Translations:Mary, the mother of Jesus/28/is
Uppstigningu Maríu er fagnað þann 15. ágúst. Frá uppstigningu hennar hefur María guðsmóðir birst um allan heim og framið mörg lækningakraftaverk. Hún undirbjó jarðveginn fyrir þessar birtingar á seinni hluta síðustu endurfæðingar sinnar þegar hún vitjaði ýmis lönd í fylgd Jóhannesar hins elskaða og fimm annarra. Þau fóru fyrst til Uppstigningarathvarfsins í Lúxor, Egyptalandi, og síðan sigldu þau á báti til eyjunnar Krítar í Miðjarðarhafi, um Gíbraltarsund, með viðkomu í Fatíma í Portúgal, Lourdes í Suður-Frakklandi, Glastonbury á Bretlandseyjum og Írlandi. Á öllum þessum stöðum jarðtengdu María og þeir sem þjónuðu með henni fimmta geislann sem er logi vísinda, lækninga og alkemískra umbreytinga (töfra) sem lagði línurnar fyrir þá sem á eftir kæmu til að magna Krists-vitundina.