsniðinu. T'ai chi táknar grundvallarskiptingu hringrásar, tveir helmingarnir tákna Alfa / karlkyns / upphaf hringrásar hægra megin, og Omega / kvenkyns / lok hringrásar til vinstri.


        


Fjórðungar

Hvorn helming heildarinnar má aftur skipta í tvo helminga, sem leiðir til fjögurra fjórðunga, sem samsvara höfuðskepnunum fjórum: eldi, lofti, vatni og jörðu. Allar lotur hefjast á 12-línu þessarar klukkuskífu, í ljósvakafjórðungnum og halda síðan áfram í gegnum hinn hugræna og geðræna fjórðung til hins líkamlega.



Þessir fjórðungar tákna einnig fjögur svið eða tíðnisvið efnisheimsins. Vera mannsins teygir sig í gegnum öll þessi svið og inn í svið andans. Við erum minna meðvituð um ljósvaka-, hug- og geðrlíkama okkar en efnislíkamann en þessir þrír eru ekki síður raunverulegir. Þessir fjórir lægri líkamar eru starfstæki fyrir þróun mannsins í tíma og rúmi.

Hinar tólf línur

Hverjum hinna fjögurra fasa hringrásarinnar má aftur skipta í þrennt (þar sem hver þriðjungur skiptist í mátt, kærleika og visku), sem leiðir til tólf sneiða, sem vísað er til með nöfnum stjörnumerkjanna. Hver lína þessarar kosmísku klukkuskífu táknar ákveðna tíðni ljóss/orku/vitundar Guðs sem við vísum til sem Guðs-kraftur á klukkan 12-línunni, Guðs-kærleikur á klukkan 1-línunni (og svo framvegis í eftirfarandi röð, Guðs-færni, Guðs-stjórn, Guðs-hlýðni, Guðs-viska, Guðs-samræmi, Guðs-þakklæti, Guðs-veruleiki, Guðs-sýn, Guðs-sigur).




Kosmísku verurnar sem þjóna með því að losa ljós sólarhelgiveldanna tólf til jarðar og sem framlag til þróunar hennar

Vegferð okkar í gegnum hringrásirnar

Við hefjum göngu í gegnum hringrás kosmísku klukkunnar þegar við fæðumst. Við byrjum á upphafsstað allra lota, á tólf tíma línunni. Einu ári seinna, á afmælisdaginn okkar færumst við inn á fyrsta tímann, klukkan eitt og svo framvegis einu sinni allan klukkuskífuna á tólf ára fresti ævi okkar. Þegar við færumst inn í hverja nýja línu klukkunnar fáum við ljósaukningu sem samsvarar gæðum þeirrar línu og við stöndum einnig frammi fyrir prófraunum sem lúta að því hvernig við notum þá orkugerð eða misnotum hana.

Samhliða prófraunum á hverri línu klukkunnar sem byggjast á persónulegum hringrásum okkar sem hefjast við fæðingu, stöndum við einnig frammi fyrir prófraunum á hverri línu þegar sólin og tunglið fara inn í stjörnumerkin sem samsvara línunum.

Menn geta misnotað þessar tólf orkutíðnir Guðs sem leiðir til neikvæðs karma á hverri línu kosmísku klukkunnar. Misnotkun línanna tólf má draga saman sem gagnrýni, fordæmingu, dómfellingu og svartagaldur á tólf tíma línunni og svo framvegis allan klukkuhringinn.


Misuses of the light on the twelve lines of the clock


Við göngum öll vígslubrautina og við höfum öll val um að halda áfram á hlaupabrettinu og falla á prófunum okkar þegar við förum í gegnum línur klukkunnar eða ákveða að standast þessi próf og halda áfram að fara fram í andlegum þroska okkar. Þetta eru prófraunir hversdagslífsins sem koma á hverri stundu.

Hver prófraun sem við stöndumst veitir okkur rétt til að bera meiri helgan eld í orkustöðvunum okkar. Þannig safnast vígslur upp. Það sem við ávinnum á einni línu þarf að yfirfærast í næstu línu og það verður grunnurinn að leikni í þeirri línu. Sömuleiðis er ekki hægt að byggja ofan á það sem við stöndumst ekki á einni línu í þeirri næstu. Þannig verðum við að undirbúa okkur.

Sjá einnig

Hugleiðing um kosmísku klukkuna, sjá Helgisiði frumeindarinnar

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, Predict Your Future: Understand the Cycles of the Cosmic Clock

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Elizabeth Clare Prophet, Advanced Studies in Understanding Yourself, bls. 365–68, viðbætur um kosmísku klukkuna, eftir ritstjórana.