Orkuhula

From TSL Encyclopedia
Revision as of 17:37, 28 April 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

(et.) Skilgreining á illsku; blæja misbeittrar orku sem maðurinn leggur á efni með misnotkun sinni á hinum helga eldi; maya, tálmynd, blekking.

Orkuhulur (flt.) Notað til að tákna stigbreytingar ljóstíðni frá efni til anda - hverri blæju sem flett er ofan af er þynning á þéttleika, þess vegna hærri tíðni á frumeindavirkni en sú fyrri.

Ekki ein, heldur margar ljósslæður þræða alheiminn og undirbyggja vitundarsvið Guðs. Sumir tala um að fara „handan hulunnar“ og vísa til þeirrar sérstöku blæju sem maðurinn í jarðnesku ástandi sínu skynjar ekki lengur sem form og vitund.

Litið er á andlega framþróun heima handan okkar eigin sem hægfara afefnisvæðingu orkuslæðunnar frá efni til anda – frá því sem kallað er hið ytra, hið efnislega eða áþreifanlega, til þess sem kallað er hið innra, andlega eða óáþreifanlega. Þessir heimar eru búnir til með segulmögnun anda-forms og efnis-forms í kringum kjarnasólir, hver sól logandi hugmynd sem varpað er úr huga Guðs, hver sól heldur við starfsemi í þungamiðju sinni sem fyllir megin viðfangsefni lífsins.

Sjá einnig

Illskan

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path of the Higher Self, volume 1 of the Climb the Highest Mountain® series.