Elóhímar hinna fimm leyndu geisla

From TSL Encyclopedia
Revision as of 14:06, 16 June 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

Þó að það séu sjö tvenndir af Elóhímum (á geislasviðunum sjö) í ytri birtingarmynd, þá eru fimm tvenndir í innri birtingu innan Meginsólarinnar miklu. Þessar fimm tvenndir birta leyndargeislana fimm.

Þó að þeir hafi ekki gefið upp nöfn sín er hægt að kalla fram mátt þeirra og vald með því að ávarpa „elóhíma hinna fimm leyndu geisla“. Hægt er að nota uppsafnaðan slagkraft þeirra til að styrkja böndin við leyndu geislanna í orsakalíkama mannsins og (segul)magna logandi vaxtarsprota hins hvíta eldskjarna hverrar frumeindar verundarinnar.

Þessir fimm leyndu geislar munu birtast þegar mannkynið hefur sýnt meiri vald yfir þeim máttaröflum sem nú eru tiltækar fyrir andlegan þroska þess með því að beisla hina sjö „virku“ geisla.

Elóhímarnir sem kom fram frá hjarta Guðs til að bregðast við tilskipuninni miklu er sambærilegir við rafeindirnar sem greina sig frá kjarna frumeindarinnar. Rétt eins og án rafeindanna sem skapa orkusnúning tíma og rúms væri ekkert efni, þannig væri enginn formheimur án elóhíma. Elóhímarnir fimm sem þjóna leyndu geislunum samsvara nifteindunum sem dvelja í hjarta frumeindarinnar.

Sjá einnig

Elóhím

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Elohim of the Five Secret Rays”.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path, bls. 252–53.