Búddha

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:59, 10 June 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Vinsæl mynd af 35 játningarbúddum úr sútru í tíbetskum búddhadómi (sanskrít: Triskandha Dharmasutra)

[Úr sanskrít budh "vakandi", "vita", "skynja"] Búddha þýðir "hinn uppljómaði." Það táknar embætti í andlegu helgiveldi heimanna sem fæst með því að ná ákveðnum vígslum hins helga elds, þar með talið vígslum á hinum sjö geislum heilags anda og á hinum fimmu leyndu geislum með því að reisa kvengeisla (hins helga elds Kúndalíni) og ná „valdi á hinum sjö í sjö margfaldað með kröftum hinna tíu.“[1]

Gátama Búddha

Aðalgrein: {{{2}}}

Gátama öðlaðist Búddha uppljómun fyrir tuttugu og fimm öldum. Hann hafði fetað þennan veg í mörgum fyrri æviskeiðum sem náði uppfyllingu í fjörutíu og níu daga hugleiðslu hans undir Bo-trénu; þess vegna er hann kallaður Gátama Búddha. Hann gegnir embætti Heims-drottins, hann viðheldur með orsakalíkama sínum og þrígreindum loga hinum guðlega neista og þróunarvitund jarðarinnar sem greiðir leiðina til að öðlast Krists-verund. Ára hans sem einkennist af ást/visku veitir jörðinni sálarfyllingu stafar af óviðjafnanlegri hollustu hans við guðsmóðurina. Hann er yfirstjórnandi Shamballa, hins upprunalega athvarfs Sanat Kumara sem nú er á ljósvakasviðinu uppi yfir Gobí eyðimörkinni. Þann 18. apríl 1981 stofnaði hinn ástfólgni Gátama Búddha Vestur Shamballa í óbyggðum Ameríku við norðurlandamæri Yellowstone þjóðgarðsins við Innra athvarf Royal Teton Ranch (búgarðsins).

Drottinn Maitreya

Aðalgrein: {{{2}}}

Drottinn Maitreya, hinn kosmíski Kristur, hefur einnig staðist eldraunir og vígslur Búddha. Hann er hinn langþráði væntanlegi Búddha sem hefur komið fram á sjónarsviðið til að kenna öllum sem hafa villst af vegi hins mikla meistara Sanat Kumara sem bæði Maitreya og Gátama rekja upphaf sitt til.

Aðrar búddhar

Í sögu plánetunnar hafa verið fjölmargir búddhar sem hafa þjónað þróun mannkyns í gegnum frá einum áfanga til annars á leið til að verða bódhisattva. Í austri er talað um Jesús sem búddha Issa. Hann er heimsfrelsarinn sem vottar kærleika/visku guðdómsins.

Níu búddhar fæddir árið 1964

Á sjöunda áratugnum buðu níu óuppstignir lífsstraumar sem höfðu staðist vígslur Búddha sig fram til að koma til móts við þróun jarðar á erfiðum og viðsjárverðum breytingatímum yfir í vatnsberansöldina. Heimsþjónusta þeirra verður viðurkennd þegar mennirnir hafa náð þeim aldri að sýna fordæmi Krists og Búddha frá þrjátíu og þriggja til þrjátíu og sex ára aldurs.

Í fyrirlestri sem gefinn var 4. nóvember, 1966 í Los Angeles í Kaliforníu sagði Gyðja hreinleikans:

Upp úr hinum mikla loga kosmísks hreinleika fæddust fyrir aðeins tveimur árum níu börn á jörðinni, búddhar úr hjarta föðurins. ... Ætlunin var að með krafti þrisvar sinnum-þrír skyldu þessi heilögu börn færa mannkyninu hina miklu hreinu vitund Guðs sem hinn ástkæri drottinn ykkar Gátama hefur.

Ég færi ykkar í dag boðskap sem ætti að fá hjörtu ykkar til að vakna til vitundar um þörfina fyrir því að flytja meiri möntrufyrirmæli. Frá fæðingu þessara heilögu barna hefur eitt þeirra farið af sjónarsviði lífsins því að umhverfi þessa barns var svo óhreint og skorti svo loga hreinleikans sem hentaði ekki til að ljósið fengi að skína úr því hjarta að barnið dó sem blóm skorið af vínviðnum. Og þannig eru átta af þessum heilögu sakleysingum eftir á jarðarlíkamanum. ...

Ekki nema dagleg áköll séu gefin til hjarta Guðs fyrir syni Guðs á þessari plánetu og fyrir þessa búddha munuð þið komast að því að plánetan jörð verði svipt þeim leiðtogum sem þarfnast í ríkisstjórnir, í trúarbrögðin, í listir og í vísindir sem geta og vilja fært þetta mannkyn inn í gullöldina og inn í nýja árþúsundið.

Þann 4. júlí 1969 talaði Jesús um endurfæðingu níunda þessara búddha:

Við munum endurheimta blessaða búddhabarnið sem hvarf af landinu fyrir nokkru síðan. Hann mun fæðast á þessu ári á Indlandi, í Madras, og þar mun hann alast undir vernd blessaðra hjóna sem hafa boðið sig fram á innri sviðum að taka við honum.

Níu búddhar úr nirvana

Þann 1. janúar 1983 tilkynnti Gátama Búddha að níu búddhar sem höfðu verið í nirvana í níu hundruð ár væru að stíga niður ljósgöngin til að komast inn í hjörtu níu einstaklinga á þessari plánetu og komast með rafrænni nærveru þeirra inn á kraftsvið þúsunda helgaðra hjarta. Gátama gaf einnig þá ívilnun að sérhver bæn, mantra og söngur unnenda Krists og Búddha yrði frá þeirri stundu margfölduð með krafti hjarta Gátama og hinna níu búddha.

Sjá einnig

Heims-drottinn

Gátama Búddha

Drottinn Maitreya

Shamballa

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, Quietly Comes the Buddha: Awakening You Inner Buddha-Nature

Elizabeth Clare Prophet, Maitreya on Initiation

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

  1. Sjá „The Seven in the Seven and the Test of the Ten,“ Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras, bk. 2, 10. kafli.