Himalaya

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:58, 22 June 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "<blockquote>Rósemi Búddha, hlustun Krists, þetta er máttur Guðs. Hin mikla þögn er mátturinn, blíða blómanna, nýja barnið og þeir sem skipta yfir í allt ljós. Lærið um kraftinn, mín ástkæru, og lærið af mér. Lærið um undur Guðs og kraftaverk náðarinnar. Lærið um inngönguna í musteri Bláa lótussins. Lærið því um aðlögun þessa kóbaltbláa í öllum orkustöðvunum. Lærið kyrrðina í auga fellibylsins og auga Guðs. Lærið tign...")
Other languages:
Mount Everest, Himalaya fjallgarðurinn

Himalaya er manú fjórða rótarkynstofnarins. Hann er einnig yfirstjórnandi athvarfs Bláa lótussins í Himalajafjöllum, verndari geisla hins karllæga þáttar guðdómsins sem beinist beint frá hjarta Alfa. Hinn mildi ljómi Himalaya má finna um öll Austurlönd sem áþreifanlega nærveru sem dregur pílagríma allra þjóða inn í guðlega vitund um loga Bláa lótussins.

Fjórði rótarkynstofninn

Rótarkynstofn er hópur sála, eða lífsbylgja, sem fæðast saman í holdinu og hafa einstakt (erkitýpískt) frumgerðarmynstur eða forsnið, guðlega ráðagerð og köllun til að uppfylla. Manúar (sanskrítarorð fyrir „ættfeður“ eða „löggjafa“) veita ímynd hinnar Krists-bornum sálum allra lífsbylgja sálarfyllingu sem þeir styrkja. Samkvæmt dulspekilegri hefð eru sjö frumsamstæður sála, þ.e. frá fyrstu til sjöundu rótarkynstofna.

Fyrstu þrír rótarkynstofnarnir lifðu í hreinleika og sakleysi á jörðu á þremur gullaldarskeiðum fyrir fall mannsins. Með hlýðni við kosmísk lögmál og algera samsömun við hið raunverulega sjálf, unnu þessir þrír rótarkynstofnar ódauðlegt frelsi sitt og stigu upp frá jörðu. Það var á tímum fjórða rótarkynstofnsins, á meginlandi Lemúríu, sem hið goðsagnakennda fall átti sér stað undir áhrifum hinna föllnu engla sem kallast höggormar (vegna þess að þeir notuðu slöngukraft hryggjarsúlunnar til að blekkja sálina, þ.e. kveneðli mannkynsins sem leið til að draga úr vaxtarmengi karleðlisins).

Fjórði, fimmti og sjötti rótarkynstofninn er enn í endurfæðingu á jörðinni í dag. Sjöunda rótarkynstofninum er ætlað að endurholgast á meginlandi Suður-Ameríku á vatnsberaöldinni undir verndarvæng manús þeirra, hin Mikla guðlega stjórnanda.

Þjónusta Himalaya

Himalaya er meistari meistaranna. Nemendur hans hafa verið drottinn Gátama, drottinn Maitreya, El Morya, Kúthúmi og þúsundir annarra. Hann kennir hugleiðslu á meðan hann situr í lótusstöðu. Þeir sem njóta þeirra forréttinda að sitja við fætur hans verða að læra að samstilla vitund sína við hans og þegar púls þeirra verður eitt með takti þrígreids loga hans eru þeir móttækilegir fyrir hugmyndum úr huga hans þó að engin orð séu látin falla. Þeir sem ná tökum á list hugsanaflutnings yfirgefa alltaf Bláa Lótus musterið með kærleiksrík hjörtu og með möntru sem er úrlausnin að framgangi guðlegrar ráðagerðar þeirra.

Áþreifanleg útgeislun drottins Himalaya birtist eins og gullinn snjór; mikil hollustu hans við loga Krists í fjöldanum í Asíu hefur haldið Ganges hreinsaðri sem heilunarmiðstöð um aldir. Sömuleiðis hefur hann jarðtengt segulskaut Krists-vitundar í fjöllunum sem bera nafn hans.

Drottinn Himalaya hefur varið miklum tíma í þögninni miklu (í nirvana) þar sem hann dregur sig í hlé til að safna í sig kröftum hinnar miklu skapandi vitundar, stígur fram einstaka sinnum til að leysa ljósið úr læðingi sem hann hefur dregið til allra heimshorna. Um þessar mundir er hann virkur í athvarfi sínu í þágu uppljómunar heimsins og sameiningar austurs og vesturs. Guðdómleg samfella hans er enn í holdinu til að jarðtengja tvíburaloga þeirra í efnisforminu.

Himalaya segir:

Rósemi Búddha, hlustun Krists, þetta er máttur Guðs. Hin mikla þögn er mátturinn, blíða blómanna, nýja barnið og þeir sem skipta yfir í allt ljós. Lærið um kraftinn, mín ástkæru, og lærið af mér. Lærið um undur Guðs og kraftaverk náðarinnar. Lærið um inngönguna í musteri Bláa lótussins. Lærið því um aðlögun þessa kóbaltbláa í öllum orkustöðvunum. Lærið kyrrðina í auga fellibylsins og auga Guðs. Lærið tign friðarins sem byggir upp ljós hjartans.Cite error: Closing </ref> missing for <ref> tag

Tvíburalogi hans

Árið 1983 leiddi Himalaya í ljós að tvíburalogi hans hefur enn ekki stigið upp til himna:

I have tarried with earth’s evolutions long, and I wait for my own beloved to ascend from your midst. Therefore, understand how cosmic beings have yet in embodiment their own twin flames, and strive with oneness for your own. For we have known the pain of the battle and the pain of separation. With you we strive onward to attain the mark of Godhood.[1]

Athvarf

Aðalgrein: {{{2}}}

DrottinnHimalaya er yfirstjórnandi Athvarfs blaa Lótusins í Himalayafjöllum.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Himalaya”.

  1. Himalaya, January 2, 1983.