Eríel

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:11, 28 May 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "{{MTR}}, sjá “Eríel hinn ljósi”.")
Other languages:

Eríel, sem fékk vísindin um Ljós- og hljóðgeisla í Arabíska ljósvakaathvarfinu, er yfirstjórnandi ljóscvakaathvarfsins í Arizona þar sem þjálfun í notkun þessara vísinda er gefin.

Eríel, sem endurfæddist í Kína sem alkemisti (dulefnafræðingur), heimspekingur og vitringur, hefur aðstoðað Kína í gegnum margar kreppur, þar á meðal kommúnistabyltinguna. Við slátrun kínversku þjóðarinnar á þriðja áratug síðustu aldar aðstoðaði hann þúsundir sem hurfu of snemma af sjónarsviði lífsins með því að fara með þá í athvarf sitt til þjálfunar og undirbúnings fyrir endurfæðingu. Þeir sem lengst voru komnir voru búnir undir inngöngu í Uppstigningarmusterið.

Einn sem hann aðstoðaði var Fun Wey, nú uppstiginn meistari, sem var færður til athvarfs Eríels þegar lífi hans var ógnað sem lítill drengur í Kína. Þar stóðst hann vígslur sínar sem leiddu til uppstigningu hans uns hann öðlaðist að lokum ódauðlegt frelsi sitt.

Eríel er rúmlega 1.80 m á hæð og er með skarpskyggn austurlensk augu sem glitra eins og stjörnur á næturhimninum. Hann hefur undir stjórn hersveitir rauðblárra engla. Einkennismerki hans er bleik rós.

Sjá einnig

Ljósvakaathvar Eríels í Arizona

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Eríel hinn ljósi”.