Translations:Saint Germain/58/is
Bókin „The Great Instauration“ (titillinn merkir:... eftir hnignun, afturför eða hrun) sem Bacon ritaði árið 1670 lagði grunninn að ensku endurreisninni. Ritið byggist á hugmynd sem hann fékk í æsku um að koma á breytingum „um víða veröld“. Með árunum safnaði Bacon að sér höfundum allra helstu bókmenntaverka sem út komu á tímum Elísabetar drottningar. Sumir þeirra voru í „leynireglu“ sem hann kallaði Hjálmsriddarana („The Knights of the Helmet“). Þeir höfðu að markmiði að auka menntun og efla enska tungu með því að skapa nýja bókmenntahefð á móðurmálinu í stað latínu svo að allur al-menningur gæti notið ritanna. Bacon ritstýrði einnig þýðingu á grundvallarbiblíunni ensku, (King James Bible), staðráðinn í því að al-menningur nyti góðs af því að geta lesið Guðs orð upp á eigin spýtur.