Hughreystingarhofið

From TSL Encyclopedia
Revision as of 14:17, 16 May 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "Í miðaltari athvarfsins er hughreystingarloginn. Í aðliggjandi logaherbergi er hvítur logi jarðtengdur í kristalsbikari sem er bryddaður kristaldúfum, með rauðgulum litblæ með gulli í botni hans, sem gefur frá sér kraftmikinn ljóma guðlegrar ástar. Englar bera útgeislun þessara loga til heimshornanna fjögurra til hjörtu allra sem þrá huggun og hreinleika frá Guði föður og Guðs-móður.")
Other languages:
Teplantekra í Srí Lanka

Hughreystingarhofið er athvarf Maha Chohans á ljósvakasviðinu uppi yfir eyjunni Srí Lanka (áður þekkt sem Ceylon). Það á sér hliðstæðu á efnissviðinu á stóru heimili með útsýni yfir teplantekru.

Andlitsmyndir af hinum sjö chohan-meisturum hanga í herberginu þar sem logi heilags anda er í brennidepli. Í gegnum andlitsmyndirnar beinast eiginleikar hinna sjö geisla þessara uppstignu meistara sem þeir stýra fyrir hönd jarðarþróunarinnar. Ráðssalurinn þar sem chohan-meistararnir sjö hafa fund með Maha Chohan er í þessu athvarfi, höfuðstöðvar sameiginlegrar þjónustu þeirra við jörðina.

Í miðaltari athvarfsins er hughreystingarloginn. Í aðliggjandi logaherbergi er hvítur logi jarðtengdur í kristalsbikari sem er bryddaður kristaldúfum, með rauðgulum litblæ með gulli í botni hans, sem gefur frá sér kraftmikinn ljóma guðlegrar ástar. Englar bera útgeislun þessara loga til heimshornanna fjögurra til hjörtu allra sem þrá huggun og hreinleika frá Guði föður og Guðs-móður.

Sources

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, s.v. “Temple of Comfort.”