Orkuhula

From TSL Encyclopedia
Revision as of 17:29, 28 April 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

(s.) Skilgreining á illsku; blæja misbeittrar orku sem maðurinn leggur á efni með misnotkun sinni á hinum helga eldi; maya, tálmynd, blekking.

Orkuhulur (flt.) Notað til að tákna stigbreytingar ljóstíðni frá efni til anda - hverri blæju sem flett er ofan af er þynning á þéttleika, þess vegna hærri tíðni á frumeindavirkni en sú fyrri.

Ekki ein, heldur margar ljósslæður þræða alheiminn og undirbyggja vitundarsvið Guðs. Sumir tala um að fara „handan hulunnar“ og vísa til þeirrar sérstöku blæju sem maðurinn í jarðnesku ástandi sínu skynjar ekki lengur sem form og vitund.

Litið er á andlega framþróun heima handan okkar eigin sem hægfara afefnisvæðingu orkuslæðunnar frá efni til anda – frá því sem kallað er hið ytra, hið efnislega eða áþreifanlega, til þess sem kallað er hið innra, andlega eða óáþreifanlega. Þessir heimar eru búnir til með mögnun anda-forms og efnis-forms í kringum kjarnasóla, hver sól logandi hugmynd sem varpað er frá huga Guðs, hver sól heldur við þungamiðju starfsemi sem fyllir megin viðfangsefni lífsins.

Sjá einnig

Illskan

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path of the Higher Self, volume 1 of the Climb the Highest Mountain® series.