Ljóssúlan

From TSL Encyclopedia
Revision as of 12:40, 2 May 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:
caption
Kortið af guðlega sjálfi þínu

Ljóssúlan, sem sýnd er í Chart of Your Divine Self, er skjöldur af verndandi hvítu ljósi um þrír metrar í þvermál sem stígur niður frá Guði og nær undir fætur þínar.

Ljóssúlan getur varið gegn illskeyttri orku sem gæti beinst að þér í gegnum reiði, fordæmingu, hatur eða öfund einhvers. Þegar þú ert óvarinn getur þessi neikvæða orka gert þig pirraðan eða þunglyndan og getur jafnvel valdið slysum. Ljóssúlan hjálpar þér að vera í jafnvægi og halda ró þinni.

Guð spáði Ísrael: "og ég sjálfur skal vera eins og eldveggur kringum hana."[1] Þetta er ljóssúlan – veggurinn í kringum þig sem innsiglar og verndar þig fyrir múgvitund fjöldans, fyrir hugsunum um afbrýðisemi eða öfund, fyrir alls kyns sjúkdómum í heiminum. Það er andleg vernd sem við þurfum öll.

Það er góð hugmynd að fara með „Ljóssúlu“ boðunina á hverjum morgni áður en ys og þys dagsins hefst. Ef þú finnur fyrir máttleysi, orkuþurrð eða veikleika yfir daginn geturðu endurtekið þessa boðun eftir þörfum.

Sjónsköpun og hugleiðsla

Þegar þú þylur „Ljóssúluboðunina“ skaltu sjá fyrir þér töfrandi hvíta ljósið frá ÉG ER-nærverunni, bjartara en þegar sólin skín á nýfallinn snjó, renna saman og mynda órjúfanlegan ljósvegg í kringum þig. Inni í þessari tindrandi ljóssúlu skaltu sjá sjálfan þig umvafinn fjólubláa loganum, andlegan eld heilags anda.

Ástfólgna, bjarta ÉG ER-nærvera,
hjúpaðu mig ljóssúlu þinni
frá loga uppstigins meistara,
kallað fram í Guðs nafni.
Haldi það musteri mínu hreinu
af öllu utanaðkomandi sundurlyndi.
ÉG ER ákallandi fjólubláa logans
til eldskírnar og umbreytingar langana,
ég geng fram í frelsisins nafni
uns ÉG ER eitt með fjólubláa loganum.

From time to time throughout the day, you can reinforce this spiritual protection by visualizing the tube of light around you and repeating this decree.

Sjá einnig

ÉG ER-nærveran

Kort af guðlega sjálfinu

Fjólublái loginn

Heimildir

Elizabeth Clare Prophet, Fallen Angels and the Origins of Evil.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Keys to the Kingdom.

  1. Sak. 2:5.