Translations:Saint Germain/65/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 18:45, 25 May 2024 by PeterDuffy (talk | contribs)
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)

Samkvæmt frásögn Karls prins af Hessen-Kassel kynnti greifinn sig sem son prinsins Ferenc Rakoczys II af Transsilvaníu. Aðrir hafa leitt getum að því að hann hafi verið portúgalskur gyðingur eða sonur Portúgalskonungs.

Saint Germain var fræðimaður, sagnamaður málvísindamaður, listamaður, tónlistarmaður, skáld og erindreki sem hirðfólk í Evrópu virti og dáði sökum snilldargáfna hans. Hann talaði að minnsta kosti tólf tungumál svo reiprennandi að hann var talinn vera innfæddur hvar sem hann kom. Hann var jafnhendur og gat samtímis skrifað bréf með annarri hendi og samið ljóð með hinni.

Loðvík XV fór lofsorðum um hæfni hans sem alkemista og útvegaði honum tilraunastofu og aðsetur í Chambord-höllinni. Samkvæmt annálum konungsins gengu sýningar hans á alkemíu kraftaverki næst. Meðal dáða hans var að gera óaðfinnanlega við gallaða demanta og aðra gimsteina.

Hann stofnaði leynireglur, var í forsvari fyrir Rósakrossregluna, Frímúrarana og Musterisriddarana á þessu tímabili,[1] og skrifaði hið klassíska dulspekirit Hin alhelga þríviska (La Très Sainte Trinosophie), þar sem efninu er komið til skila bæði á nútímamálum og með fornum myndrúnum. Voltaire lýsti honum sem „ódauðlegum manni sem veit allt“. [2] Friðrik mikli, Voltaire, Horace Walpole og Casanova minnast á hann í bréfum sínum og að auki er um hann fjallað í tímaritum samtímans.

  1. Sjá nánar um þátt Saint Germains í þessum leynireglum, t.d.: Isabel Cooper-Oakley. The Count of Saint Germain. Rudolf Steiner Publications–Blauvelt, New York 1970; Jean Overton Fuller. The Comte de Saint-Germain. East-West Publications – London 1988.
  2. Voltaire. OEuvres. Lettre cxviii, éd. Beuchot, lviii, bls. 360. Skv. tilvísun hjá: Cooper-Oakley. The Count of Saint Germain, bls. 96.