Andkristur
Template:Falska helgiveldið/is
n. Hugtakið skrifað með hástöfum, á við sértæka holdgervingu á hinni algjöru illsku, hinn Illi. Hinn hnattræni jaðarbúi. „Börn mín, það er hin síðasta stund. Þér hafið heyrt að andkristur kemur, og nú eru líka margir andkristar komnir fram. Af því vitum vér, að það er hin síðasta stund.“[1]
Hugtakið er einnig notað um verur eins og Lúsífer, Satan, Verðina, risana og aðra fallna engla sem „Og englana, sem ekki gættu tignar sinnar,”[2] sem standa í andstöðu við hið Algóða. Þessir svikarar Orðsins hafa svarið hollustu við máttarvöld dauða og djöfuls og heitið því að tortíma Guði sem er holdgerður í kirkju hans, dýrlingum hans og börnum sínum.
með lágstöfum; einstaklingur eða kraftur sem er andvígur Kristi eða ljósinu í Jesú og þeim sem honum tilheyra.
lo. hafa einkenni Andkrists, afneita vaxtarsprota Krists í börnum Guðs, tortíma sálum með rangfærslum á persónu og ljósi Krists.
Hinn þriðji Andkristur
Nostradamus spáði komu þriggja Andkrista. Túlkarar hafa gert sér í hugarlund að þeir fyrstu tveir hafi verið Napóleon og Hitler. Þann 4. apríl 1997 sagði El Morya:
Þið hafið verið kölluð til að særa út þriðja Andkrist. Allt sem þessi einstaklingur stendur fyrir verður að binda og með honum alla útvexti hans. Andkristur er bæði mannvera og vitundarástand. Andkristur gegnsýrir þar sem veikleiki er, þar sem engin siðferðileg grundvöllur er, þar sem samfélagið er á fallandi fæti.[3]
Til frekari upplýsinga
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path of Christ or Antichrist
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.
1Jóh 2:18, 22; 4:3; 2Jóh 7; 1Mós. 6:1–7; Júd 6.