Syklópea og Virginía
Syklópea og Virginía eru elóhímar fimmta geisla (hins græna geisla) sannleikans, lækninga, stöðugleika og löngunarinnar til að kalla fram gnægð Guðs í gegnum flekklausa ímynd hinnar heilögu meyjar. Þessir tvíburalogar beina hinu alsjáandi auga Guðs að því að halda vísindunum tærum sem kalla fram sköpun í hvers konar mynd og aðstoða mannkynið og náttúranda við að kalla fram og birta gnægtir Guðs-andans í efnisveruleikanum.
Hið alsjáandi auga Guðs
Syklópea er elóhím hugsýnarinnar og alheimsvitund hans veitir hugsýn skaparans sálarfyllingu. Sköpun byggist á hugsýn Guðs. Syklópea hefur framtíðarsýn fyrir allt lífið og því er hann þekktur sem Allsjáandi auga Guðs. Hann veitir leiðsögn í því að ná tökum á þriðja auganu og gefur krafta sína fyrir hugsýnina um frelsi lífsbylgna og plánetuheima eins og jarðar, Venusar, ars og ótal annarra hnatta handan við sólkerfi okkar og vetrarbraut.
Jakob postuli sagði: „Sá maður, tvílyndur og reikull á öllum vegum sínum, má eigi ætla, að hann fái nokkuð hjá Drottni.“[1] Jesús sagði: „Augað er lampi líkamans. Sé auga þitt heilt, mun allur líkami þinn bjartur.“[2] Syklópea og Virginía leggja áherslu á hreinleika heillrar sjónar, sem glataðist þegar mannkynið neytti ávaxtar af skilningstré góðs og ills. Í gegnum brennidepil hins Alsjáandi auga Guðs í þriðja auga-orkustöðinni í miðju enni hvers og eins, geisla þeir sannleika hinnar upprunalegu guðdómlegu áætlunar í gegnum einn grænan loga sem gefur frá sér sjö litageisla elóhímanna. Hann beinist að hreinleikanum sem göfgar manninn í gegnum vafning hermesarstafsins, sem, þegar hann er hækkaður og festur í enni, er tákn vængjaðs sigurs hans og endurkomu hans til heilleika.
Þjónusta þeirra
Syklópea, sem skipar sess á meðal hinna tólf sólarhelgivalda tekur stöðu á tíundu línu sólarskífunnar fyrir hönd þróunar þessa sólkerfis, sem táknar stigveldi sporðdrekamerkisins og kennir rétta notkun sköpunarorkunnar. Syklópea á aðaild að Karmíska ráðinu, þar sem hann er fulltrúi fyrir fjórða geisla hreinleikans.
Hann og Virginía eru einnig þekkt sem elóhímar tónlistarinnar eða guð og gyðja tónlistarinnar. Í gegnum tónlist sviðanna stjórna þau málefnum máls, heyrnar og sjónar, og beina geislum og helgun að þróuninni í umsjá þeirra. Þau eru kosmískir verndarar tónlistar sem sjá um að gefa út tónlist sviðanna í gegnum karl- og kvenlæga geisla Alfa og Ómega. Þessir stórkostlegu guðlegu logar hafa lengi þjónað þessu hlutverki fyrir hönd þróunar margra heimskerfa.
Syklópea og Virginía standa vörð um meyjarvitundina. Meðan á ráðstefnunni stendur á hverju hálfs árs tímaskeiði í Royal Teton Retreat, lýstur Cyclopea bláum eldhnöttum út í andrúmsloft jarðar sem beinast í gegnum hið Alsjáandi auga [Guðs] við norðurenda helgidómsins. Þessar elkúlur, með tilheyrandi ljósgeislum, hlaða jörðina með vilja Guðs í verki og hreinleika guðlegrar ímyndar hvers manns, konu og barns á jörðinni. Virkni bláu eldinganna skera niður mennskt hrat og ryðja brautina fyrir kristalsloga hreinleikans og smaragðsgeislans, sem eru græðandi möntrur frá hjarta Syklópea og Virginíu sem hreinsa fjóra lægri líkama þeirra lífsstrauma sem þeir þjóna.
Máttur viskunnar
Syklópea segir að ef við myndum vera opnari fyrir „tengslunum“ á milli englahersveita og elóhímanna, milli kosmískra meistara og uppstiginna meistara og milli andlegra nema um allan heim, „mynduð þið verða aðnjótandi mikillar úthellingar andlegrar aðstoðar sem stígi niður frá hæðum sem hin fullkomnasta vísbending um að á hverri stundu væri mönnum kleift að öðlast þann andlega fínleika ... sem svipar til hins uppstigna meistara Saint Germains fyrir uppstigningu hans.”
Þess vegna, „í heilögu nafni frelsisins, lát kraft innri sýnarinnar magnast. Lát kraft ljóss Guðs innra með vera geislandi ljóma til að virka sem stunguverð ... og opinbera leiðina í átt að óendanlegu meistarastigi sem er að finna í ykkar eigin Guðs nærveru, ÉG ER."
Elóhímarnir leggja áherslu á að „þið verðið að vera sama sinnis og ykkar ástfólgni Saint Germain — að sigur Guðs sé kosmískur veruleiki ... sem geislandi víkkar mátt sinn frá altari hjarta ykkar ... inn í heim efnisformsins. ... Kraft umbreytandi hugsýnar verður því að vera alkunnugt“ þannig að „krafturinn sem streymir fram í gegnum manninn muni einnig ná til náttúruveranna. ... Kraft andlegrar hugsýnar er hægt að yfirfæra til þeirra því að þær eru miklar eftirhermur og hafa hingað til líkt eftir röngum hugsýnum mannkyninu, skapað þyrna og þistla sem birtast í vitundinni.“[3]
Árið 1997 kom Syklópea fram með ívilnun til að hjálpa okkur að uppfylla guðdómlega ráðagerð okkar: „Úr hinu hvíta ljósi skapa ég hughrif,“ sagði hann, „sem ég innræti hverri sál Guðs sem hefur umbreytt ákveðnu magni af karma sínu. Þið sem hafið náð því ákveðna stigi ... munuð fá frá mér, svo framarlega sem þið kallið til mín á hverjum degi, aðstoð við að tjá guðdómlega frumdrætti ykkar í smáu sem stóru, á plánetusviði og á heimssviði.“
Ef þið voruð ekki viðstödd þann fyrirlestur eða þið höfðuð ekki enn umbreytt tilskildu karmamagni getið þið beðið Syklópea að blessa ykkur núna á þessari stundu. Þið getið beðið hann um að blessa ykkur með þessu hughrifum og aðstoða ykkur við að birta „guðdómlega frumdrætti“ ykkar.
Syklópea hélt áfram og sagði að „á ákveðinni stundu á hinni andlegu vegferð verður hver chela-nemi að virkja og gera tilkall til guðlegrar hugsýnar sem þau væru hans eigin. Syklópea sagði að þið gætuð helgað ykkur möntrufyrirmæli hans[4] og önnur smaragðsgeisla-möntrufyrirmæli til hans, og hann mun styrkja ykkur og „sýna ykkur hin víðtæku vísindi Guðs, jafnvel vísindin um ykkar eigin uppstigningu í ljósinu."[5]
Elohim Syklópea og Virginía vilja að við einbeitum okkur að guðdómlegum frumdráttum okkar sem og eftirfarandi málum: lækningu þjóðanna, hagkerfa þeirra og íbúa; stöðvun misnotkunar á tónlist, vísindum og tækni, þar með talið erfðatækni og klónun; og vinna gegn sýklahernaði og útbreiðslu skaðlegra vírusa og örvera.
Athvarf
► Aðalgrein: Athvarf Syklópeu og Virginíu
Ára Syklópea er græn með endurspeglun ljósstrendings Krists-vitundarinnar sem líkist verkun kristals. Ára Virginíu er græn með hvítum litblæ. Athvarf þeirra er í ljósvakaríkinu hátt uppi yfir Altai-fjallgarðinum þar sem Mongólía, Kína og Rússland mætast, nálægt Tabún Bogdó.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Cyclopea and Virginia.”