Logandi Joð
Hinn hvíti eldkjarni í okkar eigin vetrarbraut
Útgangur og innkoma reikistjarna, sóla, sól- og stjörnukerfa frá miðju vetrarbrautar okkar er sambærileg við losun rafeinda með klofningu og samruna frumeinda. Jörðin sem við búum á er „rafeind“ sem hrökk frá hjarta sólarinnar til að bregðast við hinni miklu tilskipun. Sólkerfið okkar er „frumeind“ þar sem sólkjarni hennar kom fram úr miðju vetrarbrautarinnar, „Logandi Joð“, annar brennidepill þar sem andi verður að efni og efni verður að anda með því ferli sem vísindamenn lýsa sem kjarnorkuumbreytingu.
Ef við göngum einu skrefi lengra munum við sjá að jafnvel vetrarbrautin okkar er rafeind sem fór út frá miðju lífsins ásamt milljörðum annarra vetrarbrauta sem snúast nú um kjarna alheimsins, hjarta Sjálfs-birtingar Guðs. Þessi logandi miðstöð verundar Guðs er með lotningu kölluð „miðdepill.
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path.