Translations:Body elemental/19/is
Ekki misskilja ótta líkamans þíns og þinn eigin. náttúruvera líkamans er líka tengd líkamanum því það er hans iðja. Hann sér um líkamann. Án líkama er ekkert meira starf! Því veltir hann fyrir sér hvert hann er að fara og hvað hann ætlar að gera þegar þú leggur líkamann til hliðar í síðustu endurfæðingu þinni. Þú verður að hugga náttúruveru líkama þíns eins og þú myndir hugga lítið barn og lofa honum að þú takir hann með þér upp á næsta áttundarsvið því hann hefur verið mjög trúr þjónn. Segðu honum að hann geti enn verið aðstoðarmaður þinn eftir að þú ert kominn upp og hann mun hafa nóg fyrir stafni.