Translations:Body elemental/19/is
Ekki rugla saman ótta náttúruveru líkama þíns við þinn eigin. Náttúruvera líkamans er líka tengd líkamanum því það sem hún fæst við. Hann sér um líkamann. Án líkamans er hún iðjulaus! Því veltir hún fyrir sér hvert hún fer og hvað hún á að taka sér fyrir hendur þegar þú leggur líkamann til hliðar í síðustu endurfæðingu þinni. Þú verður að hugga náttúruveru líkama þíns eins og þú myndir hugga lítið barn og lofa henni að þú takir hana með þér upp á næsta áttundarsvið því hún hefur verið trúr og dyggur þjónn. Segðu henni að hún geti enn verið aðstoðarmaður þinn eftir að þú ert uppstiginn og hún muni hafa nóg fyrir stafni.