Guð náttúrunnar

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:07, 13 June 2024 by Hbraga (talk | contribs)
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Other languages:

Guð náttúrunnar starfar með fulltrúum heilags anda, stigveldi hinna fjögurra frumþátta, hinum uppstigna meistara Kuskó og hinum volduga Kosmós við að draga segulstrauma jarðar og beina þeim til að skapa jafnægi náttúrunnar og náttúruandalífsins.

Hann er um 1.80 m á hæð og losar geislun sína í gegnum feld í rauðgulum, gylltum og grænum lit. Frá höfði hans geislar ára í sterku bláu ljósi og ljósgeislarnir sem streyma frá honum öllum líkjast norðurljósi. Geislarnir frá höfði hans eru hvítir og þeir frá hjartanu eru gylltir. Frá hægri hendi gefur hann frá sér grænan geisla og rauðgulan frá þeirri vinstri.

Guð náttúrunnar hrærist í takt við segulstrauma jarðar, dregur þá að sér og losar þá að vild, magnar upp og jafnar virkni þeirra þegar þeir fara í gegnum líkama hans og vitund hans gleypir þá og frásogast af þeim.

Áður en hann náði árangri á þessu sviði endurfæddist hann sem gullgerðarlistamaður hins helga elds. Á innri stigum lærði hann hvernig á að stjórna kosmískum öflum og þegar hann steig upp hafði hann öðlast svo mikinn kraft til að vinna með náttúrunni að hann fékk þessa stöðu í helgiveldinu svo að kosmískar verur sem áður skipuðu hana gætu snúið sér að kosmískri þjónustu.

Guð náttúrunnar vinnur með Guði gullsins til að fella gull úr rafstraumum sólarinnar. Tilvist þessa málms í jörðinni er nauðsynleg fyrir jafnvægi náttúruafla og líkama mannsins.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Nature, God of”.