Múgvitund

From TSL Encyclopedia
Revision as of 18:11, 29 June 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "Ástvinir, að frátaldri múgvitundinni sem er á kafi í veraldarvafstri þá hvílir útkoma hnatthvolfanna á þeim fáu efstu og neðstu — hvort þeir sem eru á tindinum viðurkenna að þeir séu sannarlega efstir og bera ljósið fyrir hönd milljóna og hvort þeir telji svo að mikilvægasta hlutverk þeirra sé að sigra með ákalli til ljóss og ákalli til helgivaldsins hina föllnu sem pukrast, leynast og laumast á neðanjarðarstigum vitundarinnar.")
Other languages:

Múgvitundin; sameiginleg vitund mannkyns; sameiginleg ómeðvitund kynstofnsins; lægsti samnefnari sameiginlegrar vitundar mannkyns sem titrar á stigi geðheimsins. Múgvitundin er hinn sameiginlegi, tölvuvæddi, forritaði hugur mannkyns.

Kuskó tjáir sig um áskoranir múgvitundarinnar í andlegri þróun plánetunnar:

Múgvitundin hefur miðgildi sem mun haldast nokkurn veginn óbreytt nema þessi múgvitund verði svo gagntekin af ljósbera með slíka persónutöfra, slíkan kærleika, slíka eiginleika heilags anda sem ekki aðeins upplífgar heldur lífgar og jafnvel endurlífgar guðlegan neista í þeim sem hann hefur slokknað.

En, elskuðu, þeir sem eru á gráu svæði fjöldans, bregðast aðeins við áreitum sem varpað er á þá í gegnum hinar ýmsu gerðir fjölmiðla, bregðast ekki vel við þeim sem bera ljós og [þess vegna] drabbast þeir smám saman niður. ...

Ástvinir, að frátaldri múgvitundinni sem er á kafi í veraldarvafstri þá hvílir útkoma hnatthvolfanna á þeim fáu efstu og neðstu — hvort þeir sem eru á tindinum viðurkenna að þeir séu sannarlega efstir og bera ljósið fyrir hönd milljóna og hvort þeir telji svo að mikilvægasta hlutverk þeirra sé að sigra með ákalli til ljóss og ákalli til helgivaldsins hina föllnu sem pukrast, leynast og laumast á neðanjarðarstigum vitundarinnar.

Blessed ones, the destiny, then, of earth can be said to be in the hands of a few and [in the balance of] the decisions that are made by those in the spectra of Light and those in the spectra of Darkness.[1]

Sjá einnig

Mennsk vitund

Krists-vitund

Alheimsvitund

Guðs-vitund

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

  1. Cuzco, “The Wisdom of God Parents,” Pearls of Wisdom, vol. 32, no. 2, January 8, 1989.